Vikan


Vikan - 02.11.1989, Blaðsíða 41

Vikan - 02.11.1989, Blaðsíða 41
5MA5AC5A hafði jafnvel reynt að hringja til móður hennar en sú góða kona, sem var iráskilin kvenréttindakona, var á ráðstefnu um getnaðarvarnir í öðrum bæ og svarþjón- ustan sagðist ekki vita hvenær hennar væri von aftur. Virginía hélt fast við þá fullyrð- ingu að herra McElroy hefði reynt að nauðga sér og eins og Paul benti á gerði þetta málin svolítið flóknari. Virginía át stöðugt allt sumarið. Þegar hjónin komu í bæinn aftur eftir verslunar- mannahelgina var hún að nálgast 150 kíló og komst varla úr bælinu. Frú McElroy sagði: „Virginía, þú verður að hætta.“ Virg- inía sendi frá sér sérstaklega skerandi skaðræðisvein. Herra McElroy hljóp út í bakarí og kom heim með dúsín af mokka- kökum. Það virtist vera það eina sem hægt væri að gera. Paul kom heim í tvo daga í september. Hann hafði ákveðið að ganga í friðarsveit- irnar í stað þess að fara í háskóla. Hann var á leið til æflngabúða úti á landi og vonaðist síðan til að komast á stað í Suður-Ameríku, þar sem púl og erflðleikar biðu. Síðustu nóttina hans heima lét ffú McEl- roy hann hafa það óþvegið. „Fjandinn hirði það,“ sagðí hún, „þú komst með hana hingað og þú verður að losa okkur við hana.“ „Það kemur þér sennilega mjög á óvart að frétta,“ sagði Paul, „að í heiminum bíða mín mörg mikilvægari verkefni en að hugsa um persónuleg vandamál þín.“ „Mín vandamál! Nei, heyrðu nú, þú há- fleygi skýjaglópur...“ „Svona viðræður eru tilgangslausar," sagði Paul. „Það er engin furða þó heimur- inn sé á heljarþröm. Hvenær ætlið þið að hætta þessum barnaskap?" Hann hvarf til herbergis síns. Hjónin fóru á Bítlamynd og höfðu jafhvel meira gaman af en síðast. Með tímanum vöndust McElroy-hjónin Virginíu nokkurn veginn. Fyrir hvert partí drösluðu þau henni upp í sófa þar sem hún gat tekið við sykruðum gjöfúm gest- anna og horft á dansinn en hún var nú orð- in of belgvíð til að geta tekið þátt í honum. Hún leit vel út í sófanum, í tjaldi líkustum kjól sem hún gekk nú í hverja stund, sporðrenndi ábætisréttum og brosti sínu átakanlegasta brosi. Atómskáldið Warhol gerði kvikmynd um Virginíu þar sem hún sat í sófanum og svalg sítrónubúðinga. Hann notaði sömu nærmyndatökuna aftur og aftur í þrjá og hálfan tíma. Fólk komst líka að raun um skyggni hennar. Auk þess að lesa í lófa var hún forvitri og gat sagt fyrir um hvað fólk mundi gera nokkru síðar. Og sjá, nokkru síðar stóð fólk sig að því að vera einmitt að gera það. Einu sinni sagði hún dr. Strauss-Huppe, sem bjó á neðri hæðinni, að hann myndi samrekkja frú McElroy. Herra McElroy drakk heil ósköp þessa nótt og vissi aldrei hvort spá- in rættist en engu að síður stóð honum ekki á sama. Brátt fór Virginía að fá gesti, jafnvel þó McElroy-hjónin væru alls ekki að halda partí. Fjöldi þeirra óx og óx. Þeir komu hvenær sólarhringsins sem var, dag eða Virginía át stöðugt allt sumarið. Þegar hjónin komu í bæinn aftur eftir verslunarmanna- helgina var hún að nálgast 150 kíló og komst varla úr bælinu. nótt, og komu alltaf með eitthvað gott handa Virginíu að borða. Virginía naut þessa nýja lífe. Hún æpti sjaldan nú orðið og ef svo bar við var það venjulega bara í gamni. En McElroy-hjónin þreyttust æ meir á þessu nýja lífi Virginíu því þau þurftu að hugsa um hana, koma henni í rúmið og úr, klæða hana og hátta og svo framvegis því engin vinnukona fékkst lengur til að vinna í húsinu, ekki einu sinni nein ræstingarkona. Það rann upp fyrir þeim að allur þeirra tími fór í að hugsa um Virginíu. Einn og einn morgun komst herra McElroy ekki einu sinni í vinnuna. Þau skruppu varla á Bítlamyndir nú orðið né í partí hjá öðrum og rennilegi græni jagúarinn stóð svo til óhreyfður í skúrnum. Þau hlustuðu ekki einu sinni á Rollingana í útvarpinu. Virginía hafði ákveðið að þeir væru gamaldags. Eina nóttina, þegar búið var að hátta Virginíu, sám hjónin lengi saman á tali. „Þetta getur ekki gengið svona,“ sagði frú McElroy. Þau ákváðu að strjúka strax um nóttina. Hvort um sig setti niður í tösku og þau læddust á tánum út úr íbúðinni og þrýstu á lyftuhnappinn. Rétt í því að þau gengu inn í lyftuna byrjaði Virginía að veina. Til allrar hamingju var enginn lyftu- vörður. Frú McElroy ýtti á neðstuhæðar- hnappinn og niður fóru þau og heyrðu ópin í Virginíu dvína smám saman. Dyravörðurinn náði í leigubíl og þau létu hann aka sér út á flugvöll. Hann vildi fara til Flórída á baðströnd en hún vildi fara til Bahamaeyja. Þau ákváðu að fara til Flórída og svo til Bahamaeyja. Það var ein- mitt miðnæturflug til Miami. McElroy keypti miðana og þau voru að stíga um borð þegar lögreglan kom. „Herra Philip McElroy, ég er hræddur um að yðar sé þarfhast heima. Það er dóttir yðar.“ „Hún er ekki dóttir... Ó, drottinn minn dýri,“ sagði McElroy. Hann hugsaði um að reyna spretthlaúp en sá að það var þýðing- arlaust. Þau fóru inn til bæjarins aftur í lögreglu- bílnum. „Þegar fólk er svona á sig komið," sagði lögregluþjónninn fúllur vandlæting- ar, „þá er ekki hægt að stinga af og skilja það eftir. Það var eins gott að þessi læknir náði í okkur í tæka tíð.“ Lögregluþjónamir fylgdu þeim upp í lyftunni. Dr. Strauss- Huppe á hæðinni fýrir neðan beið í íbúð- inni. Hann hafði gefið Virginíu róandi lyf og tertubita og hún svaf sætt í þeirra eigin rúmi. Hjónin þökkuðu löggunni og Strauss-Huppe og fýlgdu þeim til dyra. Frú McElroy vantaði eitthvað róandi. Hún bjóst við að dr. Strauss-Huppe ætti eitthvað slíkt og til að spara honum aðra ferð læddist hún niður í íbúðina hans. McElroy stóð í forstofunni og hugsaði um hvað hann ætti að gera þegar hann heyrði hávaða nokkurn úr sínu fyrrverandi svefh- herbergi. Það var Virginía að bylta sér í fyrrverandi rúminu hans. Hann læddist að dyrunum og kíkti inn. „Á morgun," kallaði Virginía syfjulega, „fáið þið að heyra hvernig hægt er að æpa.“ □ 22. TBL 1989 VIKAN 39
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.