Vikan - 17.05.1990, Page 14
TVÍBURINN ÁSBJÖRN MORTHENS
EG HEF EKKI
HUGMYND UM
HVEREGER...
Tvíburinn Ásbjörn Morthens er fæddur 6.6.
1956. Hann er rísandi krabbi og með Venus
eða listaplánetuna í krabba, tungl í nauti,
Merkúr í tvíbura og Mars í fiskum sem er staða
sem fjölmargt lista- og leikhúsfólk hefur og má
þar nefna Bob Dylan, Megas, Vincent Van
Gogh og Vigdísi Finnbogadóttur.
Um tungl í nauti er sagt að viðkomandi ein-
staklingur hneigist til viðkvæmni og leiti að ör-
uggum og langvarandi samböndum. Tilfinning-
ar þeirra eru stöðugar en þeir eru afar þrjóskir
og ákveðnir. Þeim er ráðlagt að reyna að víkka
sjóndeildarhring sinn og að taka stundum
áhættu!
Venus og rísandi í krabba bendir til djúpra
tilfinninga og sterkra fjölskyldubanda. Þó þetta
fólk taki ástina mjög alvarlega á það þó líklega
auðvelt með að komast yfir vonbrigði. Fólk
með Venus í krabba er skapgott og þess
vegna yfirleitt vinsælt.
Merkúr, pláneta hugans, er í sínu eigin
merki í tvíbura, og þetta er þar af leiðandi sterk
staða fyrir andlegt atgervi. Fólk með þessa
stöðu er fljótt að hugsa og vegna þess að það
dáir rökhugsun getur það orðið frábærir kenn-
arar, skáld, blaðamenn og lögmenn. Fólk með
sterkan Merkúr getur einnig verið mjög lagið í
höndunum og þegar Merkúr einbeitir sér að
röddinni kemur þar stórkostlegur söngvari eða
leikari. Fólk með þessa stöðu hefur tilhneig-
ingu til aö lifa um of á greindarplaninu, slík
áhersla er lögð á hugann á kostnað alls
annars. Þó vegur þarna upp á móti að þegar
Merkúr er í góðri afstöðu standa fáir hugsuðir
honum á sporði.
Mars (framkvæmdaorka) í fiskum í 10. húsi
er sérkennileg staða að því leyti að þarna
kemst Mars eins nálægt því að vera hlutlaus
og mögulegt er. Mars er eldur og dýnamík;
Fiskarnir vatnskenndir, sálrænir og sveigjan-
legir. Yfirleitt þýðir þessi staða því einhverja
erfiðleika við að koma áætlunum í
framkvæmd. Þó margir með Mars í fiskum njóti
mikillar veraldlegrar velgengni er þetta veik
staða og má kannski segja að það fólk nái
markmiði sínu vegna styrks annarra þátta f
kortinu eða vegna þess að það er fulltrúar til-
finninga annarra (leikarar) en ekki sinna eigin.
Meðal þekktra aðila með Mars í fiskum eru auk
þeirra sem að ofan eru taldir rithöfundarnir
John Steinbeck og Gertrude Stein og leikkon-
an Elizabeth Taylor. Tfunda húsið er þjóð-
félagshúsið og þar er einkennandi að oft beitir
Neptúnus í 10. húsi sér í listum, hjálparstörfum
og andlegum málum. Þetta fólk fer yfirleitt ekki
af stað og breytir heiminum, heldur breytir
heimurinn því. Þó gefur þessi staða mikið inn-
sæi hjá rithöfundum og hæfileikann til að tjá
sig fínlega og af miklu ímyndunarafli.
Bubbi spjallaði stuttlega við okkur um
stjörnukortið sitt. Það eru miklar andstæður í
korti hans svo Vikunni fannst liggja beint við að
spyrja: Hver er Bubbi Morthens?
Ég hef ekki hugmynd um hver ég er og er
ósköp sáttur við það. En svo ég svari þessu
ítarlegar þá get ég verið sjö manneskjur á
einni viku og er bara sá sem ég er hverju sinni.
Ég er það sem ég sé og það sem ég heyri og
það sem ég snæði og það sem ég hugsa og
upplifi.
Fljótur að komast yfir vonbrigði í ástamálum:
Vonbrigði í ástamálum hafa aldrei haft lang-
varandi áhrif á mig nema einu sinni á ævinni.
Það er til bunki af öðru kvenfólki þó eitthvað
fari úrskeiðis.
Merkúrstaðan: Þetta er mikið hrós en það er
rétt að ég er góður í höndunum. Ég hef meðal
annars fengist við skúlptúr og ég er flinkur f
leir. Allt hitt getur þess vegna átt við mig líka.
Mars í fiskum í tíunda húsi: Ef þú lítur á
verkin mín getur vel verið hægt að finna eitt-
hvaö sem á við þessa lýsingu. Ég get verið
slóði í að koma hlutum í framkvæmd og það
getur tekið langan tíma hjá mér.
Venus í krabba bendir til að þú sért mikil
heimavera: Ég er það, alveg rosalega og er
heima eins mikið og ég get. Ég hef ekki langa
reynslu af að vera foreldri því sonur minn er
aðeins tveggja mánaða og það á alveg eftir að
koma í Ijós hvernig faðir ég verð.