Vikan - 20.09.1990, Blaðsíða 14
TEXTI: PÓRDÍS BACHMANN
VOGARMERKIÐ
Leggja hart að sér að
fullkomna sambönd sín
Vikan hefur nú göngu
stjörnumerkjapistla meö
nýju sniði. Annars vegar
verður fjallað um merki mán-
aðarins og plánetu þess og
hins vegar verður farið yfir
samskiptakort einhvers úr
merkinu og maka viðkomandi.
Það er Gunnlaugur Guð-
mundsson sem gerir sam-
skiptakortin en f þeim má
sannarlega segja að velt sé
upp spennandi spurningum
um samskipti - ekki bara
þeirra einstaklinga sem fjallað
er um hverju sinni heldur
spurningum sem öllum koma
við og vert er fyrir fólk að velta
fyrir sér og spyrja sjálft sig.
STÖÐUGT LOFT
Fyrsta merkið, sem við tök-
um fyrir, er Vogin en hún er
sjöunda merkið í stjörnu-
hringnum, stöðugt loft.
Helstu hugðarefni Vogarinnar
eru félagsskapur, hjónaband
og öll opin samskipti (Fiskarnir
fást við dulin samskipti).
Pláneta Vogarinnar er ást-
ar- og fegurðarplánetan Ven-
us enda segir nafn plánetunn-
ar töluvert til um eðli hennar.
Venus táknar hvort tveggja í
senn, það sem við viljum fá frá
öðrum og það sem við erum
sjálf reiðubúin að gefa. Hún er
einnig táknræn fyrir það sem
vekur með okkur ást.
Að baki ástar liggur gildis-
mat, það er að segja hvað við
metum í fari annarra. Venus er
því táknræn fyrir félagslegt
gildismat okkar og einnig við-
horf okkar til peninga og þeirra
hluta sem við metum og viljum
eiga.
Sterkur þáttur í orku Venus-
ar er að draga saman og leita
þess sem sameinar menn.
Hún vill sætta hið ólíka og
finna sameiginlegan flöt sem
allir geta tekið mið af. Venus
skapar því friðsamt og rólynt
fólk sem vill frið og samvinnu
en ekki sundrungu, keppni
eða baráttu.
Ef orka Venusar er I ójafn-
vægi getur hún leitt til eyðslu-
semi, leti, vergirni, skemmt-
anasýki eða skapað of eftir-
gefanlegan persónuleika.
Einnig getur Venus í ójafn-
vægi skapað mann sem á i
félagslegum erfiðleikum og er
óstöðugur í tilfinningatjáningu,
hefur óþroskað fegurðarskyn
og óljóst gildismat.
LEITA ÞESS SEM
SAMEINAR MENN
Sólin og máninn eru himin-
foreldrar okkar og eru þau full-
trúar annars vegar þess afls
sem kemur lífinu af stað og
hins vegar hins bíðandi frum-
skeiðsefnis sem allt líf er
myndað úr. Venus er dóttir
mánans og er hún táknræn
fyrir öll þau form sem hin mikla
móðir sendir frá sér. Tákn
q hennar vísar á þessa
staðreynd því það opin-
berar hjónaband karlkyns og
kvenkyns aflanna i alheimin-
um í eitt yfirforeldri, Jehovah
(hringurinn). ■
Samkvæmt stjörnuspekinni
stjórnar Venus tveimur
merkjum, annað þeirra er karl-
kyns (Vogin) og hitt kvenkyns
(Nautið).
Öll konungsríki lífsins eru
útstreymi frá móður náttúru
(Venus í Nauti); ímynd hins
fullkomna jafnvægis milli
kvenkyns og karlkyns hlut-
anna í allri sköpuninni tengist
Venusi í Vog. Hjónabönd eru
undir yfirráðum Vogarinnar en
hinar praktísku afstöður jarð-
lífsins, svo sem matur, föt og
heimili, stjórnast af Nautinu.
I bæði grískum þjóðsögum
og hindúa stígur Venus upp úr
hafinu (á lótusblómi f indversku
útgáfunni). Um leið og Venus
er fædd tekur hún við skyldum
sínum sem hinn örláti gefandi
gjafa og ánægju lífsins, því
hún er persónugervingur feg-
urðar og vaxtar. Hennar starf
er að innblása manninum
þrána eftir efnalegum og and-
legum vexti. Hún er verndar-
gyðjan og eitt hinna helgu dýra
hennar er dúfan.
GEGNUM LÍFIÐ Á
ÞOKKAFULLAN HÁn
Vogirnar hafa fullkomlega
skapaðan líkama og Vogar-
konur smjúga gegnum lífið á
þokkafullan hátt. Þeir eru yfir-
leitt einstaklega aðlaðandi,
miklar daðurdrósir og alltaf til-
búnar að láta reyna á hvort
þeim takist að draga að sér at-
hygli hins kynsins. Það þýðir
þó ekki endilega að þeim sé
alltaf alvara með þeim leikjum
sem þær leika. Þvert á móti
eru þær ístöðulausar og
hverfa á brott úr sambandinu
ef þær eru komnar upp að
vegg.
Sumar fegurstu konur
heims eru í Vogarmerkinu og
tvær þeirra hafa hvor um sig
verið kallaðar „fegursta kona
Frakklands" en það eru ást-
argyðjurnar Birgitte Bardot og
Catherine Deneuve.
KARLAR MERKISINS
ÖRLAGASJARMÖRAR
Karlmenn í Vogarmerkinu
eru örlagasjarmörar. Þeir vita
af eðlisávísun hvað á að segja
svo konu finnist hún girnileg.
Þeir kunna aö kalla kvendýrið
fram í maka sínum og tekst
yfirleitt vel að tjá sig líkamlega.
Dæmigerður Vogarmaður
virðist gjarna hafa eitthvað list-
rænt og menningarlegt við sig
og Vogarmenn eru sjaldan
mikil vöðvabúnt heldur grannir
og allt að því fínlegir.
VETTVANGUR HENNAR
FÓLK OG VEISLUHÖLD
Vogin er loftmerki og vett-
vangur hennar er fólk og
veisluhöld. Því meira sem
Vogin skemmtir sér þeim mun
betur líður henni en Vogarfólk-
ið er rómantískt og leitar ávallt
að félaga. Vogarmanni líður
illa ef hann er einn og mun
leita eftir félagsskap vina ef
hann ekki á ástkonu. En þó
félagslífið sé fjörugt er Vogar-
maður án ástkonu einmanaleg
vera.
Vogir leggja hart aö sér við
að fullkomna sambönd sín og
eiga til að ráðskast með ást-
vini sínum sem jafnvel gæti
leitt til sambandsslita.
Vogin kærir sig ekki um að
sjá neina tegund raunveru-
leika ef hann er óþægilegur
eða vægðarlaus. Hún reynir
að breiða yfir vandamál sem
eru of erfið eða gætu valdiö
þunglyndi og kærir sig heldur
ekki um að heyra um vanda-
mál félaga sinna.
ALLTAF AÐ SKAPA
PARADÍS í HUGANUM
Vogarfólk vill vera létt, loft-
kennt og ístöðulaust, alltaf að
skapa paradís í huganum og
fegurð á jörðu. Hjá óþroskuð-
um Vogum er draumurinn oft
mikilvægari en það ástand
sem viðkomandi er í. Þessar
Vogir festast því miður allt of
oft í þokukenndum draumór-
um sínum án þess að viður-
kenna ósennileika þeirra eða
koma niður á jörðina nægilega
lengi til að reyna að gera þá að
veruleika.
Allar Vogir dást að fögrum
munum. Litir heilla þær og
eins og Ljónin eru þær hrifnar
af fallegum fatnaði og skarti.
Fágaðar Vogir klæða sig
glæsilega og leita uppi fallega
hönnun en Vogirnar í hinni
vogarskálinni eiga til að klæða
sig áberandi og jafnvel æp-
andi.
14 VIKAN 19. TBL. 1990