Vikan


Vikan - 20.09.1990, Blaðsíða 7

Vikan - 20.09.1990, Blaðsíða 7
Rekur eigin snyrtistofu Frh. af bls. 4 sömu menntun og ég, samein- ar snyrtifræðina og fótaað- gerðir. Það munar talsverðu fyrir viðskiptavinina að geta fengið alhliða snyrtiþjónustu á sama stað, þekkja starfsfólkið og ná að mynda þessi þægi- legu tengsl sem mörgum er nauðsynlegt að hafa við þá sem vinna svona náið með lík- ama þeirra. Viðskiptavinir mínir eru .flestir konur en þó hefur það aukist að karlmenn komi til dæmis í fótaaðgerð. En auð- vitað er það miklu fleira sem við getum gert fyrir karlmenn- ina í okkar fagi, eins og til dæmis varðandi alls konar húðvandamál og húðhreinsun. Það er alltof útbreiddur mis- skilningur að karlmenn þurfi ekkert að hugsa um húðina og ég skil ekki þá þröngsýni að halda að það sé eitthvað til að fyrirverða sig fyrir að vilja ekki ganga um með Ijóta húð þó Ágústa á snyrtistofu sinni aö snyrta forsíðustúlku þessa tölublaðs Vikunnar, Hlaðgerði írisi Björnsdóttur. maður sé af hinu sterkara kyni. Sem dæmi nefni ég að ungir menn, unglingspiltar, ættu margir hverjir að drífa sig hið fyrsta á góða snyrtistofu til að fyrirbyggja Ijót ör, ójöfnur og sprungur í húðinni sem oft verða þaulsætnar hjá þeim sem fá hinar svonefndu unglingabólur og sambærilega kvilla. Þar má vinna mikið fyrir- byggjandi starf. Annars eru viðskiptavinir mínir á nánast öllum aldri, sá yngsti var eitthvað 12-13 ára og þær elstu eru komnar hátt á áttræðisaldur. Mig minnir meira að segja að elsti við- skiptavinur minn, mjög elsku- leg og þægileg dama, standi einmitt á áttræðu. Ég má til með að beina þvf til þeirra sem eru að velta fyrir sér að fara út í sjálfstæðan rekstur að kynna sér málin vel frá öllum hliðum, hafa báða fætur á jörðinni og fara sér frekar hægt en hitt. Það er svo erfitt að vinda ofan af hlutun- um aftur ef menn fara til dæm- is út í alltof óhagstæð tækja- kaup, rándýra húsaleigu og svo framvegis." □ It is , named FANTAS and makes Mondays PINK, Tuesdays RED and Wednesdays PURPLE.

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.