Vikan


Vikan - 20.09.1990, Blaðsíða 28

Vikan - 20.09.1990, Blaðsíða 28
M ^ LEYN DROTTNING LEYNILOGREGLU l/ 0 SAGNANNA Torquay, fæðingarborg Agöthu Christie, og víðar á Englandi hefur aldarafmælis hennar verið minnst á margvíslegan hátt og hátíðahöldunum lýkur ekki fyrr en í lok þessa mánaðar. Sérstök Agöthu Christie sýning hefur staðið yfir í Torquay frá því 5. júlí. Þá eru sérstakar hátíðarsýningar á leikritum hennar og kvikmyndir byggðar á verkum henn- ar eru einnig sérstaklega sýndar. Fyrsta bók skáldkonunnar kom út árið 1920 og frá þeim tíma var hún sískrifandi alveg fram í andlátið. Vinsældir hennar voru með ólíkind- um og Elísabet önnur Bretadrottning aðlaði hana árið 1971. Eftir það var opinbert nafn hennar lafði Agatha. Frægustu persónurnar í bókum hennar voru tvær, smávaxinn belgiskur leynilögreglumaður, Flercule Poirot, og aldur- hnigin piparmey, ungfrú Jane Marple. Þessar tvær höfuðpersónur voru í aðalhlutverkum í fjölda bóka Agöthu Christie og leystu stöðugt hinar flóknustu morðgátur. Þrátt fyrir að morðin væru mörg í bókum hennar og morðingjar á hverju strái var skáld- konan hin friðsamasta í einkalífinu. Sam- kvæmt upplýsingum sem hún gaf um helstu áhugamál sín voru þau lestur, ferðalög og að slappa af í baðkerinu. Flér á eftir fer viðtal og frásögn af lífi Agöthu Christie, sem byggt er á eldri frásögn enska blaðamannsins Willa Petschek. Fyrir réttum eitt hundrað árum fœddist Agatha Mary Clarissa Miller í Torquay í Devonshire á Englandi. íbúarnir vilja kalla Torquay „Ensku Rivieruna" því þar eru frœgar baðstrendur. Líklega er staðurinn þó og verður enn um skeið frœgastur fyrir að þar fœddist Agatha Christie hinn 15. september árið 1890. Þetta er það nafn sem stúlkan, sem fœddist fyrir eitt hundrað árum, skrifaði flestar sögur sínar undir. Þegar hún lést árið 1976, þá hátt á nírœðisaldri, voru þœr orðnar áttatíu og tvœr talsins. LAGT Á RÁÐIN UM MORÐ Flvíthærð og matrónuleg sat hún við ritvélina; róleg og bein í baki, í Chippendalestól og pikk- aði með þrem fingrum; fyrir utan opinn glugg- ann söng rauðbrystingur glaðlega, það var fyrsta merkið um enska vorið. Eftir að hún hafði setið hugsandi um stund hömuðust fimir fingurnir aftur á vélinni - eins og sigri hrósandi. Var það bréf? Dagskrá fyrir einhvern kvennafund? Agatha Christie var að leggja á ráðin um morð. ( meira en sjötíu ár hafa morðsögur hennar „höggvið skörð í miðstéttirnar" eins og einn af aðdáendum hennar sagði. Margir rithöfundar hafa lifað á dauða en enginn með svo ágætum árangri sem Agatha Christie. Flún er að öllum líkindum mest lesni enski rithöfundurinn. NÝ SKÁLDSAGA VAR JAFNÖRUGG OG VORIÐ Á hverjum vetri rann ný og spennandi skáld- saga út úr ferðaritvél þessarar drottningar glæpasagnanna. Og á hverju vori var handritið sent til bókaútgefandans. Samtals urðu leyni- lögreglubækur Agöthu rúmlega áttatíu talsins 28 VIKAN 19. TBL. 1990

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.