Vikan


Vikan - 20.09.1990, Blaðsíða 12

Vikan - 20.09.1990, Blaðsíða 12
TEXTI: ÞORGEIR ÁSIVALDSSON HÚN ER MAMMA HANS PÉSA Eg fæddi Pésa fyrir fjórtán árum. Hann hafði hægt um sig framan af en hef- ur svo orðið fjörmeiri með ár- unum, segir Herdís. Hún bros- ir góðlátlega og væntumþykj- an leynir sér ekki. PERSÓNUGERVINGUR FATLAÐS BARNS Það hefur annars alltaf verið árátta hjá mér að hafa ein- hverja skrítna persónu innan um þessar venjulegu í bókum mínum eða ritum. Það hefur verið sem rauður þráður í því sem ég skrifa og lífgar upp á atburðarásina og umhverfið. í byrjun var Pappírs-Pési í raun persónugervingur fatlaðs barns sem ekki gat lært og gert það sem aðrir gátu - var öðrum háður og gleymdist oft. Hann lenti oft í vandræðum vegna þess að hann var ekki gerður úr sama efni og hinir. Þannig var byrjunin og upp- vaxtarárin fremur alvarleg en stráksi hefur fundið léttleikann með árunum og ég er ánægð með fósturföðurinn, hann Ara Kristinsson. Ég var svolftið áhyggjufull, rétt eins og hver önnur móðir þegar afkvæmið fer að heiman, hrædd um að sakleysinginn spilltist eða lenti í vondumfélagsskap en það er öðru nær, Pappírs-Pési lenti í góðum höndum eins og fram kemur í myndinni. Persónuleikinn skilar sér í myndinni þótt hann sé orðinn svolítið djarfari en hann var sem ungbarn hjá mér. Það gerir ekkert til, honum vex fisk- ur um hrygg og mér sýnist þetta meinlaust sem hann hef- ur lært og endirinn er góður, allir skilja í sátt og samlyndi. ÉG SATT BEST AÐ SEGJA ELSKA PAPPÍR Það er kannski ekki gott að segja hvort Pappírs-Pési eigi ættingja - jú, ég satt best að segja elska pappír og hef af föndri hvers konar mikið gaman. Helst vil ég föndra úr hlutum sem eru algjörlega flat- ir og lögunarlausir, rétt eins og blað. Það stunda ég mjög mik- ið í minni atvinnu eða við kennsluna. Pappír er fyrir mér afskaplega lifandi svo ég varð ekkert undrandi þótt Pési fæddist úr föndri með pappír. Ég hef kennt við skóla (saks Jónssonar síðan ég var átján ára og lifað og hrærst með nemendum mínum innan um skrítnar persónur sem auðvit- að eru tilbúningur einn. Krakk- arnir hafa tekið með opnum og heilum barnshug á móti þess- um verum hvort sem það eru skessur, draugar, dýr eða eitt- hvað annað. Mér finnst þau hafa gott af því og það eykur hugmyndaflugið. Ég tel mig lánsama að vera kennari lítilla barna. Þau eru bestu áheyr- endur sem völ er á og undir- tektir eru sannar og góðar. Það má aldrei falla út ár að ég segi þeim ekki söguna af Pésa. Reyndar skrifaði ég fyrst leikrit um hann sem sýnt var í Hafnarfirði og samdi auk þess lög og texta við verkið. Svo var það auðvitað bókin þannig að Pappírs-Pési hefur tekið ýmsum breytingum gegnum árin. PAPPÍRS-PÉSI Á NÚ KvERUSTU Ég á í fórum mínum ýmsar myndir sem svipar til stráksa og hver veit nema þær per- sónur komi fram síðar í fram- haldinu. Ég get upplýst það hér og nú að Pési á kærustu. Hún er úr pappír og ekki eins lifandi og hann. Yfir því er hann ákaflega dapur og finnst bágt hvað hún kemur lítið til móts við hann þótt hann færi henni blóm og hristi hana svo- lítið til. Hún er máttlaus og hreyfir sig hvergi en þetta er sem sagt óunnið mál. Sú gagnrýni sem fram kom og var allsráðandi fyrir nokkr- um árum að persónur í nú- tímabarnaævintýrum væru óraunverulegar og skekktu raunveruleikann fyrir börnum náði aldrei huga mínum, lét í 12 VIKAN 19. TBL 1990

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.