Vikan - 21.09.1989, Side 40
Myndatökur með myndbandi
Fjölskyldu- og ferðamyndir
KEhrlSLA
3. ÞATTUR
UMSJÓN: MARTEINN SIGURGEIRSSON
Afmæli eru alltaf vinsælt myndefni.
Byrjað skal á yfirlitsmynd.
Gamlir vinir hittast og taka tal saman. Best er að byrja með
hálfinynd og færa myndavélina í nærmynd að þeim sem verð-
ur fyrir svörum. Ekki sveifla vélinni milli þeirra sem tala
saman.
Flestir sem eiga mynda-
vélar fyrir myndbönd
mynda atburði sem ger-
ast innan fjölskyldunnar. Þó
eru nokkrir sem gera stutta
fræðslu- og kynningarþætti
eða jafhvel leiknar myndir. Þar
sem margir eiga einnig ljós-
myndavélar getur sú spurning
vaknað með hvorri vélinni eigi
að mynda. Stundum er fólki
stillt upp sérstaklega fyrir
myndatökuna. Það hentar ekki
í kvikmynd þar sem hreyfing
og framkvæmd í einhverri
ákveðinni frásögn er mun
hentugra tjáningarform fyrir
myndbandið. Einnig geta
menn átt í innri baráttu með
hljóð og mynd. Stundum er
samfellt hljóð mikilvægt, til
dæmis í stuttum ræðum eða
hljómlistarflutningi. Þá er ekki
gott að slíta í sundur hljóðið
með stuttum myndskeiðum og
breytilegum sjónarhornum.
Það má lífga upp á þessi löngu
myndskeið síðar með inn-
klippi af áhorfendum ef inn-
skotstakki (insert) er á mynda-
vélinni eða klippitækinu.
Fjölskyldumyndir
Algengt er að mynda merk-
isatburði innan fjölskyldunnar.
Fyrst og fremst eru það affnæli
og hátíðisdagar þar sem allir
eru í sínum fínustu fötum að
spjalla saman og borða góðan
mat. Það er ágætt út af fyrir sig
en frekar einhæft ef við hugs-
um um hvað mannlífið er fjöl-
breytt og litríkt. En lítum þá
nánar á ýmsa möguleika.
Þar sem frekar ódýrt er að
mynda ef frá er talinn stofh-
kostnaður getur hver og einn
myndað hið daglega líf. Það
gleymist harla oft en getur haft
skemmtana- og heimildagildi
þegar fram líða stundir. Best er
að afmarka sig við eitt ákveðið
efni og sýna eitthvað sem ger-
ist með upphafi og endi, til
dæmis dag í lífi einhvers í fjöl-
skyldunni, heimilið (ekki taka
of vel til) eða vinnustaðinn.
Einnig má hugsa sér þætti eins
og „sveitin mín“ eða „gatan
mín“. Margir kynlegir kvistir
eru til í flestum fjölskyldum.
Því ekki að heimsækja þá og
ná ffam sérkennum þeirra í
skemmtilegu spjalli? Þá er
nauðsynlegt að hafa aukahljóð-
nema og hafa hann sem næst
hljóðgjafanum.
Ættarmót eru vinsæl. Þar má
sýna svipmyndir af því þegar
fólk heilsast og fer að spjalla
saman. Stundum er hægt að út-
búa heilu ættarsögurnar með
gömlum ljósmyndum þar sem
ættarmótið er endapunktur.
Ágæt æfing við myndatöku
er stutt ferðalög, til dæmis
veiðiferð, tívolíferð, bæjarferð
eða berjaferð, sýna menn
undirbúa sig í upphafi og ffam-
vindu ferðarinnar til loka.
Nota nærmyndir óspart og láta
fólk eða ökutæki aka út úr
myndinni, til dæmis frá vinstri
til hægri og inn í næsta mynd-
skeið í sömu stefhu í öðru um-
hverfi.
Ferðamyndir
Áður en iagt er af stað í
ferðalag er vert að hyggja að
aukarafhlöðum, spólum og
hleðslutæki. Ef ætlunin er að
ferðast erlendis þarf að kynna
sér spennu í rafkerfi viðkom-
andi lands svo hægt sé að sýna
og endurhlaða rafhlöðurnar.
Við flest nýrri tæki má nota
spennubreyti og þá er hægt að
nota bæði kerfin (110 og
220). Þá getur borgað sig að
tryggja ný og dýr tæki. Mynda-
vélina þarf að hafa í góðri
tösku sem handfarangur og
skrá hana á útleið í tollinum til
þess að þurfa ekki að borga
toll við heimkomu.
Það sem þarf
að varast
Allt óþarfa hnjask getur
skemmt viðkvæma vélina.
Sandur, vatn og mikill hiti fara
illa með tækin eða geta
skemmt þau. Varhugavert er
að hafa spólur og myndavél í
afturglugga ökutækja vegna
hita og einnig býður það þjóf-
um heim. Sterk segulhrif, til
dæmis frá rafmótor eða hátöl-
urum, geta skemmt spólur.
Undirbúningur
myndatökunnar
Gott er að byrja myndina á
texta, einkum ef á að klippa í
38 VIKAN 19.TBL1989