Vikan


Vikan - 02.11.1989, Blaðsíða 45

Vikan - 02.11.1989, Blaðsíða 45
5TJÖRHUMERKI fyrstu sýn að þarna er lifandi kominn hennar tilvonandi maki. Það er hið dularfulla sjötta skilningarvit sem sendir henni þessi boð og hún sendir þau samstundis frá sér. Annað- hvort töfrar hún menn alger- lega og þá svimar af undirgefhi eða hún hræðir úr þeim líftór- una og þá langar mest til að kalla á hjálp. Þeir ættu þó að vera þakklátir fyrir að hún álíti þá augnatillitsins virði. Kona í sporðdrekamerkinu sækist eft- ir ffamsækni og hugrekki og getur ekki fyrirgefið veikleika í eðli karlmanns. Allir nærstadd- ir munu vera vissir um að við- komandi maður sé í algerum sérflokki. Hún lendir oft í vafasömum ævintýrum í tilraunum sínum til að grandskoða lífið og til- veruna og þar sem hún kann ekki að hræðast getur hún vissulega orðið vitni að ýmsu undarlegu. Dæmigerð sporð- drekakona mun haldast sterk og óflekkuð þrátt fyrir þær uppgötvanir sem hún gerir á lífsleiðinni. Tákn Plútós er hinn sigri hrósandi fugl Fönix sem rís upp úr sínum eigin brunnu líkamsleifum og henn- ar eigin sterki persónuleiki mun sjá til þess að hún rís upp úr ösku tilrauna sinna. Sé gert á hlut hennar gleym- ist henni það seint. Hún ætti að forðast hefnigirni og muna að sé gert á hennar hlut er það skapgerðarbrestur viðkom- andi en ekki hennar. Sporð- drekakonan er líklega sú kon- an í dýrahringnum sem er sjálffi sér nægust, viljasterkust og sjálfsöruggust en þegar hún verður of þrjósk vegnar henni illa. Stundum berst hún áffam af árásargirninni einni saman og því meiri vitleysu sem hún segir þess ákveðnari verður hún í að berjast til sigurs. Þeg- ar hún er ákveðin í þvi að komast til botns í einhverju eða vill hefhd getur hún verið hreinasta andstyggð. Hún get- ur rifið fólk á hol og guð hjálpi þeim sem þá verða á vegi hennar. í kynlífinu sýnir hún á sér tvær hliðar. Annars vegar and- lit frábærrar og kröfúharðrar ástkonu, hins vegar andlit kyn- lausrar meinlætakonu. Hún bregður báðum grímum upp oftar en einu sinni á æviferlin- um. Kynlíf er henni meiri orkugjafi en nokkuð annað en ást og kynlíf er kannski tvennt ólíkt fyrir henni. Hún er ákaflynd kona og reiði er henni hættuleg ef hún fyllist sektarkennd við að láta hana í ljós. Vegna þess að hún býr yfir eldfjalli hið innra get- ur hún hvorki hamið ást sína né reiði fremur en við getum skipað tunglinu að hætta að hafa áhrif á sjávarföll. Hið sér- staka verkefhi sporðdrekakon- unnar er að sigrast á misbeit- ingu valds og ná því stigi að nota vald sitt í þágu ástarinnar, hins sanna heilunarafls. Hugsanlega kemur að því að sporðdrekinn hafi svo mikla stjórn á hlutunum að hann hætti að gera ráð fyrir því að nokkuð geti farið úrskeiðis. Þá Eiður Guðnason Guðmundur G. Þórarinsson Hjörleifur Guttormsson Ingi Bjöm Albertsson Pálmi Jónsson Stefán Valgeirsson Þorsteinn Pálsson Einar Öm Benediktsson Edda Þórarinsdóttir Flosi Ólafsson Guðjón Pedersen Guðrún Ásmundsdóttir Jón Sigurbjömsson Karl Ágúst Úlfsson Maríanna Friðjónsdóttir veit hann að hann getur ráðið við hvað sem er og að hann er nægilega ffóður um svo að segja allt til að hann geti gefið öðrum heilræði og hjálp án þess að þurfa að hafa áhyggjur af sjálfum sér. Þegar hann hef- ur áunnið sér þetta stig sjálfe- trausts er hann í raun farinn úr sporðdrekanum og orðinn að bogmanni, næsta merki í hringnum. Heimildir: Stjömumerkin og áhrif þeirra Stjömumerkin og kynlífið Scorpio eftir Bernard Fitzwalter Pétur Einarsson Valdís Gunnarsdóttir Þómnn M. Magnúsdóttir Richard Burton Marie Curie Dostoyevski Goebbels Mata Hari Katherine Hepburn Robert Kennedy Martin Luther Jawaharlal Nehru Pablo Picasso Theodore Roosevelt Kurt Vonnegut ÞEKKT FÓLK f SPORÐDREKANUM Hrúturinn 21. mars - 19. apríl Þú verður að leysa pen- ingamál þín fljótt, annars áttu á hættu að verða ófær um að mæta óvæntum kostnaði. Gerðu þér ekki of háar hugmyndir um framtíðaráætlanir þínar. Krabbinn 22. júní - 22. júlí Misstu ekki stjórn á þér, ef þú lendir í rifrildi við vinnu- félaga þína þvi það gerir þér lít- ið gagn á þessu stigi málsins. Ferðalag gæti haft góð áhrif á líf þitt. Vogin 23. sept. - 23. okt. Ein hugmynd þín gæti leitt til góðs ef þú aðeins gætir þess að blanda geði þinu við rétt fólk. Félagslífið veldur þér örlitl- um vonbrigðum um þessar mundir. Steingeitin 22. des. - 19. janúar Áhyggjum þínum léttir með tilkomu bréfs, sem þér berst, og þú sérð loks leið út úr erfiðleikum þínum. Taktu lífinu samt með ró og gættu þess að flana ekki að neinu. Nautið 20. apríl - 20. maí Einhver vinur þinn virðist vera að reyna að fá þig með í iðk- un skrýtinna helgisiða. Þú gætir lent í óþægilegum aðstæðum ef þú gáir ekki vel að þér. Heillatala er 8. Ljónið 23. júlí - 22. ágúst Laugardagurinn verður þér erfiður og hlutirnir fara illa á síðustu stundu. Notaðu samt tækifærið og breyttu til í félags- lífinu. Þú hittir nýtt og skemmti- legt fólk. Heillalitur er blár. Sporðdrekinn 24. okt. - 21. nóv. Þessi vika er ekki sérlega hagstæð til að vekja athygli mikilsmetandi manna á málefn- um þínum. Þú ættir því að hafa hægt um þig og sinna heldur tómstundaáhugamálunum. Vatnsberinn 20. janúar - 18. febrúar Þú kynnist mikilvægri persónu og hefur góð áhrif á hana. Kynni ykkar verða til þess að líf þitt tekur allt aðra stefnu en það hefur haft hingað til og allt verður léttbærara. Tvíburarnir 21. maí - 21. júní Þér hættir til að hafa önnur sjónarmið en félagar þínir en það kemur sér vel fyrir þig þessa dagana, þar sem kunningi þinn fer út í vafasöm viðskipti og vill hafa þig með. Meyjan 23. ágúst - 22. sept. Margt mikilvægt krefst athygli þinnar á næstu dögum og þú verður að hafa skipulagsgáf- urnar í fullkomnu lagi. Þín biða miklar annir svo þú ættir að nota hverja frístund til hvíldar. Bogmaðurinn 22. nóv. - 21. des. Gættu þín við áætlanir varðandi mikil útgjöld þar sem stjörnurnar eru þér ekki hag- stæðar í viðskiptum um þessar mundir. Sunnudagurinn verður óvenjulega ánægjulegur. Fiskar 19. febrúar - 20. mars Þér berast upplýsingar um vissan aðila á óvæntan hátt og ættirðu að veita þeim ná- kvæma athygli. Lífið virðist vera að færast í átt til spennandi at- burða. 22. TBL 1989 VIKAN 43 5TJORMU5PA
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.