Vikan - 02.11.1989, Blaðsíða 27
LEIKLI5T
og í senn mjög sorgleg. í henni spila sam-
an tveir kraftar í lífl fjandmannsins, sem
leikinn er af Armand Assante, en hann er
mjög sterk persóna og virkilega þess virði
að kljást við.
Um daginn sátum við og töluðum sam-
an ég og vinur minn og ræddum um það
fólk sem er mér mjög mikilvægt og hefur
skipt mig miklu máli varðandi líísstíl minn,
fólk eins og móður Teresu, Gandhi og
Abraham Joshua Hescuel; stórkostlegt fólk
sem aðhyllist mismunandi trúarbrögð. Við
horfðum á klukkustundarlangt myndband
með viðtali guðfræðings Við Hessul, sem
var góður vinur Martins Luthers King
og Jóhannesar Páls páfa. Hann var ekki
eins þekktur og Gandhi en engu að síður
var hann óhemju ötull maður sem fáerði
okkur nýja lífesýn, sem er einmitt það sem
við stefinum að með gerð kvikmyndarinn-
ar Eternity. Við erum að reyna að vekja
fólk til umhugsunar, vekja tilfinningar ekki
ólíkar þeim sem vöknuðu hjá vini mínum
þegar hann horfði á þetta viðtal. Það sem
við gerðum var að búa til kvikmynd sem
gæti staðið við hlið þessara stórmenna
vegna túlkunar sinnar á því góða.
Kvikmyndir svala ævintýraþrá okkar en
þær veita okkur um leið ákveðnar upplýs-
ingar. Pað er það sem við stefnum að hjá
PAUL kvikmyndafyrirtækinu og með
myndinni Eternity. Getum við gert þetta?
Það vitum við ekki en við leggjum allt
undir, ekki bara peninga heldur einnig
ómælda orku.“
Kem örugglega til íslands
Þið ætlið að ferðast talsvert og kynna
myndina. Verður ísland meðal áfanga-
staða?
„Við komum alveg örugglega til íslands,
einfaldlega vegna þess að Árni Samúelsson
í Bíóhöllinni hefúr stutt okkur frá upphafi
við gerð myndarinnar og hann og fjöl-
Jon Voight í myndinni Table for Five.
Jon Voight með íslensku vinunum sinum á American Film Market. F.v.: Guðný,
eiginkona Árna, Alfreð, sonur þeirra, Elísabet, tvíburasystir hans, Jon, Hanna, eigin-
kona Bjamar sonar Áma sem stendur við hlið hennar, Ingvi Þór og Ámi Samúelsson.
skylda hans eru góðir vinir okkar. Þau hafa
boðið okkur til íslands og við erum stað-
ráðin í að koma. Ég hlakka mikið til, bæði
vegna þess að ég hef heyrt svo mikið um
ísland og mér finnst mjög gaman að
ferðast. Auk þess sem mig langar að heim-
sækja vini mína á íslandi. Mér finnst ís-
lendingar sérstaklega hlýtt og aðlaðandi
fólk en eins og við vitum þá hefúr hver
þjóð sinn tjáningarstíl þó að innst inni
séum við öll eins. Þegar ég hitti fólk ffá
þjóðum sem eru mikið í sviðsljósinu, eins
og til dæmis firá Bandaríkjunum og Frakk-
landi, þá virkar það á mig sem hálfhroka-
fúllt. íslendingar eru rólegra fólk og mark-
vissara. Þó held ég að íslendingar séu
mjög skemmtilegir og að þið komið til
dyranna eins og þið eruð klædd. Ég vona
satt að segja að skoðun mín breytist ekki
þegar ég kem til íslands."
Daglega reynir fjöldinn allur af fólki að
komast í kvikmyndabransann og margir
eiga þann draum heitastan að verða kvik-
myndaleikarar. Eru það einungis þeir
heppnu sem komast að?
„Séu það örlög þín að verða leikari þá er
ekkert við því að gera. Að verða leikari,
góður leikari, krefet mikillar vinnu og því
verður þú að leggja mikið á þig alveg eins
og við öll önnur störf sem þú vilt ná
árangri í. Ég þurfti að leggja mikið á mig til
þess að verða leikari og stór hluti þar af er
þolinmæði en hún fýlgir fast á eftir nám-
inu. Einnig lærði ég margt af mistökunum
sem ég gerði — ég var alltaf að gera mistök.
Sem betur fer fékk ég stuðning, eins og
fýrr segir.
Ef einhver vill virkilega verða leikari og
ekkert annað þá segi ég við hann að ef það
er þetta sem hann vill þá sé um að gera að
reyna. Ég býð fram aðstoð mína og reyni
að miðla reynslu minni. Ef þig langar að
verða leikari þá verður þú að fara þínar
leiðir og móta þinn eigin stíl. Þó svo að
þér verði ekki ágengt sem leikari þá hefur
þú að minnsta kosti öðlast skilning á því
hvers það krefet að verða leikari; það er
ekki hlaupið að því frekar en mörgu öðru
í lífinu, en mikið er það gaman...“
Það væri leikur einn að tala við Jon
Voight langt fram á nótt en allt tekur enda.
Þegar blaðamaður stendur upp og kveður
eru tilfinningarnar í uppnámi, ekki ósvip-
aðar þeim sem maður upplifir þegar mað-
ur kemur út úr bíói í glaðasólskin eftir
góða bíómynd. Það tekur tíma að átta sig á
hlutunum og honum hefur tekist að leiða
mann inn í ókunnan heim. Þá er bara að
bíða eftir því að Jon Voight komi til
íslands...
22. TBL 1989 VIKAN 27