Vikan


Vikan - 22.03.1990, Page 64

Vikan - 22.03.1990, Page 64
skýrir að nokkru hvers vegna ávöxturinn er ekki ræktaður víða né fluttur víða. Mangóstín er í laginu líkt og epli. Að ofan ber hann krans pappírskenndra grænna bikar- blaða. Seigt, rauðbrúnt hýðið fær á sig fjólurauðan blæ þegar ávöxturinn þroskast. Innan við hýðið er þykkt lag af möttum, bleikum kjarna sem breytir fljótt um lit, en hann ver bústnar, rjómahvítar og safaríkar ávaxtasneiðar. Vanalega eru flmm óreglulegar sneiðar í ávextinum og í sumum þeirra eru flatir steinar. Dálítið er af trefjum í ávextinum en hann er svalandi og bragðgóður. Að kaupa ávöxt: Velj- ið nokkuð mjúkan ávöxt með hýði sem ekki sér á. Sé hýðið orð- ið skemmt skemmir það ávöxtinn út ffá sér. Geymið ávöxtinn í ís- skáp en neytið hans inn- an fárra daga. Þegar lychee og ram- bútan eru þroskaðir á að nægja að rjúfa hýðið með fingrunum til að ná ávextinum út en þar sem búast má við að talsvert af safa komi með er best að hafa skál undir til að hann fari ekki til spillis. Skerið ávextina í bita og fjar- lægið steina og hýði sem kynni að hafa orðið eftir. Þessa safaríku ávexti má nota með öðrum bragðmild- um ávöxtum í ávaxtasalat, í hefðbundna súr-sæta kín- verska kjúklinga- eða andarétti eða í aðra kryddrétti. Lychee fest einnig niðursoðið. Mangóstín ætti einnig að vera hægt að opna með fingr- nesíu, Mið-Ameríku og á Sri Lanka. Það sem einkennir þennan ávöxt eru mjúkir, rauðbrúnir angar sem þekja mjúkt, leðurkennt hýðið. Ram- bútan er heldur stærri ávöxtur en lychee. Að velja ávöxt: Kaupið að- eins ávexti sem eru ferskir, þéttir í sér og heilir. Lychee, rambútan og mangóstín eru bragðmildir ávextir. strekkt og heilt og gefa aðeins eftir þegar þrýst er á það. Borðið alla þessa ávexti fljót- lega eftir að þeir eru keyptir. RAMBÚTAN (nephelium lap- aceum) líkist litlu, loðnu dýri úr fjarlægð. Ávöxturinn er ræktaður í Malaysíu, Indó- MANGÓSTÍN (garcinia mon- gostana) er ekki ósvipaður ávöxtur og lychee en þeir eru þó ekkert skyldir. Ávöxturinn kemur frá Malaysíu en vex um alla Suðaustur-Asíu og í Vest- ur-Indíum. Það tekur trén, sem bera mangóstín-ávöxtinn, 15 ár að ná fullum þroska - sem í verslunum sjást oft skrítnir og framandi ávextir sem fæstir þora að kaupa nema þeir sem þekkja. Hér á eftir fer lýsing á þrem framandi ávöxtum sem ætti að gera það að verkum að fleiri þori að kynna sér þessa safaríku og bragðmildu austrænu ávexti. Lychee, rambútan og mangóstín gefa ávaxta- skálinni framandi og lokkandi yflrbragð, sér- staklega yflr dimmustu vetrarmánuðina. Oft eru þessir ávextir flokkaðir saman vegna austræns uppruna þeirra en mangóstín er af gutti- ferae-ætt og hinir af sapindaceae-fjölskyid- unni. LYCHEE (litchi chin- ensis, sem er líka þekkt sem lichees eða litchis) eru algengastir. Þeir hafa verið ræktaðir í Kína í meira en 2000 ár og þar er litið á þá sem tákn um rómantík. Nú eru þessir ávextir rækt- aðir á Madagaskar, í Bandaríkjunum, Suður- Afríku og í Austurlönd- um. Þetta eru sporöskju- lagaðir, um 2,5—4 cm langir ávextir og ferskir hafa þeir um sig þunnt, stökkt, hnúðótt, bleik- brúnt hýði. Innan í því er perluhvítur, gljáandi ávöxt- ur, svipaður stóru vínberi, utan um sléttan, brúnan stein. Ávöxturinn er þéttur í sér og dálítið hlaupkenndur, ilmar vel og er bragðmikill. Að velja ávöxt: Leitið að ávexti sem er ferskur, stinnur og sér ekki á. Hýðið á að vera 62 VIKAN 6. TBL. 1990

x

Vikan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.