Vikan


Vikan - 21.09.1989, Qupperneq 39

Vikan - 21.09.1989, Qupperneq 39
5MA5AGA sem snöggvast og starði á Nicki. Og Nicki fann allt í einu vakna hjá sér þá löngun að ávarpa þessa gerókunnu stúlku og segja henni ffá heppni sinni, stillti sig þó um það og tók stefiiuna á kaffistofiina á næsta götuhorni. Hún var einmitt að hella í seinni kaffl- bollann sinn, þegar hún tók eftir því að dökkhærða stúlkan var í þann veginn að setjast við þriðja borð frá henni. Svo var að sjá sem hún hefði að minnsta kosti ekki neitt á móti því að Nicki kallaði á sig; Nicki gerði það að vísu ekki, en brosti til hennar og það var nóg til þess að unga stúlkan greip handtöskuna sína og kom yfir að borðinu til hennar. — Má ég tylla mér hérna hjá þér? spurði hún og það var einhver hálfdulin, annarleg spenna í röddinni. Og Nicki veitti því einnig athygli nú að hún var rauðeygð eins og hún hefði grátið. - Já, gerðu svo vel, svaraði Nicki. Hvernig var það... sá ég þig ekki í leikhús- anddyrinu? — Jú, svaraði stúlkan. Satt best að segja, laumaðist ég inn í salinn og sat þar í felum, en þú mátt fyrir alla muni ekki segja herra Wolfe frá því. Ég heiti Jill Yarborough... — Og ert leikkona? — Já, að minnsta kosti reyni ég að telja sjálfri mér og öðrum trú um það... en það gengur dálítið misjafrilega. Ég sat á aftasta bekk í salnum meðan þú last. Þér tókst prýðilega að mínum dómi. - Þakka þér fyrir, sagði Nicki og ókyrrðist í sætinu. Hún var farin að kunna illa glampanum í starandi, tinnusvörtum augum stúlkunnar. — Ég varð dálítið undrandi yfir því að herra Wolfe skyldi ekki minnast á mig einu orði, mælti stúlkan enn. Hann hafði nefnilega heitið mér hlutverkinu síðastlið- inn föstudag... hlutverki ekkjunnar, Mary Lou á ég við. Ég er úr Suðurríkjunum, þótt það heyrist ekki á mæli mínu, syðst úr Suðurríkjunum. En nú hef ég verið svo lengi héma í Norðurríkjunum að allur þessi svokallaði Suðurríkjahreimur er horfinn. Eða getur þú heyrt hann? — Nei... — Ég hef líka gert allt, sem í mínu valdi stendur, til að losna við hann... og svo verð ég fyrir þessu áfalli. Slíkt getur bókstaflega riðið manni að fullu. Ég hef verið atvinnu- laus — ég á við að ég hef ekki fengið neitt hlutverk í næstum ár og þegar herra Wolfe sagði að ég væri eins og sköpuð í þetta hlutverk, réð ég mér ekki fyrir fögnuði. En svo hringdi hann til mín á laugardags- morguninn og kvaðst hafa séð sig um hönd. — Það er leiðinlegt, ungfrú... — Yarborough. En kallaðu mig Jill. Þú heitir Nicki... - Já. — Jæja, ég reyndi nú samt að afbera það, sagði Jill. Að minnsta kosti stóðst ég freist- inguna að fremja sjálfsmorð. Hún hvessti tinnusvört augun á enni Nicki, rétt eins og hún vildi brennimerkja hana. Nicki langaði til að snerta hönd stúlk- unnar, eða sýna henni samúð á einhvern hátt, efþað gæti orðið til að draga eitthvað úr örvætningu hennar. En hún kunni ekki við það, og lét því nægja að segja lágt. - Þetta er ákaflega leiðinlegt. Láttu mig þekkja það. Ég veit hvað það er af eigin raun að ganga á milli umboðsmanna leikhúsanna, biðja og bíða. Það hef ég nefhilega gert síðastliðna átta mánuði. Og það er ekki eins og þetta sé fastákveðið enn... brjóta sér braut í lífinu mó maður ekki hika við að fórna. Sér í lagi ekki hika við að fórna þeim sem reynast þröskuldur ó vegi. Jill Yarborough hló. — Reyndu ekki að telja mér trú um neitt. Ég er að minnsta kosti ekki í neinum vafa um að það er fastákveðið. Honum leist prýðilega á þig, Nicki. Það leyndi sér svo sem ekki. Brosið hvarf af andliti hennar. En það breytir hins vegar ekki neinu um það, að ég er ferari um að leika þetta hlutverk en þú. Nicki horfði niður í tóman bollann og hafði ekki hugmynd um hverju hún skyldi svara, eða hvernig hún ætti að taka annarri eins fullyrðingu. Stúlkan þagði um hríð, en leit ekki glóandi augunum af henni, og Nicki heyrði þungan, stynjandi andardrátt hennar, þrátt fýrir bollaglamrið og hávað- ann í kaffistofunni. Og loks mælti stúlkan svo lágri röddu að Nicki varð að leggja við hlustirnar: - Hafnaðu þessu hlutverki, Nicki. Segðu herra Wolfe að þú sért tilneydd... - Hvað áttu við? — Hringdu tafarlaust til hans, og segðu honum að þú sért tilneydd að hafha hlut- verkinu, skilurðu. Segðu að óvænt atvik hafi komið í veg fyrir að þú getir tekið það að þér. Þú verðir að segja honum eins og er... Frekjan, sem fólgin var í þessari uppá- stungu, var svo gegndarlaus að það gekk fram af Nicki. — Þér getur ekki verið alvara, sagði hún loks. — Jú, mér er þetta fyllsta alvara, Nicki. Og ég hef fyllsta rétt til að koma fram með slíka uppástungu. Ég er ferari um að leika þetta hlutverk en þú, og ég hef lagt meira á mig til þess að verða það. — En ég þarf líka að vinna... — Þú hefur ekki eins mikla þörf fýrir það og ég. Ekki á sama hátt, á ég við. Það getur bókstaflega ekki átt sér stað. Hún lygndi aftur augunum, og það var því líkast sem gardína hefði verið dregin fýrir glugga á logandi herbergi. Svo opnaði hún augun aftur og hvessti þau á Nicki, hálfu heitari og myrkari en nokkru sinni fyrr. — Ef þú hafhar ekki þessu hlutverki, Nicki, skal ég myrða þig. Ég tek alla heil- aga til vitnis um að þá skal ég myrða þig, heyrirðu það. Nicki varð svo hverft við að hún hratt stólnum frá borðinu eins og hún vildi flýja. — Ég myrði þig fýrst, og síðan sjálfa mig. Og ég hef verið staðráðin í því síðan herra Wolfe sveik mig um hlutverkið, að ég skyldi myrða hverja þá, sem tekin yrði í minn stað. Hún tók allt í einu að grúska í handtösk- unni sinni. Svo dró hún upp úr henni lítið, móbrúnt glas og sneri því þannig við Nicki að hún sæi sem best höfuðkúpuna og krosslögðu leggina á miðanum. — Það er þýðingarlaust að reyna að ógna mér, sagði Nicki. — Ég er ekki heldur að reyna að ógna þér. Ég er einungis að segja þér frá ákvörð- un minni, því ég vil ekki koma óheiðarlega fram við þig. Ef þú hringir ekki til herra Wolfe og hafhar hlutverkinu, deyjum við báðar. Og ef þér kemur til hugar að gera lögreglunni viðvart — þá gerðu svo vel. Ég segi bara að þú sért með lausa skrúfu og hlæ mig máttlausa. Að svo mæltu spratt hún sætinu, sneri sér undan eins og hún vildi ekki láta á því bera að hún gréti, greip handtöskuna sína og hanskana óg hraðaði sér á brott. Nicki stóð fast við ákvörðun sína. Hún lét ekki ógna sér. Þegar hún kom heim og sagði herbergissystur sinni hvernig farið hafði, minntist hún ekki einu orði á Jill Yarborough. Síminn hringdi klukkan hálftíu morgun- inn eftir. Nicki var fljót að svara. — Nicki Porter.. þetta er Carl Wolfe... Nicki lokaði augunum og bað fýrir sér. — Við mætum hér öll á þriðjudagsmorg- uninn klukkan tíu. Getur þú ekki komið? — Jú, auðvitað, svaraði Nicki og lét sem ekkert væri. Það tók hana nokkurn tíma að læra hlut- verkið utan að, þótt það væri ekki lengra en þrjár blaðsíður og hún gleymdi Jill Yarborough gersamlega. Carl Wolfe reyndist skemmtilegur leikstjóri, en átti það líka til að vera kröfuharður og beitti háðinu ef í það fór. Hann átti líka sinn þátt í því að hún gleymdi Jill. Fimmtudagskvöldið kom hún heim af æfingu klukkan hálfátta. Hún var þreytt en engu að síður í besta skapi. Theresa, her- bergissytir hennar, vildi fá hana út með Frh. á bls. 41 19. TBL 1989 VIKAN 37

x

Vikan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.