Vikan - 02.11.1989, Síða 26
LEIKLI5T
„Ami Samúelsson í Bíóhöllinni er góður vinur minn og stuðningsmaður," segir
Jon Voight.
Jafnvel misheppnaðar
myndir eru mikilvægar
Hver af hinum mörgu myndum sem þú
hefur leikið í um ævina hefúr gefið þér
mest og hverri manstu best eftir?
„Ég hef alltaf sett mig vel inn í það sem
ég er að vinna við hverju sinni og ég hef
alltaf hlakkað mikið til að takast á við hvert
nýtt verkefni sem í vændum er og tekið
hverja kvikmynd alvarlega. Þegar ég lít til
baka spyr ég sjálfan mig oft hvers vegna ég
hafi tekið þetta ákveðna verkefhi að mér
og hvað það hafi verið við handritið og
fólkið sem ég vann með sem var svona
sérstakt. Yfirleitt hefúr svarið alltaf verið á
einn veg: Mér fannst ég geta sagt fólki eitt-
hvað með leik mínum í viðkomandi kvik-
mynd. Ég hef verið heppinn með kvik-
myndir og alltaf fúndið eða verið boðið
eitthvert verkefni sem mig hefur langað til
að takast á við. Þegar ég skoða vinnu mína
síðastliðin ár get ég líka sagt: Svona vildi
ég gera þetta og svona gerði ég það. Þrátt
fyrir að flestar myndir mínar hafi náð hylli
almennings hef ég aldrei ofmetnast heldur
sagt við sjálfan mig að ég hafi haft á réttu
að standa. Fólk hefúr sýnt greinilegan
áhuga á því að fá að vita þetta. Auðvitað er
velgengnin ánægjuleg og góð en ég er líka
þakklátur fólkinu fýrir að hafa skilið hvað
ég var að túlka.
Þegar árangur næst verður maður þakk-
látur og sáttur við sjálfan sig og veit þá líka
að öll sú mikla vinna sem liggur að baki
verkinu var þess virði að leggja á sig. Kvik-
myndir eins og Midnight Cowboy, Com-
ing Home, The Champ og Runaway Train
eru allar mjög áhrifaríkar enda liggur
ómæld vinna að baki þeim. Ég lék líka í
myndum sem urðu ekki jafú vinsælar en
nógu margir sáu til að gera mig ánægðan
þó að ffamleiðendumir hafi ekki verið
sammála. Ég hef líka leikið í myndum sem
algerlega misheppnuðust hvað aðsókn
varðar en þó finnst mér að þar hafi ég eins
og í hinum myndunum verið að segja eitt-
hvað ákveðið og því er ég ánægður með
þær að vissu leyti. Ég hef einnig átt þátt í
gerð kvikmynda alveg ffá upphafi, einfald-
lega vegna þess að mér hefúr þótt handrit-
ið og söguþráðurinn bjóða upp á það að úr
mætti gera góða kvikmynd. Þannig var
þetta t.d. með Midnight Cowboy. Sú mynd
átti aldrei að fara í ffamleiðslu en það var
aðallega vegna þrekvirkis okkar Dustin
Hoflfnan að hún var á endanum fest á
filmu. Eins og kom í ljós gekk myndin
feiknavel og var tilnefúd til óskarsverð-
launa.
Núna, þegar ég er spurður hvort ég vilji
leika í kvikmynd sem er lík þeim fyrri sem
ég hef leikið í, afþakka ég yfirleitt boðið
mjög kurteislega. Ástæðan er einfaldlega
sú að ég lít á leikferil minn sem klifúr upp
á við og því vil ég takast á við ný verkefúi.
Mér finnst alltaf gaman að takast á við eitt-
hvað nýtt enda finnst mér að lífið eigi að
vera þannig. Og ef á heildina er litið finnst
mér ég hafa gert margt skemmtilegt um
ævina. Ég er þó ánægður með að þurfa
ekki að ganga í gegnum þetta allt saman
aftur heldur leita á mið nýrra verkefna."
Alltaf viljað vera
öðrum að liði
Um hvað Qallar Eternity, nýjasta kvik-
mynd þín?
„Það er kannski einfaldast að lýsa henni
með orðunum sem slegið er upp í auglýs-
ingu hér á kvikmyndamarkaðnum í Los
Angeles: Karma. Dejavu. Endurholdgun.
Stjörnuáætlun. Sálarundur. Guðskraftur-
inn. Er þetta allt satt? Etemity = Eilífð.
Hvað á þetta allt saman að þýða? gæti
maður spurt sjálfan sig. Hvað er það sem
gæti hugsanlega búið yfir öllu þessu? Fyrir-
„Mest hef ég lært af þeim mistökum sem
mér hafa orðið á.“
bæri sem þessi fyrirfinnast eflaust í hugum
okkar allra því fólk er nú orðið mjög opið
fyrir alls konar upplýsingum £rá öllum
heimshornum og um leið mismunandi
hugmyndafræði. Hvers vegna veit ég ekki.
Ég veit ekki af hverju ákveðnir hlutir ger-
ast á ákveðnum tíma í sögunni en núna á
þessum tíma, í okkar sögu, í okkar lífi og
á okkar plánetu, eru margir sem hafa
ákveðnar skoðanir á þessum yfirskilvitlegu
hugtökum. Margar þessara skoðana eru
auðsjáanlega kjánaleg nálgun á þessum
yfirskilvitlegu fýrirbærum og eru sýnilega
misnotaðar því þær virðast ekki hafa bæt-
andi áhrif á mannkynið. Margir eru að
gaspra um þessa hluti en virðast einungis
hafa það ömurlega markmið að græða á
þessu og um leið krefjast þeir að fólk líti
sömu augum á þessi mál og þeir gera. Nú
eru til mjög margar bækur sem fjalla um
yfirskilvitleg fýrirbæri, það sýnir að það er
greinilega mikill áhugi á þessum málum.
Hvað sjálfan mig varðar hefúr þessi
kvikmynd haft mjög mikil áhrif á mig. Til-
finningar mínar til þessarar myndar eru
sterkari en þær hafa verið fyrir nokkru
öðru verki sem ég hef átt þátt t áður. Eins
og ég sagði fyrr þá langaði mig strax bam
að aldri að geta miðlað upplýsingum til
fólks. Þó gerði ég mér í upphafi ekki Ijóst
að það væri ástæðan fyrir því að ég fór í
leiklistina. Samt hefur verið boðskapur í
öllum myndunum sem ég hef leikið í sem
mig hefúr langað að koma á framfæri. Og
þegar ég lít til baka hugsa ég: „Einmitt, allt
þetta hefur leitt til þess sem nú er að ger-
ast og nú skil ég af hverju.“ Mig hefúr líka
alltaf langað til að vera maður sem getur
orðið öðrum að liði í lífinu.
í myndinni koma fram margar hug-
myndir sem ég hef verið að velta fyrir mér
og ég held að ég sé búinn að melta þær
nægilega til að geta miðlað þeim. Þetta er
skemmtileg mynd sem vonandi snertir
fólk, því hún er í raun rómantísk ástarsaga
\
26 VIKAN 22. TBL 1989