Vikan


Vikan - 17.05.1990, Page 42

Vikan - 17.05.1990, Page 42
AUGLÝSINGASTOFA BRYNJARS RAGNARSSONAR / SAM-ÚTGÁFAN MP 24 FYRIR ERF ELANCYL LINAN Franska lyfjafyrirtækiö Pierre Fabre varö fyrst allra til aö sérhæfa sig í framleiðslu vöru sem vinna átti á móti hinu svokallaða „cellulite" eða appelsínuhúö eins og þetta fyrirbæri er oft nefnt. Þaö var áriö 1971 að Pierre Fabre fyrirtækið markaðssetti Elancyl línuna í Frakklandi eftir margra ára vinnu og tilraunir vísindamanna sinna. Sala til annarra landa fylgdi fljótt á eftir. Franskar konur voru fljótar aö tileinka sértæknina og I dag er ELANCYLIÍnan best þekkta varan sem notuð er í baráttunni við „cellulite". Nær 20 árum síðar, eöa 1990, er ELANCYL enn leiðandi afl I framleiðslu slíkrar vöru, en önnur fyrirtæki hafa reynt að fylgja á eftir og framleitt vöru sem svipar mjög til ELANCYL vörunnar. STERKASTIR í FRAKKLANDI í 20 ár hefur ELANCYL átt langstærsta markaðshlutdeild I Frakklandi af sérhæfðri vöru fyrir líkamann. Árið 1989 var hlutur fyrirtækisins 48% og má það teljast með ólíkindum miðað við það framboö sem er á markaðnum í dag. En franskar konur vita að vísindamenn Pierre Fabre lyfjafyrir- tækisins og ELANCYL línunnar hafa lengst allra unnið að rannsóknum á fyrirbærinu „cellulite", orsökum þess, afleiðingum og hugsanlegum lausnum á vandanum. Þær vita að þær geta treyst á ELANCYL eftir 20 ára frábæra reynslu. Á ÍSLANDI íslenskar konur hafa geta notið aðstoðar ELANCYL vörunnar í nær 10 ár eða síðan 1981. Einnig hér á landi vann ELANCYL mikið brautryðjenda- starf. ELANCYL fræddi íslenskar konur um „cellulite" og hvað hægt væri að gera til hjálpar. MP 24 Árið 1987 urðu mikil tímamót hjá ELANCYL. MP 24 kom á markaðinn og fékk samstundis frábærar móttökur, bæði í Frakklandi og öðrum löndum. MP 24 er gel sem inniheldur græn örkorn meö virkum efnum meö langvarandi virkni. Það er notaö sem eins konar grunnmeðferð í baráttunni við „cellulite", án þess að nota þurfi hinn fræga ELANCYL bursta. Stafirnir MP 24 standa fyrir „MICRO PARTICLES“ eða örkorn, sem hafa langvarandi virkni eða í 24 klukku- stundir. Þetta gel, MP 24, hefur síðan oröið fyrirmynd fjölda annarra fyrirtækja sem fetaö hafa í fótspor ELANCYL frá árinu 1987 til dagsins í dag. MP 24 SPECIFIC En ELANCYL er alltaf feti framar. Þegar keppinautarnir eru að koma með vöru sem líkjast á MP 24 kemur ELANCYL með enn eina nýjung, MP 24 SPECIFIC eða MP 24 FYRIR ERFIÐU SVÆÐIN. Keppinautum ELANCYL hefur enn ekki unnist tími til að koma meö mótsvar við þessari nýjung. ELANCYL nýtur því enn á ný algjörrar sérstöðu á markaðnum. En hvers vegna þurfti MP 24 Specific? Jú, síöan MP 24 var sett á markaðinn 1987 hafa vísindamenn ELANCYL fyrirtækisins fylgst með þróun þessarar vöru í gegnum fjölda bréfa frá notendum og með könnunum sem geröar hafa verið. Þessar athuganir hafa staðfest árangur MP 24 bæði sem grennandi meðferðar og sem styrkjandi uppbyggingar vefja. Þessar kannanir

x

Vikan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.