Vikan


Vikan - 20.09.1990, Blaðsíða 11

Vikan - 20.09.1990, Blaðsíða 11
mitt sem algert skilyrði að þaö yrði sjúkrabíll á staðnum og súrefni á senunni því hann hefur misst röddina. Það gerð- ist um miðjan síðasta áratug og það er náttúrlega það versta sem getur komið fyrir mann í þessari stöðu. Eftir tónleikana fór hann beint upp á hótel og þar voru fengnir læknar til þess að sjá um hann því hann var kominn með 40 stiga hita og var þannig allan laugardaginn. Um kvöldið kemur síðan Rudy bassaleikari og spyr mig hvort ég vilji ekki taka lagið með þeim. Mér náttúrlega dauðbrá en sagði strax já. Og ég stakk upp á gamla slagar- anum Wild Thing. - Jú, ekkert mál, sögðu þeir. - Við reddum því. Svo kom að því að ég þurfti að kynna veikindi Coverdale fyrir salnum og áður en ég gerði það kom Steve Vai til mín og vildi fá að vita ná- kvæmlega hvað ég ætlaði að segja. Ennfremur lagði hann á það mikla áherslu að allt eins gæti helmingurinn af salnum fariö út. En einnig sagði hann mér að leggja ríka áherslu á að hinir ætluðu að spila með annan söngvara í stað Cover- dale. Sá er Peter Simonsen og er mjög virtur hljómborðsleik- Frá blaðamannafundi Whitesnake á Hard Rock Café. Það eru rokkþáttagerðarmenn Stjörnunnar og Stöðvar 2, sem þarna eru að störfum. ari í L.A. Hann syngur yfirleitt með Coverdale á tónleikum, hefur verið svokallaður radd- ari. Og það má líka koma hér fram að þetta er í fyrsta skipti á ferli Coverdale sem hann hefur þurft að aflýsa tónleikum hjá sér vegna veikinda. Þetta er ekki hlutur sem hann gerir að gamni sínu. Rétt áður en ég fer svo á sviðið kemur framkvæmda- stjóri Whitesnake og segir að ég megi alls ekki kynna strák- ana sem Whitesnake því þetta sé ekki Whitesnake - ef ég geri það muni þeir ekki mæta. Það þurfti því að fara mjög fínt í hlutina. Fyrr en varði var þó grúppan komin á sviðið undir stjórn Steve Vai og þeir voru staðráðnir í að reyna að bæta áhorfendum þetta upp.“ - Svo steigst þú á sviðið í lok prógrammsins hjá þeim. Hvernig leið þér? „Þetta var náttúrlega æðis- legasta stund sem maður hef- ur upplifað. Ég vissi ekki í hvaða tóntegund lagið átti að vera eða hvernig þeir ætluðu að taka lagið en þetta gekk bara vel og baksviðs eftir tón- leikana kom Steve með kon- íaksglas til mín og sagði: - Gjörðu svo vel, þetta var æðis- legt. Og ég var náttúrlega hress með þetta og á eftir að lifa lengi á þessu.“ □ FYRIR KARLMENNI ACTIVE BODIES ACTIVE BODIES adidas ^ Aftcr Sliuvc l-au dc Colognc \ ACTIVE BODIES ER NÝ HERRALlNA FYRIR ÞÁ ATHAFNASÖMU. FÁANLEGT SEM EAU DE TOILETTE, AFTER SHAVE, DEO STICK, SHOWERGEL, OG COOLING BODY LOTION. ACTIVE BODIES.

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.