Vikan - 02.11.1989, Blaðsíða 42
5TJÖRMUMERKI
Athafnir, fram-
kvæmdaorka,
kynorka, þrár,
arátta, kraftur,
jálfsbjargarhvöt.
íNeikvæðar hliðar:
Eigingirni, deilu-
og árásargirni,
grófleiki, rudda-
skapur.
PLÚTÓ
Ínim
Völd, stjórnun,
dauði, endur-
sköpun, dýpt,
einbeiting, rann-
sóknir, sálfræði.
Neikvæðar hliðar:
Öfgar, frekja,
sjálfseyðilegging,
niðurrif, bæling,
lokun.
ÓSVEIGJANLEGIR
í STÍL OG
FRAMKOMU
ÞÓRDÍS BACHMANN TÓK SAMAN
Sporðdrekinn er átt-
unda stjörnumerkið;
stöðugt vatn. Þeir sem
fæddir eru í þessu
merki eru fastir fyrir og
ósveigjanlegir í stíl og viðhorf-
um. Vatnið gerir þá tilfinninga-
næma; þeir kynnast þrám, öf-
und og hefhd. Þeir vilja vera
hreinskilnir og eru lítið fyrir
yfirborðsmennsku. Vatns-
merkin þrjú, krabbi, sporð-
dreki og fiskur, eru innhverf
og því dul og varkár. Næmleiki
þeirra veldur því einnig að þau
eru oft á varðbergi gagnvart
umheiminum. Þetta þýðir í
raun að sporðdrekinn getur
verið dulur og lokaður gagn-
vart ókunnugum eða þeim
sem skilja hann ekki en að
öðru leyti kjarnyrtur og opin-
skár.
Vatnsmerkin eru oft þung í
skapi og mislynd en enginn er
jafh næmur og skilningsríkur
og þau ef því er að skipta. Vatn
er eftirgefanlegt en ber um
leið í sér mikinn kraft. Vatns-
merkin búa því yfir mikilli
seiglu. En þegar steini er kast-
að í vatn gárast það. Einn af
veikleikjum vatnsmerkjanna
er einmitt sá að þau eru of
gjörn á að láta áhrif frá um-
hverfinu koma sér úr jafhvægi
og fyrir vikið ríkir með þeim
stöðug ólga og tilfinninga-
stormar.
Allir sporðdrekar
eru kynþokkafullir
Allir sporðdrekar eru kyn-
þokkafullir, það veit hvert
mannsbarn. í rauninni er þetta
hið eina sem nokkurn tíma er
sagt um sporðdrekana. Er
þetta staðreynd? Og ef svo er,
hvers vegna? Svarið er já,
vegna Mars, en þar með er
ekki öll sagan sögð.
Orka sporðdrekans er aðal-
lega tilfinningaorka (vegna
vatnsins) sem beint er per-
sónulega og líkamlega (vegna
þess að Mars stjórnar fíkaman-
um) og þess vegna túlka hin
ellefu merkin hana sem einu
öflugu líkamlegu/tilfinninga-
Frh. á næstu opnu
BIRGITTA HEIDE UM PÉTUR EINARSSON LEIKARA:
„Kom með rósir
ó hverjum degi“
Hrútskonan Birgitta Heide
ballettdansari er sambýliskona
sporðdrekans Péturs Einars-
sonar leikara. Pétur er fæddur
■ 31. október 1940. Hrúti og
sporðdreka er báðum stjórnað
af hinni herskáu plánetu Mars
og það er því engin ástæða fyr-
ir Birgittu að óttast að hún
kaffæri Pétur með Marsork-
unni — hann ætti að vera alveg
jafn sterkur og hún. Við spyrj-
um Birgittu hvort hún kannist
við nokkrar dæmigerðar lynd-
iseinkunnir sporðdrekans í fari
Péturs.
Ástríðufullur áhugi á öllu
milli himins og jarðar: Pétur
stjórnast af alveg ótrúlegri
forvitni um allt og hefúr mikla
þekkingarþörf. Ég segi stund-
40 VIKAN 22. TBL 1989
um að hann sé gullnáma af
ónauðsynlegum upplýsingum.
Öfgakenndar tilfinningar,
hann elskar eða hatar: Þetta á
ekki við um Pétur en ég held
líka að hann hafi unnið að því
að jafha tilfinningarnar út og
hugsanlega sá hann hlutina
meira svarta og hvíta þegar
hann var yngri. Hann á þó til
að halda tveggja tíma ræður
um skoðanir sínar. Mér finnst
Pétur mikill 'hugsjónamaður
og skoðanir hans eru mjög
ákveðnar.
Hann hefur ekki hugsað um
annað en rómantík síðan hann
lagði þríhjólið á hilluna: Pétur
er afar rómantískur. í upphafi
tilhugalífsins kom hann með
Frh. á næstu opnu.