Vikan


Vikan - 20.09.1990, Blaðsíða 36

Vikan - 20.09.1990, Blaðsíða 36
■SLYS Haydock skipstjóri, sem var farinn að berja úr pípunni sinni, hætti við það og leit upp. - Jæja, sagði hann, - er það þar sem skór- inn kreppir? Heldur þú þá að hún hafi ekki ver- ið saklaus? - Það hef ég ekki sagt. Ég veit það einfald- lega ekki! Anthony notaði arsenik og einn dag- inn fékk hann of stóran skammt, af vangá. Var það honum eða konu hans að kenna. Enginn vissi það og kviðdómurinn ákvað að sýkna hana í stað þess að sakfella. Það var svo sem allt í lagi með það. En hvað sem öðru líður vildi ég gjarnan vita vissu mína. Haydock skipstjóri beindi aftur athygli sinni að pípunni. - En þetta kemur okkur ekkert við. - Hlustaðu nú á mig, sagði Evans. - Þú manst þegar þessi Merrowdene var að sýna okkur rannsóknastofuna sína í gærkvöldi, þá talaði hann um Marsh-prófin, arsenikprófin. - Já, hann nefndi einhver Marsh-arsenik- próf. Svo hló hann og sagði að það ættir þú að þekkja, það hefði verið þín grein. Það hefði hann aldrei sagt ef hann hefði haldið ... - Þú átt við að hann hefði ekki nefnt það ef hann hefði vitað hvað skeði. Hve lengi hafa þau nú aftur verið gift? Sagðirðu ekki sex ár? Ég þori að veðja að hann hefur ekki hugmynd um að konan hans hafi einu sinni borið nafnið Anthony. - Og ekki ætla ég að verða til þess að segja honum það, tautaöi Haydock. Evans hélt áfram, án þess að skipta sér af athugasemd hans: - f mínu starfi höfum við okkar eigin mæli- kvarða, prófun á morðmálum. Við leggjum saman staðreyndir, vegum og metum það sem eftir verður þegar frá er dregiö álit hlutdrægra vitna og almennt athugunarleysi. En við höfum aðrar sannanir gegn morðingjum, nokkuð ábyggilegar en hættulegar samt. Það er að morðingi lætur sér sjaldan nægja eitt morð. En gefum honum góðan tíma, látum aldrei skína í nokkurn grun um að búist sé við að hann endurtaki glæpinn. Þá ... já, þá getur maður búist við að hann reyni á nýjan leik. Setjum svo að maður sé tekinn fastur. Hefur hann myrt konuna sína eða er hann saklaus? Sannanir eru óljósar en sé farið að rannsaka fortíð hans og í Ijós kemur að hann hefur átt fleiri en eina konu, sem hann hefur losað sig við, þá er ekki að sökum að spyrja. Ég tala ekki um lagaleg sjónarmið nú heldur siðferðileg. Og þegar maður veit þetta er hægt að ná í sannanir. - Ég skil vel hvað þú átt við en ... - Bíddu þangað til ég kem að veigamestu atriðunum. Það er ágætt ef einhver fortíð er sem hægt er að gramsa í. En segjum nú svo að morðingi sé gripinn við fyrsta brot hans eöa hennar. Þá er ekki hægt að nota þá aðferð sem ég var að tala um. En ef sakborningur sem er sýknaður tekur sér nýtt nafn og byrjar nýtt líf á öðrum stað. Endurtekur hann þá brot sitt eða ekki? - Þetta er hræðileg hugmynd. - Viltu ennþá halda því fram að þetta komi okkur ekki við? - Já, það geri ég. Það er engin ástæða fyrir þig til að gruna frú Merrowdene, sagði skiþ- stjórinn ákveðinn. Lögregluforinginn þagði um hríð, svo sagði hann hægt: - Ég sagði að ef farið væri að skyggnast í fortíð hennar án þess að komast að nokkru grunsamlegu. En sú er alls ekki raunin. Þegar hún var átján ára var hún ást- fangin af ungum manni en stjúpfaðir hennar notaði vald sitt til að stía þeim sundur. Hún og stjúpfaðir hennar gengu eitt kvöldið eftir hættu- legri klettabrún. Þá varð slys. Stjúpinn gekk of langt fram á brúnina og hún brast undan fótum hans. Hann féll fram af brúninni og var látinn þegar komið var að honum. - Þú heldur þó ekki... - Það var slys. Slys. Anthony fékk of stóran skammt af arseniki. Það var líka slys. Henni hefði aldrei verið stefnt fyrir rétt ef ekki hefði komið upp sá orðrómur að annar maður væri með í leiknum. Hann hvarf reyndar af sjónar- sviðinu. Það var eins og hann hefði ekki verið ánægður með þessi málalok þótt kviðdómur- inn væri það. Ég skal segja þér eitt, Haydock. Hvað þessari konu viðvíkur er ég hræddur um nýtt - slys. - En það eru níu ár síðan þetta gerðist, maldaði Haydock í móinn. - Hvers vegna þarf endilega að verða nýtt „slys“ nú? - Það þarf ekki endilega að verða núna, svaraði Evans. - En með tíð og tíma, þegar tækifæri býðst. Haydock yppti öxlum. - Jæja, og hvernig á að koma í veg fyrir það? - Ég veit það ekki, sagði Evans þungbúinn. - Ef ég vissi það liði mér töluvert betur. - Væri ég í þínum sporum skyldi ég ekki leggja heilann í bleyti, sagði Haydock. - Það kann aldrei góðri lukku að stýra. En góðar ráðleggingar vinarins voru gamla lögregluforingjanum ekki að skapi. Á leiðinni til bæjarins velti hann fyrir sér hvernig best væri að haga þessu máli. Hann var á leið inn í pósthúsið til að kaupa frímerki þegar hann rakst einmitt á manninn sem samtal þeirra vinanna hafði snúist um, manninn sem hann hafði svo miklar áhyggjur af, Merrowdene, fyrrverandi prófessor i efna- fræði. Þetta var vingjarnlegur maður, glæsileg- ur eftir aldri en oftast svolítið viðutan. En hann þekkti strax lögregluforingjann, heilsaði honum elskulega og beygði sig um leið, til að taka upp bréf sem hann hafði misst á götuna. Evans var fljótari til, bað hann afsökunar á árekstrinum og rétti honum bréfið. Honum varð litið á um- slagið. Þar stóð nafnið á þekktu tryggingafyrir- tæki og þetta var ábyrgðarbréf. Vekjaraklukkan í lögregluheila Evans tók nú að hringja. Hann tók snögga ákvörðun. George Merrowdene áttaði sig ekki á því hvernig það atvikaðist að hann var farinn að rölta eftir götunni við hlið Evans lögreglufor- ingja og því síður gat hann skýrt hvers vegna samtal þeirra snerist um líftryggingar. Evans átti ekkert erfitt með að komast að efninu. Merrowdene dró heldur ekki dul á að hann hefði nýverið keypt líftryggingu, til örygg- is fyrir konu sína. Hann vildi líka heyra álit Evans á líftryggingum yfirleitt og hvert álit hann hefði á þessu ákveðna tryggingafélagi. - Ég hef undanfarið hætt mér út í vafasöm viðskipti svo tekjur mínar hafa rýrnað, sagði hann. - Ef eitthvað kæmi fyrir mig væri konan mín frekar illa stödd en þessi trygging veitir henni nokkurt öryggi. - Og hún er ekkert mótfallin þeirri ráðstöf- un? sagði Evans í léttum tón. - Þér vitið, sum- ar konur eru svo óraunsæjar þegar talað er um tryggingamál. Líka hjátrúarfullar, halda að það boði eitthvað slæmt... - Nei, nei, Margaret er mjög raunsæ kona, svaraði Merrowdene brosandi. - Hún er alls ekki hjátrúarfull. Ég held jafnvel að hún hafi stungið upp á þessu sjálf. Henni fannst leiðin- legt hve áhyggjufullur ég var. Evans hafði sannarlega fengið þá vitneskju sem hann vildi. Hann var áhyggjufullur á svip þegar Merrowdene skildi við hann. Anthony sálugi hafði einmitt líftryggt sig nokkrum vikum fyrir andlátið ... Evans var ekki í nokkrum vafa lengur. Spurningin var aðeins hvað hann ætti að taka til bragðs. Hann vildi ekki standa glæpamann að verki, hann vildi koma í veg fyrir glæpinn og það var miklu erfiðara hlutverk. Hann gruflaði út í þetta allan daginn. Síðdegis þennan dag hafði Rauðakross- deildin í bænum basar í trjágarði sem heyrði undir herrasetur í nágrenninu. Evans fór þangað, keypti númer á tombólunni, gat upp á þyngd á grís og skaut í mark en hugur hans var víðs fjarri og hann var mjög hugsandi. Þá kom hann auga á vin sinn Haydock, svo- lítið álengdar. Hann var að tala við einhverja konu sem yfirgaf hann og kom í áttina til Evans. Þetta var frú Merrowdene. Hann tók skyndilega þá ákvörðun að ávarpa frúna og þess vegna gekk hann í veg fyrir hana. Frú Merrowdene var glæsileg kona. Hún hafði hátt og hvelft enni, mjög falleg, brún augu og var blíðleg á svipinn. Hún leit út eins og ítölsk madonnumynd og hún undirstrikaði það með því að skipta hárinu í miðju og greiða það í mjúka lokka við eyrun. Hún talaði lágt og rödd hennar var þægileg. Hún heilsaði Evans með hýrlegu brosi. - Mér sýndist að þetta væruð þér, frú Anthony - ég á við frú Merrowdene, sagði hann rólega. Mismælin voru með vilja gerð og hann virti hana fyrir sér í laumi. Hann sá að hún leit snögglega upp og hann heyrði líka að hún greip andann á lofti en það var ekkert að sjá í rólegum augunum. - Ég er að leita að manninum mínum, sagði hún rólega. - Hafið þér séð hann? - Hann var á leið í hina áttina þegar ég sá hann. Þau gengu í þá átt og hún rabbaði rólega við hann á meðan. En sú kona! hugsaði hann með aðdáun. Þvílik rósemi! Ótrúlegur virðuleiki! Já, hún var merkileg kona og mjög hættuleg. Það var hann viss um, mjög hættuleg kona. En hann var ánægður með þetta fyrsta skref sitt til framkvæmda. Hann hafði látið hana skilja aö hann vissi hver hún var. Þá myndi hún gæta sín, ekki þora að gera neitt að óyfirveg- uðu ráði. En það þyrfti á einhvern hátt að vara Merrowdene við ... Þau rákust á mann hennar þar sem hann stóð og virti fyrir sér kínverska brúðu sem hann hafði unnið á tombólunni. Konan hans stakk upp á því að þau færu heim og hann kinkaði ákaft kolli. Svo sneri frú Merrowdene sér að lögreglu- foringjanum. - Viljið þér ekki koma með okkur heim og fá tesopa í ró og næði? Var ekki rödd hennar eilítið storkandi? Hon- um fannst það. - Þakka yður fyrir, það væri mér mikil ánægja. 36 VIKAN 19. TBL 1990

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.