Vikan - 20.09.1990, Blaðsíða 43
SUNG ■ ILMVÖTN OG SNYRTIVÖRUR
SEM LÍFGA UPP Á HUGMYNDAFLUGK)
HÁRGREIÐSLUSTOFA
MIÐVANGI 41, SÍMI 54250
Itíu ár, trá árinu 1976, rak
Alfred Sung litla snyrti-
vöruverslun ( Toronto,
Kanada. Verslunin varð að
stórfyrirtæki og nú er svo
komiö að hann er einn af virt-
ustu snyrtivöruframleiðendum
Ameríku og skærasta stjarnan
f tískuheiminum sem nokkru
sinni hefur komið frá Kanada.
Hann er japanskrar ættar en
fæddist í Sjanghæ f Kína árið
1948 og ólst upp í Hong Kong.
Sautján ára gamall fór hann til
Parísar að nema tískuhönnun.
Eftir að hafa lokið prófi þar
með hæstu einkunnir í öllum
greinum fór hann til New York
og vann þar um tfma sem fata-
hönnuður. Þaðan fór hann til
Kanada til að reyna fyrir sér á
eigin spýtur og síðan hefur
frami hans orðið skjótari en
nokkurn gat órað fyrir. Árið
1981 hélt hann eigin snyrti-
vörusýningu í New York. Hún
fékk frábæra dóma og verð-
laun að auki og síðan hafa
snyrtivörur hans orðið æ vin-
sælli og eru nú þekktar og virt-
ar um víða veröld. Þeir sem
hafa fylgst með tískuþáttum
Stöðvar 2 kannast áreiðan-
lega við þennan lágvaxna, við-
kunnanlega mann með tagl í
hárinu.
Sung hefur aldrei farið
troðnar slóðir eða valið auð-
veldar leiðir varðandi fram-
leiðslu á vörum sínum. Til
dæmis fékk hann einn fremsta
flöskuhönnuð Frakka, Pierre
Dinand, til að hanna glæsilegt
útlit á umbúðirnar utan um
snyrtivörurnar. Heimspeki
Sung-tískunnar byggist á
tímalausum glæsileika og
hver einasta ilmvatnsflaska er
handunnin í meira en 300 ára
gömlu glerverkstæði f Frakk-
landi, en þar hafa ómetnaleg
glerlistaverk og safngripir ver-
ið unnin undanfarnar aldir.
„Ilmvötnin mín,“ segir Sung,
„eru nánari útfærsla á tísku-
hugmyndum mfnum; eðlileg
framvinda einlægrar túlkunar
á því sem konar vilja og óska
sér.“ Og því má bæta við að
tímalaus ilmurinn er í senn
háþróaður og rómantískur og
ekki spillir klassísk hönnun
flöskunnar.
En Sung lætur ekki ilmvötn-
in ein nægja. Hann og sam-
starfsmenn hans hafa hugsað
fyrir öllu sem varðar snyrtivör-
ur frá baðherberginu til svefn-
herbergisins - frá snyrtiborð-
inu og út í ó ivintýri kvöldsins.
Of langt mál vrði að telja upp
ýmsar tegunt r af ilmvötnum,
húðkremum, . ípum og púðri
en Sung hefur ent á að ýmis-
legt rómantískt má gera við
iímefnin annað ei að bera þau
á úlnliði, háls og l-kama.
Ef SUNG.-sápari er sett í
náttfataskúffuna kemur mildur
ilmur af undirfatnaðinum' og
náttkjólunum. Sé hún falin
undir koddanum verða draum-
arnir Ijúfir.
Með því að sáldra SUNG-
púðri á sængurfötin verða þau
mjúk og ilma þægilega.
Sé örlitlu af SUNG Essential
Dry Oil Silkner úðað á kalda
Ijósageru í svefnherberginu
kemur rómantískur, mjúkur
ilmur þegar kveikt er og með
því að úða þessu á kerti endist
leyndardómsfullur ilmurinn
klukkustundum saman. SUNG
Dry Oil Silkner er annars fitu-
laus olía sem úðað er á húð-
ina til að yngja og mýkja og
Iffga upp þurra húð, gefa
henni silkimjúka tilfinningu -
og þekja hana með mildri
blómaangan.
Ilmvötn SUNGs eru nú þeg-
ar orðin söluhæst um öll
Bandarfkin en þar sem fyrir-
tækið krefst mikils af þeim
sem selja vörurnar, þá fást
þessi ilmvötn og snyrtivörur
aðeins í betri snyrtivöruversl-
unum. Hér á íslandi eru þær
fáanlegar í GASA, Reykjavík.
Fyrir jólin eru svo væntanlegar
fleiri vörur frá SUNG, s.s. lík-
amslína og herrailmur.
19. TBL 1990 VIKAN 43
TEXTI: ÞORSTEINN EGGERTSSON