Vikan - 20.09.1990, Page 10
MYNDIRNAR ( ÞESSARI OPNU TÓK HAUKUR SNORRASON.
Þaö er ekkert smáræðis mál
að halda utan um svona fyrir-
tæki. Til dæmis var gengi af
trésmiðum byrjað að setja upp
sviðið á mánudaginn fyrir tón-
leikana. En þessi náungi, All-
an Ball, er virkilega skipulagð-
ur í þessu og hann segir að
þetta sé bara byrjunin hjá sér
því hann er nú þegar farinn að
sverma fyrir Eric Clapton, Dire
Straits og fleiri stórum nöfnum.
Hann á þakkir skildar fyrir að
koma íslandi aftur á landakort-
ið hjá svona stórum böndum
því Whitesnake er ekki fyrsta
bandið sem hann flytur inn.
Hann kynnti nefnilega þessa
hugmynd fyrir bandinu, það er
að enda tónleikaferðina, sem
þeir voru á, hér, kíkja í lax og
skoða sig aðeins um hérna.
Þetta er virkilega sniðugt en
fyrir mig var þetta gamáll
draumur að rætast, White-
snake búin að vera uppá-
haldsgrúppan í yfir áratug."
- Má ekki segja að þessir
tónleikar hafi verið ákveðinn
prófsteinn á hvort hér sé hægt
að halda tónleika af þessari
stærð - með öllu sem því
fylgir, forsölu og kreditkortalín-
um svo dæmi séu tekin?
„Jú, þaö er málið. Og bönd-
in vilja fá ákveðnar upphæöir
á ákveðnum tíma fyrir tónleik-
ana. Síðan er dæmið að fullu
greitt áður en hljómsveitin
leggur af stað til landsins.
Þetta er geysistórt peninga-
spursmál en það tókst að
ganga frá öllu sem að því
sneri og það er því aö þakka
hvað Allan er klár og skipu-
lagður í sinni vinnu. Hann á
mikinn heiður skilinn fyrir
frammistöðu sína varðandi
þessa tónleika."
Við förum út i allt aðra
sálma og víkjum talinu að
sjálfum rokkstjörnunum. Ég
bað Pétur að segja mér hvern-
ig viðkynningu hann hefði haft
af þeim.
„Mér fannst nú David
Coverdale vita pínulítið hver
hann væri, dálítið rogginn með
sig, en þegar maður fór að tala
við hann virtist hann stórvel
gefinn og klár. Whitesnake er
David Coverdale og fyrirtækið
í kringum hljómsveitina er í
hans eigu. En hann er ánægö-
ur ef hann getur borgað strák-
unum launin sín.
Steve Vai gítarleikari er hins
vegar dálítill einfari í hljóm-
sveitinni, vill vera svolítið sér á
parti en er engu að síður
ágætis náungi. Ég fann þarna
á þessum stutta tíma sem þeir
voru hérna að það ríkir svolítil
togstreita á milli Coverdale og
Vai því Steve er núna með
sólóplötu í gangi í Bandaríkj-
unum sem hefur selst í hátt í
milljón eintökum. Og það hefur
verið slúðrað svolítið um það [
erlendu popppressunni að
hann eigi eftir að hætta í
hljómsveitinni. Whitesnake fer
í frí núna eftir Japan-túrinn og
þá fer hann sennilega að fylgja
eftir sinni plötu og svo er bara
spurning hvort hann verður
með á næstu plötu.
Ég kynntist Adrian Vanden-
berg gítarleikara og Rudy
Sarzo bassaleikara svolítið
því þeir voru að árita plötur hjá
okkur í Skífunni. Og þeir eru
A Söngvari Whitesnake.
◄ Söngvari Quireboys.
báðir æðislega einlægir og fín-
ir náungar. Rudy Sarzo er
greinilega mjög skarpur
náungi og vel gefinn. Hann var
geysilega forvitinn um allt
mögulegt, svo sem efnahag
landsins og fleira sem kemur
rokkspilamennsku alls ekkert
við. Trommarinn er Tommy
Aldridge, ég kynntist honum
langminnst en hann sýnist
vera svona ósköp venjulegur
náungi."
Spjallið barst að Quireboys.
„Þeir hafa á sér svona fylli-
byttuímynd en það fyndna er
að þeir smakka það ekki sama
dag og þeir spila. Þetta er bara
ímyndin sem þeir halda úti.
Breska pressan gleypti við
þessu og dró upp þá mynd af
þeim að þeir færu í partí eftir
tónleika, dræpust þar, færu
ekkert í bað daginn eftir og þar
fram eftir götunum. Á meðan
þeir voru hér var haldið úti
partíum í L.A. Café eftir báða
tónleikana fyrir þá og ég veit
ekki betur en þeir hafi bara
verið mjög ánægðir með að
vera hérna. Á laugardeginum,
þegar ég var að segja þeim aö
Coverdale væri forfallaður, þá
fannst þeim voðalega spenn-
andi að vera aðalnúmerið um
kvöldið, virkilega ánægðir með
það.“
- Hvað geturðu sagt mér
um veikindi Davids Coverdale
og ringulreiðina þarna á laug-
ardagskvöldinu?
„Þegar ég er kominn þarna
upp eftir heyri ég að David
Coverdale komi ekki. Það kom
í Ijós á föstudagskvöldið að
hann var að veikjast og það
þurfti til dæmis að gefa honum
þrisvar sinnum súrefni á tón-
leikunum. Hann setti það ein-
10 VIKAN 19. TBL. 1990