Vikan - 17.05.1990, Síða 44
Hún sagði: „Ég vil skilnað"
§i§ls§il
iffíli§§2?
Snmaður. Þvi njta ^"pno* nír h®«
hafði miög g°tt 0 S'aq erfiða cesku, var reyn
SgfsSSssSr-
tsseessssss
og þá féll eins og himinninn yfir mig
Áföll voru uko hu' mér var kcer, ui
iligfJt
oa les töluvert B'bl'una hv@rnig aðstceou
hfálpað. Mig langar svo a e',nhver)a mögu
samurage'nnÞaðse áhvaðbetur
32ÍÍHS5SÍ
aðopnaaugum'aetnœy
VIKAN taMeð Weðiu og ósk um biarta tramt'ð, ^
Q
<
or
<
Z
O
Vantar enn mildi þá
sem í upplagi þínu er
Kæri 4469!
Þakka þér innilega fyrir
góö og uppbyggileg orð
í minn garð. Eins þakka
ég þér einlægt og heiðarlegt
bréf og við reynum að finna
leiðir sem hugsanlega gætu
nýst þér og um leið öðrum
sem eiga við svipaða erfið-
leika að stríða.
Það er nú einhvern veginn
þannig aö við eigum erfitt með
að átta okkur sjálf á hvar skór-
inn kreppir þegar á reynir (
vanda sem þessum. Þá getur
verið gott að leita til einhvers
sem getur séð aðstæður og
manngerðina út, án þess að
vera hlutdrægur. Þetta ætla ég
að reyna, kæri 4469, og vona
svo sannarlega að það gangi
eitthvað, eins og þú bendirsvo
skynsamleg á. Þó þaö í sjálfu
sér leysi ekkert gæti það
kannski auðveldað eitthvað.
VERÐMÆTAMAT
RIÐLAST
Þú ert núna á milli þrítugs
og fertugs og af þeim ástæð-
um er mjög eðlilegt að þú viljir
bæta líf þitt. Á þessu timabili í
lífi okkar gengur innri maður-
inn út og við breytumst. Það
sem áður skipti máli og öll okk-
ar orka fór í skiptir minna máli
og kannski virkar líka á annan
hátt. Verðmætamat riðlast og
það fer að verða meiri ávinn-
ingur í að þekkja andlega
möguleika sína en áður.
Hjónaskilnaðir eru mjög al-
gengir á þessum árum, vegna
þess að við skoðum og bregð-
umst við hlutunum á nýjan og
kannski áöur óþekktan hátt.
Hjón þurfa ekki að fylgjast að í
breytingum sem þessum og
því fer sem fer.
Það er best að við skoðum
æsku þína eilítið því einmitt við
allar breytingar af þessum
toga má búast við að hún
sæki upp á ný. Ég er nokkuð
viss um að þú hefur verið til-
finningaríkur og viðkvæmur
drengur sem hefði þurft mikla
einstaklingsumhyggju. Ég er
líka viss um að upplag þitt er
þess eðlis að allar breytingar á
umhverfi og í tilfinningatengsl-
um hafa verið mjög varhuga-
veröar fyrir barn eins og þú
varst, nema fullar skýringar
hefðu komið til, ásamt fram-
bærilegum ástæðum sem þú
hefðir fengið að meta á ein-
hvern hátt sjálfur, þótt barn
væri. Þú virðist hafa verið og
ert með frekar lokaðan per-
sónuleika sem segir að þú
safnir upp því sem þér er erfitt
að sætta þig við. Það gæti þar
af leiðandi fundið sér farveg í
hegðun sem ekki er í sam-
ræmi við upplag þitt en jafnvel
stríðir á móti vilja og skoðun-
um annarra á hvað passar og
ekki passar hverju sinni.
GÆTISKÝRT BRYNJUNA
Barn, sem þarf ást og
skilning, leitar þarfa sinna til
dæmis á örvæntingarfullan
máta í því að vera óþjált og
uppátektasamt. Þannig nælir.
barnið að minnsta kosti í við-
brögð og svörun annarra við
sér, þótt böggull fylgi skamm-
rifi. Oft veldur viðskilnaður við
foreldra á unga aldri ótta við
að tengjast öðrum dýpri
tengslum á fullorðinsárum.
Það gæti skýrt brynju þá sem
þú fannst að háði þér í tilfinn-
ingatengslum við konu þína
og börn. Eins er öruggt að þú
hefur verið tengdur bróður
þínum mjög djúpum tengslum
og þegar þú svo missir hann
er hætt við að um tíma hafir þú
fyllst óbærilegri reiði, án þess
að átta þig á hvers vegna, og
þess vegna kannski gert hluti
sem ekki eru mælistika á
manngildi þitt. Þú ferð nefni-
lega fyrst frá foreldrum, sem er
missir, næst frá fyrstu fóstur-
foreldrum, sem líka er missir,
og missir síðan bróður stuttu
seinna. Síðan rekur hvað
annað. Þú ert enn á ný að
missa þegar þú flyst til enn
nýrra aðstandenda sem nátt-
úrlega skilja ekki að þú ert
hræddur lítill drengur sem
þarft mikið öryggi og kærleika
eftir margþættan missi og von-
brigði.
Ég veit ekki hvort hægt er
að ætlast til að sú kynslóð sem
ól þig upp átti sig á að það er
ekki nóg að hafa föt og húsa-
skjól, við þurfum öll í uppvexti
að finna að við séum elskuð á
persónulegan hátt ef sama
sagan á ekki að endurtaka sig
á okkar eigin börnum, af sjálfs
okkar völdum. Eldri íslending-
ar voru svo fátækir og útslitnir
fyrir aldur fram og þurftu svo
sannarlega að þræla og finna
til. Ósennilegt er að nokkur
tími hafi fundist til að rækta
andlegt og tilfinningalegt sam-
band við börn fyrir harðri lífs-
baráttu. Hætt er við að þetta
geti skýrt frekar öðru af hverju
þú fékkst ekki þá ást sem þú
þráðir svo innilega. Eins er
víst að ástæðan var ekki
andúð á persónu þinni heldur
skilningsleysi - og jafnvel
tímaleysi - fullorðinna á þörf-
um lítils einmana drengs sem
allt í einu kemur ókunnugur
inn í líf þeirra. Hann finnur að
þaö vantar ekki að ytri að-
stæðurnar eru svo sem í lagi
en það er bara ekki nóg. Betra
er að minna sé af veraldlegum
gæðum en meira af ást og um-
hyggju, ef við eigum að þrosk-
ast rétt. Kannski hefði í þínu
tilviki verið hægt að virkja bet-
ur augljósa kosti þína. En til
þess að það hefði verið unnt
þurfti fólk náttúrlega að sjá þá,
ekki satt?
HEFUR ÞÖRF FYRIR
TILFINNINGATENGSL
Nú ert þú ekki lítill drengur
og ert búinn að sýna öllum
sem höfnuðu þér aö það er
heilmikið í þig varið en það
virðist ekki vera nóg því þú ert
ekki hamingjusamur þrátt fyrir
allt. Hætt er við að þú hafir lagt
of mikinn þunga og tíma í að
byggja upp ytri aðstæður þín-
ar af ótta við að börnin þín
lentu á vergangi eins og þú
sjálfur. Þú ert greinilega
skynsamur og stoltur en vant-
ar ennþá mildi þá sem í upp-
lagi þínu er, en þú óttast að
hafi í för með sér enn eina
höfnunina ef þú sýnir hana.
Maður með þína eðlisþætti
hefur þörf fyrir tilfinningatengsl
og á að rækta möguleika sína
þar, því þú hefur mikið aö
gefa. Slík tengsl koma ekki af
sjálfu sér, við verðum aö tala
hvert við annað. Við getum
ekki ætlast til að aðstandendur
finni á sér aö við elskum þá.
Hætt er við að þú hafir átt í erf-
iðleikum með að tjá ást þína í
orði eða atlotum því þú ert
ekki þjálfaður í slíku frá byrjun.
Eins er hætt við aö væntum-
þykja þín til sjálfs þín hafi fram
að þessu verið af skornum
skammti og jafnvel líklegt að
þú hafir hafnaö þér sjálfur
vegna þess að þá tilfinningu
þekkir þú best úr uppvextin-
um.
Hitt er svo annað mál að þú
ert mjög vel gerður og jákvæð-
ur að eðlisfari en vegna marg-
fallds missis áttu í megnustu
erfiðleikum með að taka þá
áhættu að elska þannig að til-
finningar þínar fái notið sín.
Það er náttúrlega erfitt fyrir til
dæmis konu sem elskar þig.
Konur þurfa að heyra í hlýjum
orðum að þær séu elskaðar.
Eins þarf að taka utan um þær
af og til og virkilega umvefja
þær. Eins er góð þumalputta-
regla að vera virkur í heimilis-
störfunum og muna að konur
hafa þarfir utan heimilis sem
liggja misjafnlega og þær
verða að hafa tíma til að sinna
þeim. Þó erfitt sé að fullyrða
það er líklegt að þrá þín eftir
ytra öryggi hafi valdið því að
þú hafir skipulagt tíma þinn á
kostnað fjölskyldunnar og
hennar tilfinningalegu þarfa.
BRENNT BARN ÆTTI
AÐ FORÐAST ELDINN
Sama á við börn og konur,
þau þurfa að tala og tjá sig um
allt það sem glepur og kemur
upp á hverju sinni. Þú ættir
raunverulega að vera sér-
fræðingur í barnauppeldi, sé
tekið tillit til þess að fáir vita
eins vel og þínir líkar hvað má
ekki gleymast þar, hvað þeir
fengu ekki en áttu rétt á og
þráðu líka eins og þú. Brennt
barn ætti að forðast eldinn.
Eins er með okkur konurnar,
okkur finnst gott að fá hluti
óvænt og af engu tilefni. Það
teljum við oft segja töluvert um
ást maka og persónulegan
áhuga á okkur. Svo ég tali nú
ekki um ef um er að ræða
eitthvað sem tengist áhuga-
sviðum eöa smekk okkar. Öll
persónuleg nærgætni krefst
bæði tíma og skoðunar á við-
komandi. Þarna er auðvelt fyrir
þig að bæta þig því mér sýnist
þú bæði hafa góðan smekk og
næma athyglisgáfu, auk þess
að vera höfðingi ef því er að
skipta. í stað þess að gefast
upp skaltu líta á þetta við-
kvæma ástand sem hvert ann-
að verkefni sem þú ætlar að
vinna úr og sigrast á. Þannig
hugarfar hentar þeim sem
ætla að vera hamingjusamir
en ekki óhamingjusamir. Mér
sýnist líka að í ytri aðstæðum
þínum hafir þú þurft að leysa
margt flóknara og óyfirstígan-
legra en þetta ætti að vera þér.
Að nota Biblíuna sér til
styrktar er gott mál, hún er
uppbyggileg og hentug í flest-
um tilvikum. Eins er frábært að
þér sé Ijóst að þú verður sjálfur
að berjast og átt velgengni
þína og lífshamingju undir
sjálfum þér og viðhorfum
þínum. Auðvitaö sýnir það
skynsemi þína að leita stuðn-
ings til annarra og er meiri
háttar að fara til sálfræðings
sem hefur faglega þekkingu
og síðan snúa þér til mín sem
hef innsæi og reynsluþekk-
ingu. Þessu hvoru tveggja
vinnur þú svo rólega úr og nýt-
ir þér einungis það sem hentar
þér, hitt lætur þú hiklaust fjúka,
sem er þess eðlis að þú telur
það ekki bæta neitt. Fyrsta
forsenda þess að geta elskað
aðra er að geta elskað sjálfan
sig. Hættu, elsku drengurinn
minn, að bíða eftir að aðrir
elski þig, gerðu það sjálfur og
þá færðu til þaka þá ást sem
þú þráir og þarft að prófa að
upplifa.
GALLA ÞÍNA ER
AUÐVELT AÐ UPPRÆTA
Gallar þínir eru þess eðlis
að þá er auðvelt að uppræta.
Þér en engin vorkunn í þeim
efnum. Þú ert stíflyndur, auð-
særanlegur, lokaður og of fljót-
ur í vörn af litlu tilefni. Þetta
þarft þú að mýkja og milda
upp. Kostir þínir eru greinilega
fleiri en gallarnir. Þú ert fjöl-
hæfur, húmoristi og vandvirk-
ur. Greindarlega liggur þú
mjög vel, auk þess hefur þú
sterka sjálfsbjargarhvöt, auk
mikillar réttlætiskenndar.
Svona fólki er vorkunnarlaust
að lifa nákvæmlega því lífi
sem það kýs en fyrir öllu þarf
að vinna og þú sleþpur ekki
frekar en ég og aðrir. Eins er
viturlegt að líta á alla reynslu
sem próf í skóla lífsins en ekki
tilviljunarkennda löngun for-
sjónarinnar til að skapa þér
ástæðulausu erfiðleika. Upp
með ermarnar og miðaðu
vinnuna viö að fá að minnsta
kosti 8 á þessum prófum. Það
ætti að vera þér auðvelt, vertu
viss. Þroski okkar miðast við
hæfni okkar til að takast á við
erfiðleika en ekki þann tfma
sem það tekur okkur að vinna
úr þeim. Hann má vera eins
langur og þurfa þykir hverju
sinni. Viðleitni er vissulega
þyngst á vogarskálunum, að
mínu mati, og hana sýnir þú í
ríkum mæli með miklum vilja
til að breyta aðstæðum þínum.
Við verðum öll að fara í
gegnum óþægileg tímabil oq
við verðum aö skilja að án erf-
iðleika verður enginn andlega
þroskaður eða stór. Guð er
svo sannarlega ekki öfunds-
verður þegar hann er að út-
deila okkur reynslu til að vinna
úr. Viö mótmælum flest og vilj-
um annars konar próf. Þetta er
einföldun okkar á guðdómin-
um, honum er fyllilega treyst-
andi til að velja fyrir okkur góð
en erfið verkefni til að vinna úr.
Það er barnaskapur að neita
og hafna því sem ekki verður
umflúið. Þannig erum við að
tapa en viljum þó flest vera
sigurvegarar yfir öllum aö-
stæðum okkar og getum það
ef við erum auðmjúk og stað-
föst í mótlæti sem meðlæti.
Eða eins og hestamaðurinn
kunni sagði eitt sinn þegarfák-
urinn brást honum:
Elskurnar mínar! Ég hefði
getað sagt mér þetta óhapp
fyrir því það er nefnilega
eins með hestana eins og
kvenfólkið. Þeim nægir ekki
maturinn eingöngu, bless-
uðum, þeir þurfa að auki
hlýju og athygli ef þeir eiga
að fá notið sín.
Með vinsemd,
Jóna Rúna
Vinsamlega handskrifið bréf til Jónu Rúnu og látið fylgja fullt nafn
og kennitölu, ásamt dulnefni. Svörin byggjast á innsæi Jónu
Rúnu og rithandarlestri og því miður er alls ekki hægt að fá þau
í einkabréfi.
Utanáskriftin er:
VIKAN - Jóna Rúna Kvaran - Háaleitisbraut 1, 105 Reykjavík
10. TBL. 1990 VIKAN 45