Vikan


Vikan - 02.11.1989, Side 60

Vikan - 02.11.1989, Side 60
Hljómsveitin Fairground 1 Attraction, sem vakti mikla athygli í fyrra fyrir skemmtilegt gamaldags „sound“ og þó sérstaklega lagið Perfect, er nú hætt störfum og mun ekki taka upp þráðinn að nýju. Ástæðan er víst sú að söngvari bandsins, Eddi Reader, lenti í hörkurifrildi við lagasmiðinn Mark Nevin um daginn við vinnu í hljóðveri og enduðu ósköpin með samstarfeslitum. Johnny Hates Jazz hefúr nú orðið sér úti um nýjan songvara í stað þess gamla (Clark Datchler) sem ætlar að reyna fyrir sér einn síns liðs. Nýi maðurinn heitir Phil Thornalley og hefur hann getið sér gott orð fyrir útsetningar á lögum The Cure, Robbie Nevill og Prefáb Sprout. Fyrsta lag Johnny Hates Jazz með Phil innanborðs er Turn the Tide sem ætti að vera farið að heyrast í viðtækjum les- enda. TEXTI: ANNA BJÖRK Skosku drengirnir í Wet Wet Wet hafa nú lokið upptök- um á nýrri breiðskífu sem vænt- anleg er í verslanir innan tíðar. Ber hún nafhið Hofding Back the River. Söngkonan Karyn White, sem einna þekktust er fýrir lögin Superwoman og Secret Rendezvous, er svo sem enginn nýgræðingur í poppbransanum því áður söng hún gjarnan bakraddir hjá þekktum köppum eins og Julio Iglesias hinum spænska, Commodores ljúflingunum og Ray Parker Jr. Michael Hutchence, sæti söngvarinn úr áströlsku hljómsveitinni Irtxs, er nú að sjóða saman nýja grúppu sem hefur hlotið nafhið Max Q. Michael er þó ekki hættur í Inxs heldur aðeins í fríi. Hann segist iða af sköpunarþrá og hann langi til að gera öðruvísi hluti í tónlistinni. Max Q á því að svala þessari fýsn hans og uppfylla leynda drauma. Michael vill ekki að mönnum detti Inxs í hug í hvert sinn er hann birtist og hefur því gjörbreytt útliti sínu. Nú er hann næstum sköll- óttur eftir að hafa losað sig við hnetubrúna slöngulokkana. Synd og skömm!! POPP Þreyttir ökumenn geta hreifilega sofnaö undir stýri. Ég skil aö þaö geti verið hættulegt! 58 VIKAN 22.TBL

x

Vikan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.