Vikan - 20.09.1990, Page 13
(0
PREVENANCE. HELDUR í VIÐ TÍMANN.
PREVENANCE, Á UNDAN SINNI SAMTÍÐ
Prevenance notist kvölds og morgna, fyrir allan aldur,
konur sem karla.
PREVENANCE... AÐEINS Á UNDAN
hana aldrei setja mig út at lag-
inu. Ég skrifaði ævintýri þegar
það þótti síðasta sort, einfald-
lega vegna þess að mér finnst
lífið sjálft vera svo þrungið
ævintýrum. Það var eins og
fólk í tónlist og málaralist
mætti leyfa sér allt og fara út
fyrir línur raunveruleikans
meðan rithöfundum var hrein-
lega bannað að gera það.
Þannig var þetta á tímabili þótt
sem betur ier hafi það breyst.
Ég hef alla tíð litið svo á að eft-
ir því sem alvaran í umhverfi
barnanna er meiri og þau
klemmdari og afskiptari í þjóð-
félaginu hafi þau meiri þörf fyr-
ir hvíld frá þeim heimi sem þau
upplifa í alvörunni. Þau þurfa
þá að stökkva út úr sjálfum sér
og láta hugmyndaflugið njóta
sín, skilja hinn partinn eftir í
hvíldarstöðu um stund. Ef ein-
hverjir hafa þörf fyrir það þá
eru það börnin. Ég tel mig
nokkuð dómbæra á það þar
sem ég hef kennt börnum í
heil þrjátíu og sjö ár.
ÞAÐ ER GOTT
f BÖRNUNUM EFNIÐ
Börn hafa auðvitað ekkerf
breyst í eðli sínu en aðstæður
allar hafa gjörbreyst svo yfir-
borðið er sífellt breytingum
háð og stórmerkilegt hvað þau
halda sér þrátt fyrir erfiðar
kringumstæður á stundum.
Það er gott í þeim efnið og ég
trúi á börn. Engu að síður eru
börn djarfari nú en áður og lík-
lega færri haldin minnimáttar-
kennd og feimni og er það af
hinu góða. Minnimáttarkennd
er eitt það versta sem ég hef
kynr.st í fari barna á ferli mín-
um sem kennari. Aukin tauga-
spenna er svo óneitanlega
það sem ekki er gott og
sporna verður við með öllum
ráðum. Það eru alltaf bæöi
plúsar og mínusar í því sem
fyrir mann kemur í lífinu. Full-
orðnir mega hins vegar varast
feilsporin meðan börnin
standa við sitt.
Börn eru í mínum huga svo
vitur að stundum gerir augna-
ráð þeirra mig feimna, rétt eins
og þau sjái í gegnum mann.
Tvöfeldni og tvískinnungur er
nokkuð sem þau ein geta lesið
nákvæmlega út úr framferði
þeirra sem þau umgangast.
Því er heiðarleiki og einlægni í
tilsvörum það mikilvægasta
sem við hinir fullorðnu getum
tileinkað okkur í návist þeirra,
segir Herdís Egilsdóttir,
mamma hans Pésa.
I lok myndarinnar um Papp-
Írs-Pésa syngja allir Allt í plati,
lag Valgeirs Guðjónssonar.
Þetta eru orð sem við þekkjum
Ingólfur Guðvarðarson og
Högni Snær Hauksson í
hlutverkum sínum.
öll og þótt orðið plat sé nokkuð
sem börnin eigi ekki að við-
hafa bera þau með sér sáttfýsi
og eru til vitnis um að galsan-
um sé lokið og leiknum lokið í
sátt og samlyndi. Meira að
segja viöskotailli feiti karlinn
(leikinn af Magnúsi Ólafssyni),
sem í myndinni er að rífast og
skammast í krökkunum og til
alls líklegur í viðskiptum við
þau, brosir út að eyrum og
fyrirgefur hrekkjalómum
prakkaraskapinn þegar hann
syngur með þeim lokalagið.
Kristmann Óskarsson með
Pappírs-Pésann sinn í relðtúr.
19. TBL 1990 VIKAN 13