Vikan - 17.05.1990, Page 27
gat semsé ekki talað! Þau
höfðu gengið til lækna og sál-
fræðinga en enginn vissi hvers
vegna þetta var. Drengurinn
hafði áhuga á fyrri lífum og
vildi gjarna vita hvort ástæðan
lægi þar. f fyrstu tvö skiptin
gerðist ekkert sérstakt. Þó
fannst mér áhugavert að tal-
andi hans var fullkominn með-
an hann var dáleiddur og það
jafnvel þó ég spyrði hann
beinna spurninga. I þriðja
skiptið sagði hann mér að
hann hefði verið bandarískur
flugmaður í síðasta stríði og
dáið vegna pyntinga eftir yfir-
heyrslur í fangabúðum nas-
ista. Hann sagði mér líka nafn,
tign og númer hermanns í
bandaríska flughernum. Faðir
hans talaði við bandaríska
sendiráðið í London og það
stóð heima að á skrám þar var
getið flugmanns sem hafði
verið 32 ára í síðasta stríði og
að óvitað væri um afdrif þessa
manns. Hann var skráður sem
týndur og reiknað með að
hann væri látinn. En nafn
hans, tign hans og númer
komu heim og saman við þau
sem pilturinn gaf upp. Hann
gat ekki hafa spunnið þetta
upp. Þetta var ekki frægur
maður - auðvitað vissu for-
eldrar hans og fjölskylda núm-
erið hans en annars enginn í
heiminum. Þetta fannst mér
skýra hvers vegna háls hans
lokaðist undir þessum kring-
umstæðum, því það var á
þann hátt sem hann dó.
Eftir þetta urðum við að
vinna með hann í dáleiðslu um
hríð og þó hann sé miklu betri
en hann var þá efa ég að hann
læknist nokkurn tíma alger-
lega af þessu.
Annars er það mikilvægasta
varðandi ferð aftur í fyrra líf að
það skyldi enginn reyna sem
ekki veit hvað hann er að gera
- og þetta má enginn reyna
einn. Maður þarf á einhverjum
að halda fari svo að eitthvað
óþægilegt komi fram í minnið.
Það getur verið mjög hættu-
legt.
DRÚÍDI í FYRRA LÍFI
Sjálf komst Ursula að því að
hún var drúídi í fyrra lífi en
drúídar voru prestastétt meðal
forn-Kelta í Gallíu, Bretlandi
og á írlandi. Þeir voru spá-
menn og skáld og í fornum
velskum sögnum eru þeir
einnig galdramenn. Hún man
eftir sér þarna sem 13 ára
stúlku og minnist þess að allar
þeirra trúarbragöaiðkanir áttu
sér stað í tunglskini. Þaö er
því ekki ólíklegt að tengslin við
fyrri líf hafi hermt Ursulu aftur
til baka næstum alla leið til
Wales því fyrir nokkrum árum
flutti hún frá London til Glouc-
estershire. Hún nefnir að
undanfarin ár hafi mikið af fólki
úr starfsgreinum skyldum
hennar flutt í þennan lands-
hluta og Suður-Wales.
Heimili Ursulu er ekki langt
frá Stonehenge og Glaston-
bury í Somerset. i Glaston-
bury eru rústir eins elsta
munkaklausturs í Englandi og
þar er þyrnitré sem sagt er
vera sprottið upp af einum
þyrnanna úr þyrnikórónu
Krists. Hvort sem það er nú
satt eða ekki þá er þetta tré
ótrúlega sterkt, þó öll önnurtré
í kringum það deyi og falli þá
stendur þetta tré alltaf, sama
hvernig viðrar. Til Glastonbury
kemur fólk í eins konar píla-
grímsferðir og Ursula segir að
þó búið sé að gera staðinn að
eins konar söluvöru, því alltaf
komi óæskilegir aðilar inn með
þeim æskilegu á svona stöð-
um, þá sé eitthvað mjög sér-
stakt við þennan stað og
greinilega séu þar miklir
kraftar. Glastonbury er nokk-
urs konar endastöð legulína,
en þar sem tvær legulinur
skerast voru steinahringir á
borð við Stonehenge settir
upp. Einnig er sagt að Came-
lot, kastali Artúsar konungs,
hafi staðið í Glastonbury. Það
var Artús sem vildi byggja land
þar sem „ofbeldi teldist ekki
styrkur og samúð teldist ekki
veiklyndi“ og í landi Artúsar
var allt fullkomið og sömuleiðis
við hringborðið innan veggja
Camelot.
HJÁLPA FÓLKI TIL AÐ
HJÁLPA SÉR SJÁLFT
Viö spyrjum Ursulu að lok-
um hvað sé megininntakið i
kennslu hennar:
Mér finnst ég aöallega vera
að hjálpa fólki til að hjáipa sér
sjálft. Ég er enginn töframaður
og ég geri ekkert við fólk. Það
gerir það sjálft. Ég vísa bara
veginn. Og þetta finnst mér
mikilvægt því ég er ekki að
gefa pillu og segja: „Taktu
þetta og þá batnar þér!“ Það
sem ég fæ mest útúr er að sjá
fólk breytast og vita að það er
því sjálfu að þakka. Ég er á
móti því að fólk leggi allt sitt
traust á steina eða gúrúa eða
hvað sem er annað sem
stendur utan við það sjálft, en
ég held að hvaða ákvörðun
sem við tökum geti kristallinn
magnað og gert áhrifameiri.
Það álít ég vera þeirra aðalafl.
SUMARTILBOÐ
20“ kr. 44.800 stgr.
14“ kr. 29.880 stgr.
★ Úvals sjónvarpstæki á frábæru verði.
★ Fjarstýring.
★ Monitor útlit.
iftMSffr
$ SAMBANDSINS
HOLTAGÖRÐUM SÍMI 68 55 50
VK> MIKLAGARÐ