Vikan - 02.11.1989, Blaðsíða 32
ÞÝÐING OG LJÓSMYNDIR:
ÞÓRDlS ÁGÚSTSDÓTTIR
Hefur þú
áhuga á að
fá að vita hvort
þú ert kvenleg
kona? Ef svo er
skaltu taka þátt í
eftirfarandi leik
sem saminn var
af Pierre
Rouchaléou.
ERT ÞU KVENLEG?
Hleypidómar þínir
Ef athugað er hvernig þú
dæmir karlmenn er hægt að
gera sér betur grein fyrir því á
hvem hátt þú skynjar sjálfa
þig sem kynveru. Hér á eftir
fara flmm staðhæfingar sem
þú metur og merkir ef þú
getur og vilt og þá annaðhvort
með R (rétt) eða V (rangt).
□ R □ V Karlmenn kunna
ekki að tala um ást.
□ R □ V Karlmenn eru í eðli
sínu hneigðir að framhjáhaldi.
□ R □ V Hjarta karlmanns er
viðkvæmara en hjarta konu.
□ R □ V Karlmenn eru
fúllvissir um að konur séu
lítils megnugar.
□ R □ V Karlmenn hræðast
kvenlega fegurð.
Stigafjöldi: Efþú hefur
tekið afstöðu til meirihluta
þessara staðhœfinga bendir
það til að þú sért nokkuð
lífsreynd og vör um þig.
Reiknaðu þér 5 stig fyrir
hverja staðhcefingu sem þú
merktir við, hvemig svo sem
þú merktir.
Heiti sem ekki
blekkja neinn
Þú hefur 30 sekúndur til að
skrifa niður öll þau heiti sem
þér finnst tengjast orðinu
karlmaður, eins og til dæmis:
gæi, maki, ást...
Stigafjöldi: Teldu 5 stig
fyrir hvert fundið orð en hins
vegar missir þú 15 stig fyrir
hvert það orð sem vinkona
þín hefur hvíslað að þér.
Hvað finnst þér?
Svaraðu eftirfarandi
spurningum án þess að hugsa
þig of mikið um, breyttu
aldrei svari eða svörum eftir á
og athugaðu ekki aftur þær
spurningar sem þú hefúr
þegar afgreitt.
Mundirðu ákvarða sjálfa þig
sem:
a. Homo Sapiens.
b. Manneskju.
c. Konu.
Hvernig finnst þér mjólkin
best?
a. Beint úr kúnni.
b. Gerilsneydd.
c. Vatnsbætt, það er að segja
léttmjólk.
Ef þú kæmist að því eða hefúr
þegar komist að raun um að
margir hafa sama smekk og
þú, dregur þú þá ályktun að...
a. Nú sé kominn tími til að
breyta um smekk.
b. Þú hafir komið af stað nýrri
tískubylgju.
c. „Allir hinir" séu það
leiðinlegasta af öllu sem til
er.
Hvaða lögun er að þínu mati
kvenlegust?
a. Hringlag.
b. Þríhyrningslag.
c. Egglag.
Besti og eftirminnilegasti
áratugur þessarar aldar var að
þínu mati:
a. Þriðji áratugurinn.
b. Fimmti áratugurinn.
c. Áttundi áratugurinn.
Stigafjöldi: Þú færð 10 stig
Jyrir hvert c svar.
Tilvifnanir
til umhugsunar
Lesið vel og vandlega
eftirfarandi málsgreinar og
krossið við þær sem ykkur
finnst mjög ögrandi — þegar
karlmaður segir þær.
1. Mörg og mismunandi
ástarævintýri í tuttugu ár
leggja konu í rúst en
tuttugu ára hjónaband
gerir hana að því sem er
enn verra; opinberu
minnismerki. Oscar Wilde
2. Lóðréttar fyrirfinnast þær í
öllum stéttum en samhliða
aldrei nokkurn tímann.
Mþhonse Allais
32 VIKAN 22, TBL1989