Vikan - 20.09.1990, Blaðsíða 24
hafnargarðinn. Hárkjallarinn
gerði þarna herratískunni góð
skil. Fimmta og jafnframt síð-
asta atriðið frá hárgreiðslu-
stofu var frá hárgreiðslustof-
unni Carmen. Ekki kann ég
gagngera skilgreiningu á
þessu mjög svo frumlega atriði
þar sem fjórar stúlkur fettu sig
og brettu eftir einhvers konar
frumskógartónlist, íklæddartil-
vitnunum f hippatímabilið.
Forvitnilegast var þó að hvern-
ig sem þær létu var varla
greinanleg breyting á hár-
greiðslu þeirra.
Inn á milli atriða stofanna og
landsliðsins var skotið atriðum
▲ Þetta faliega par var „gefið saman“ i
nafni Cleo á Hótel fslandi.
◄ „Madonna"
Hárgreiðslu- og
rakarastofunnar
Klepparstíg, i
góðum höndum.
þar sem hárgreiðsla var ekki í
brennidepli og gerðu það að
verkum að sjálf hárgreiðslu-
atriðin nutu sín enn betur.
Módelstúlkur landsliðsins f
hárgreiðslu sýndu fatnað og
dansarar sýndu suður-amer-
íska og standard-dansa. Sýn-
ingunni lauk síðan með sýn-
ingu landsliðsins f hárgreiðslu
þar sem sýndar voru viðhafn-
argreiðslur og var ekki laust
við að gamla góða þjóðernis-
kenndin gerði vart við sig þeg-
ar meistararnir afhjúpuðu verk
sín. Landsliðið í hárgreiðslu er
skipað þeim Þórdísi Helga-
dóttur, Dórótheu Magnúsdótt-
ur, Sólveigu Leifsdóttur og
Helgu Bjarnadóttur. Landsliðið
í hárskurði, sem keppir í
heimsmeistarakeppninni í
hársnyrtingu, er skipað þeim
Irisi Sveinsdóttur, Jóni Guð-