Vikan


Vikan - 20.09.1990, Blaðsíða 4

Vikan - 20.09.1990, Blaðsíða 4
TEXTI: HELGA ÁGÚSTSDÓTTIR Ágústa vill beina því til þeirra sem eru að velta þvi fyrir sér að fara út í sjálfstæðan rekstur að kynna sér málið rækilega frá öllum hliðum. ÁGÚSTA REKUR EIGIN SNYRTISTOFU: Eigin snyrtistofa var alltaf stóri draumurinn Það var Ágústa Kristjáns- dóttir sem snyrti for- sfðustúlkuna okkar að þessu sinni en Ágústa er eig- andi Snyrtistofunnar Ágústu á Klapparstíg 16. Það var skemmtilegt að fylgjast með Ágústu við starf sitt en hún notaði eingöngu Chanel snyrtivörur. Fyrst bar hún á þunnt lag af make up creme nr. 2 og ofan á það kom laust púður, Luminére Rose, og þar ofan á aðeins dekkra púður, Bronze de Chanel Poudre, til að skyggja aðeins. í kringum augun notaði hún brúnan blýant, Foncé, og augnskugga nr. 09, Tumultes, og svartan maskara nr. 03. Varaliturinn er nr. 23 og varirnar formaðar með blýanti. Loks rak lestina kinnalitur nr. 95, Fréll. Og eins og þið sjáið er útkoman svona Ijómandi skemmtileg. Það var ekki úr vegi að spyrja Ágústu aðeins út í það hvernig það gengur fyrir sig að opna snyrtistofu. „Ég opnaði stofuna í apríl síðastliðnum enda hafði ég alltaf átt mér þann draum að eiga að reka sjálf stofu. Þetta réttir manni enginn á silfurfati en um leið og ég var búin að taka ákvörðunina fóru hjólin að snúast í rétta átt. Ég kynnti mér verðlag eins vel og mér varfrekast unnt, pantaði síðan öll tæki og stóla frá Þýskalandi og Bretlandi og það kom mjög vel út fjárhagslega. Allar snyrtivörur kaupi ég svo að sjálfsögðu hér heima hjá heild- sölunum. Að auki var ég svo lánsöm að fá húsnæði sem hentar afar vel fyrir þennan rekstur, það var nánast tilbúið. Auðvitað fylgja því alltaf tals- verð fjárútlát að stofna fyrir- tæki sem þarf fjölbreyttan bún- að en sé rétt að málum staðið og ef fólk athugar vandlega verðlag sem víöast má fá hlut- ina á nokkuð góðu verði. Auðvitað var þetta mjög spennandi og gaman að fást við að setja upp eigin stofu en þetta var mikil vinna, vanga- veltur og hlaup út og suður. En ég var nú ekki alveg ein því maðurinn minn, sem er við- skiptafræðingur, hjálpaði mér heilmikið og gerir enn. Stofan hefur gengið mjög vel og ég þakka það kannski fyrst og fremst tryggum við- skiptavinum og svo auðvitað því að ég er mjög vandlát í vali á þeim vörum sem ég vinn með. Fólk kemur mjög mikið til mín í andlitsböð en við þau nota ég Clarins vörurnar sem eru afar góðar enda unnar úr jurtum undir mjög ströngu gæðaeftirliti. Eins er talsvert um að fólk komi í líkamsnudd og þar vinn ég eftir kerfi frá Clarins og með vörur frá því fyrirtæki. Kannski er eitt af því allra skemmtilegasta í starfi mínu förðun og þá sérstaklega brúðarförðunin. Það er svo skemmtilegt og gefandi að taka þátt í stóra deginum í lífi þessara kvenna, sjá gleðina og eftirvæntinguna sem Ijómar af þeim og hjálpa þeim til að líta eins vel út og hægt er við þetta tækifæri. Ég var strax staðráðin í að veita sem allra fjölbreyttasta þjónustu og þess vegna réð ég til mín stúlku sem hefur Frh. á bls. 7 4 VIKAN 19. TBL. 1990 f: " .1 ' \ UÓSMYND: BINNI

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.