Vikan


Vikan - 20.09.1990, Blaðsíða 31

Vikan - 20.09.1990, Blaðsíða 31
Báðar myndirnar á þessari siðu sýna uppánalds aðstæður Agothu Christie er hún lét Poirot benda á mcrðingjann. Hér er Peter Ustinov í aðalhlutverki myndarinnar „Evil Under the Sun“. sagöi: „Dóttir yðar hetur lært að dansa ágæt- lega en hún hefur ekki ennþá lært að tala...“ SKRIFTIR GÓDAR GEGN ÖRYGGISLEYSI „Að skrifa," sagði Agatha Christie, „er gott fyrir fólk eins og mig, fólk sem þjáist af öryggisleysi og á erfitt með að tjá hug sinn í samræð- um...“ I byrjun fyrri heimsstyrjaldarinnar kynntist hún og giftist Archibald Christie majór, mynd- arlegum foringja í konunglega flughernum. Sjálf gekk hún í Rauða krossinn og vann við úthlutun matvæla. Kvöld nokkurt tveim árum síðar kom eldri systir Agöthu með sögulega athugasemd: „Ég þori að veðja að þú getur aldrei skrifað sóma- samlega leynilögreglusögu." „Þetta var ómótstæðileg áskorun," sagði Agatha Christie brosandi, „fyrir rithöfund sem hafði kynnt sér eiturlyfjategundir, hafði ofurást á Sherlock Holmes og þótti ekkert eins skemmtilegt og að myrða allar sögupersónur sínar i lokin ...“ Um þetta leyti bjó hópur af belgískum flótta- mönnum í nágrenninu. Vegna ástar sinnar á öllu framandi („Ég veit ekki hvort ég sá nokk- um þeirra") kaus Agatha Christie einn þeirra sem fyrirmynd að frægustu sögupersónu sinni, einkaspæjaranum Hercule Poirot; sérkenni- legri lágvaxinni persónu með egglaga höfuð, gríðarmikið yfirskegg, í skínandi blankskóm og með áráttu fyrir snyrtimennsku. Njósna- tækni hans byggðist á staðföstu trausti sem hann bar til „litlu gráu heilafrumanna". ERFITT AÐ FINNA ÚTGEFANDA AÐ FYRSTU BÓKINNI Hver varð svo árangurinn? „The Mysterious Affairs of Styles" sem hér um bil allir útgefend- ur í Englandi neituðu að taka til birtingar. Að lokum var þó bókin gefin út, árið 1920. Hún seldist í tvö þúsund eintökum og höfundurinn fékk sem svarar fjögur þúsund og fimm hundr- uð krónum í laun. „Ég var himinlifandi,“ sagði Agatha Christie, „en ef mér hefði dottið í hug að Poirot ætti eftir að búa með mér í fimmtíu ár hefði ég reynt að hafa hann svolítið yngri. Hann er orðinn nokkuð fornlegur." Agatha Christie var undrandi yfir þeim vin- sældum sem hann hlaut. „Hann ertæplega sú tegund leynilögreglumanna sem fólk fær nú til dags til að gera óvinum sínum lífið leitt." Hún var sjálf miklu ánægöari með kven- spæjara sinn, ungfrú Marple, sem er „úfin, rjóð, sakleysisleg, stór og ellileg". ÁNÆGÐARI MEÐ UNGFRÚ MARPLE EN POIROT „Hún er miklu skemmtilegri og það er fullt af ömmum og gömlum frænkum sem eru í eðli sínu mjög góðir njósnarar þegartil þess kemur að veita mannlegri náttúru athygli. Agatha Christie hélt áfram að sjóða saman leynilögreglusögur og áriö 1925 sendi hún frá sér fjórar spennandi skáldsögur. Eitt af því sem vakti henni mesta furðu seinna var hve þjónustufólkið var fjölmennt á heimilum í fyrstu bókunum hennar. Fingraför finnast á fagur- gljáðum silfurmunum, fótspor finnast auðveld- lega á vel slegnum grasbölum og miðstéttar- fólkið virðist aldrei þurfa að vinna fyrir sér. „Þetta kemur manni til að sakna fortíðarinnar." SLÓ ENDANLEGA í GEGN ÁRIÐ 1926 Það var um 1926 að Agatha Christie sendi frá sér „The End to the Murder and Roger Ackroyd" sem er líklega sú af skáldsögum hennar sem hún hefur orðið einna frægust fyrir. Með þeirri nýju hugmynd að láta aðal- persónuna og um leið þá geðugustu vera Albert Finney i hlutverki Poirot í kvikmyndinni Morðiö i Austurlandahraðlestinni. Og eins og í öðrum myndum gerðum eftir sögum Agöthu Christie eru aðeins úrvalsleikarar í hlutverkum. 19. TBL 1990 VIKAN 31

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.