Vikan


Vikan - 20.09.1990, Blaðsíða 40

Vikan - 20.09.1990, Blaðsíða 40
DEAN STOCKWELL TÍMAFLAKKARINN ÚRRÆÐAGÓÐI Um leikarann Scott Bakula sem leikur aðalhlut- verkið í þóttunum Ferðast um tímann á Stöð 2 Leslie Sachs í gestahlutverki í Ferðast um tímann. Hún leikur skólastúlku sem verður skotin í enskukennaranum sínum. Á efri myndinni sést Scott Bakula með mótleikara sínum, Dean Stockwell. Scott Bakula heitir hann, 35 ára gamall og var í lögfræðinámi þegar hon- um fór að leiðast þófið, hætti og gerðist farandleikari með flokki sem sýndi söngleikínn Godsþell. Sýningin gekk ekki en Scott var ákveðinn í að halda áfram að leika og flutti frá St. Louis til New York árið 1976. Þar fékk hann hlutverk hjá öðru ferðaleikhúsi sem sýndi verkið Shenandoah. Önnur hlutverk með ferða- leikhúsum fylgdu í kjölfarið svo að hann vandist fljótlega flakkinu. Svo var það fyrir tíu árum þegar hann var að ferð- ast um Cincinatti og lék í leikritinu Kona bakarans að hann kynntist tilvonandi eigin- konu sinni, Kristu. Hún lék á móti honum. Er nú ekki að orð- lengja það að sex árum síðar gengu þau að eiga hvort annað. Þau hjónin, nýgift og hamingjusöm, afréðu að flytja til Los Angeles til aö næla sér [ frægð og frama. Nú á hann sex ára dóttur og tvö hús; ann- að í Silver Lake í Kaliforníu en hitt er bóndabýli norðarlega [ fylkinu New York. Hann var ekki mjög hepþinn með tvær fyrstu sjónvarpsser- íurnar sem hann fékk hlutverk í, Gung Ho og Eisenhower & Lutz, svo að fjölskyldan fór aftur til New York þar sem Scott fékk hlutverk í Brodway- sýningunni Romance/Rom- ance. Þar stóð hann sig svo vel að hann var útnefndur til virðulegra verðlauna sem hann fékk að vísu ekki. Hann fékk frábæra dóma fyrir leik sinn en hann lét þá ekki hafa nein áhrif á sig. Las þá ekki einu sinni. „Ef maður trúir þeim,“ segir hann, „lendir maður í vand- ræðum. Góðum eöa slæmum. Konan mín segir að ég eigi að lesa leikdóma og læra að taka hæfilegt mark á þeim. En ég held aö það sé ekki hægt að lesa leikdóma um sjálfan sig öðruvísi en að láta þá hafa einhver áhrif á sig.“ Þegar byrjað var að sjón- varpa Ferðast um tímann stóð ekki á leikdómunum. Þessir óvenjulegu þættir fengu frá- bæra dóma bæði meðal leik- dómara og almennings. Þeir hafa náð þvílíkum vinsældum að ákveðið hefur verið að fjölga þeim og Scott getur haft það náðugt. Dean Stockwell, mótleikari Scotts, segist alveg klár á því að þessi 35 ára flakkari hafi eitthvað við sig sem áhorfendur kunna að meta. „Annaðhvort hefur maður hæfileikana sem þarf í þetta eða ekki. Hann hefur þá og sömuleiðis kraftinn til að standa undir þeirn." í rauninni finnst Scott öll þessi velgengni svolítið trufl- andi þar sem hann getur ekki eytt eins miklum tíma með fjöl- skyldu sinni og hann langar til. „Það erfiðasta við þetta,“ segir hann, „er að Krista og dóttir m(n, Chelsy, fara sínar eigin leiðir og ég verð að reyna að fylgja þeim eftir. Ef Chelsy hef- ur ákveðinn háttatíma og ég kem allt í einu heim vill hún endilega fara á fætur og það raskar öllu kerfinu. Síöasta vor kom ég oft seint heim og svefnleysið var virkilega farið að sjást á barninu. Konan mín er fljót að sjá út svona hluti svo að hún skipaði mér eiginlega að taka nmér frí frá störfum til að ræða málin." Eftir að málin höfðu verið rædd f sumar og allt var aftur orðið klappað og klárt var svo tekið til við að mynda nýja þætti af Ferðast um tímann - þar sem frá var horfið. □ Stjarna sem leiðist að leika í kvik- myndum Dean Stockwell er orð- inn gamall í hettunni enda fæddur inn f skemmtiaðal Hollywoodborg- ar. Faðir hans vann sér það þó helst til frægðar að vera rödd prinsins í teiknimynd Walts Disney um Mjallhvíti og dvergana sjö. Hins vegar var hann óþreytandi að koma syn- inum á framfæri í kvikmyndum enda hafði Dean leikið f 22 myndum hjá MGM þegar hann var aðeins 15 ára. Hann var búinn að fá varan- lega andstyggð á MGM 16 ára gamall og fór í langskólanám, hætti fljótlega á menntabraut- inni og fór að flækjast um Bandaríkin. Eftir fimm ára flakk, sem ekki var alltaf dans á rósum, hafði hann komist að raun um að margt er erfiðara en að leika í kvikmyndum. Hann fór því aftur að leika og fékk m.a. verðlaun í Cannes fyrir leik sinn f „Long Days Jo- urney Into Night.“ Þá kvæntist hann leikkonunni Milly Perkins (sem meðal annars lék aðal- hlutverkið í kvikmynd um dag- bók Önnu Frank) og bjó með henni í tvö ár. En honum leidd- ist alltaf að leika og hætti því alveg þegar komið var fram á sjöunda áratuginn. Þá fór hann að halda sig innan um hippa og hugsuði þegar hann var ekki að slæpast með Jack Nicholson, Neil Young, Eric Clapton og Denis Hopper. Þriðja kvikmyndaferil sinn hóf hann svo árið 1983 og lék þá bróður flakkarans f mynd Wims Wender „París, Texas“ sem hlaut fyrstu verðlaun í Cannes. Síðan hefur hann leikið í mörgum stórmyndum s.s. Blue Velvet, Beverly Hills Cop II, Married to the Mob og Tucker þar sem hann lék How- ard Hughes. Hann þykir hafa staðið sig vel í þessum mynd- um svo að kannski er hann farinn að sætta sig við starfið. Sjónvarp virðist þó eiga betur við hann en kvikmyndir en hann leikur annað aðalhlut- verkið í þáttaröðinni Ferðast um tímann.

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.