Vikan - 17.05.1990, Page 33
KVÖLDKLÆÐNAÐURINN er hvítar
buxur úr þunnu efni, beinar og með
rykktum streng. Skyrtan er hvít, með mjög
skemmtilegum kraga sem hægt er að hafa
á mismunandi vegu. Jakkinn, sem hún er
í, er stuttur í mittið, dökkblár með hvítum
doppum. Hann er einnig aðskorinn því
hún er með mjög gott mitti sem hún ætti
að láta bera á. Hún notar sokka og skó í
sama lit til að fá lengingu. Hárið er tekið
aftur og toppurinn hafður hár svo hún
sýnist hærri.
KVÖLDKLÆÐNAÐURINN er
samsettur úr svörtum smóking, hvítri
skyrtu og svörtum linda og slaufu til að
gefa grenningu um miðju. Slaufan hjálpar
til við að færa augnlínuna ofar.
Úrin sem við notuðum voru: Movado með
kvöld- og viðskiptaklæðnaðinum og Ebel
með sportklæðnaðinum.
SPORTKLÆÐNAÐURINN er buxnapils
með hvítum og navy-bláum röndum sem
gerir hana grennri um mjaðmir og læri.
Peysan er svört og hvít og hálsmálið
undirstrikar hálsinn sem er mjög fallegur.
Hárið er slegið, i stíl við klæðnaðinn þvi
sportklæðnaðurinn á að vera mjúkur,
óheftur og mjög þægilegur.
Ásdís notaði Rolex-úr við sport- og
kvöldklæðnaðinn en Movado-úr við
viðskiptaklæðnaðinn.
VIÐSKIPTAKLÆÐNAÐURINN er
dökkblá dragt með axlapúðum. Pilsið er
aðskorið og nær niður á miðja kálfa vegna
þess að þeir eru í breiðari kantinum.
Sokkar og skór eru í sama lit svo að
heildarlínan rofni ekki og stytti hana.
Skyrtan er í pastelbleikum lit til að
heildarsvipurinn verði allur mildur en það
er mikilvægt i viðskiptum. Hárið er greitt
niður til að draga augnlínuna að öxlunum
og förðunin er í mildum tónum til að
samsvara klæðnaðinum. Gleraugun eru til
að undirstrika viðskiptalegt útlit.
SPORTKLÆÐNAÐURINN er dökk
vaxkennd úlpa og svartar gallabuxur og
gefurlárétta línu. Bolurinn er flöskugrænn
og fer mjög vel við Ijóst hörund og svart
hár. Sagt er að það sé vinsælt hjá
uppunum í Bretlandi að hengja svona
úlpu aftan í bílana sína, aka upp i sveitþar
til úlpan er orðin snjáð og skítug og
spásséra síðan í henni um allt.
Úrin, sem Gísli notaði, eru af sömu
gerðum og Arnar notaði. Hárgreiðslan er
að vanda í stíl við klæðnaðinn.
VIÐSKIPTAKLÆÐNAÐURINN er
dökkblár bleiserjakki, gráar buxur og hvít-
og bláröndótt skyrta, ásamt mildu
munstruðu bindi. Stakar buxur og jakki
hæfa Gísla betur en jakkaföt vegna þess
að lækka þarf augnlínuna að fótunum.
Æskilegt væri að Gísli notaði slaufu í stað
bindis, svo að augniínan færist ofar, en er
þó ekki ráðlagt i viðskiptum þar sem það
myndi skera sig úr.