Vikan - 20.09.1990, Side 45
ÁST, PENINGAR OG
HÚSNÆÐI
í hjónabandi gilda oftast önnur
lögmál hvað varðar ástina en
þegar við erum börn. Við þurf-
um að deila henni meira þar
sem börnin taka sitt, auk þess
eru ýmis mál sem þarf að
leysa. Peningamál, húsnæðis-
mál, uppeldi barna, auk eins
og annars sem til fellur í fjöl-
skyldu, eru allt hlutir sem krefj-
ast bæði tíma og þolinmæði.
Þegar svo ofan á allt bætist
drykkjuskapur maka er von að
það öryggi og væntingar sem
við komum með úr uppvextin-
um hrynji smátt og smátt til
grunna og eitt og annað að
auki. Við getum fæst vænst
þess að í maka okkar þrífist
endilega þeir eiginleikar sem
foreldrar okkar bjuggu yfir.
Rætur vonbrigða með maka
liggja oftast í þvi að við erum f
of miklum samanburði á hon-
um og því foreldrinu sem ann-
ars vegar átti takmarkalausa
ást okkar og við svo á móti alla
ást þessa heppna foreldris.
VÆNTINGARNAR
OF MIKLAR
Við verðum þar af 'leiðandi
töluvert kröfuharðir makar og
viljum framhald af ást uppvaxt-
arins í hjónabandinu. Við
erum hæfari til að gefa ást af
því að við vorum elskuð en á
móti vanhæfari til að skílja erf-
iðleika þeirra sem bara þiggja
ást en kunna ekki að gefa
hana. Svo á vissan hátt getur
of mikil ást í uppvexti veikt
okkur sem fullorðið fólk, ekki
síður en ástleysi sem er ömur-
legt. Ást á barni þarf ekki alltaf
að vera gæfa því að ef henni
fylgir ekki agi og ábendingar
þegar við á verður hún við-
komandi fótakefli síðar á æv-
inni. Hitt er svo annað mál að
það er dásamlegt veganesti
fyrir barn í uppvexti að fá ást
og aga í heppilegum hlutföll-
um og kemur sér örugglega
vel í allri framtíð barnsins.
BÖRN FRÁ FYRRA
HJÓNABANDI
Börn frá fyrra hjónabandi, sem
fylgja til dæmis móður eins og
þér, kæra Lilja, inn I sambúð
eru því miður oft fyrirstaða í
augum hins aðilans, þegar hiti
tilhugalífsins er kulnaður og
alvaran tekur við. Á meðan
verið er að byggja upp tilfinn-
ingasamband er ekki svo mik-
ið verið að spá í hugsanlega
erfiðleika sem sambúðinni
geta óneitanlega fylgt.
Móðir, sem á mörg börn og
hefur auk þess nánast alið þau
upp ein eins og þú vegna
drykkjuskapar maka, er miklu
tengdari börnunum sínum og
þau henni en venjulegast er.
Hún hefur orðið að berjast
eins og Ijón til að passa upp á
velferð þeirra í sambúð við ó-
fullkominn föður. Síðan heldur
þessi ábyrgðarkennd tví-
mælalaust velli í nýrri sambúð,
alveg sama hvað ástin á nýj-
um maka verður heit. Þetta
fellur kannski ekki maka - ó-
meðvitað hugsanlega - og þar
af leiðandi getur hann orðið
leiðinlegur og ósanngjarn,
vegna afbrýðisemi og pirrings
út í fortíð maka síns. Sett eru
á svið alls kyns leiðindi og
ósanngjarnar athugasemdir
látnar fjúka.
HVAR Á BARNIÐ AÐ
LEITA ÖRYGGIS?
Barnmargi makinn verður
óöruggur og sennilega of
undirgefinn, til að reyna að
hlífa börnunum sínum við
hugsanlegum árekstrum við
nýja makann. Þetta veldur því
náttúrlega að áður en við vit-
um af eru valdahlutföllin á
heimilinu orðin röng, nýi mak-
inn breiðir úr ofríki sínu í skjóli
þess að barnamakinn telur sig
þurfa að gefa eftir á alröngum
stöðum til að fá yfirhöfuð að
veita börnunum sínum ást,
öryggi og jafnvel athvarf hjá
sér. Þetta er fáránleg en eigi
að síður algeng þróun því
börnin okkar eiga alltaf að eiga
athvarf hjá okkur svo fremi að
sem þau séu ekki ábyrgðar-
laus og gjörn á að notfæra sér
okkur foreldrana þegar þau
nenna ekki að sjá um sig sjálf.
Hitt er svo annað mál að
það gefur auga leið að börn,
sem einungis eru um tíma
undir forsjá til dæmis móður,
verða óafvitandi frekar eigin-
gjörn á hana. Þessi börn eru
oft viðkvæm fyrir nærveru
þess einstaklings sem keppir
við þau um athygli móður
þeirra og geta þvi verið óþjál
og erfið, án þess beinlinis að
ætla það kannski.
Eins er með maka sem
verður að deila konunni sinni
með kannski mörgum börnum
hennar af fyrra hjónabandi.
Hann getur fundið fyrir sam-
keppni sem gerir hann afbrýði-
saman og ósanngjarnan, án
þess að viðkomandi raunveru-
lega ætli sér slíkt. Þetta gerir
svona sambúðarform mjög
erfitt fyrir þann hjónabands-
aðila sem verður að vera í
striði við börnin sín frá fyrra
hjónabandi og svo náttúrlega
nýjan sambýlisaðila. Það þarf
ekki mikla misklíð til að allt fari
upp í loft.
Hitt er svo annað mál að
ekkert heilbrigt foreldri lokar
dyrum heimilis sins fyrir börn-
unum sínum, hvort sem um
maka er að ræða eða ekki.
Það er fáránlegt aö fara fram á
slíkt við viðkomandi, alveg
sama hversu erfitt það kann
að vera fyrir maka. Þú ansar
ekki svona yfirgangi því ef þú
gerir það ert þú að viðhalda
vanþroska nýja makans vegna
fortíðar þinnar sem þú getur
ekki flúið.
RÁÐRÍKI OG REIÐI
Það kemur mjög skýrt fram í
skriftinni þinni að þú hefur
sterka réttlætiskennd sem nær
lengra nefi þínu. Það þýðir að
allt óréttlæti fer ömurlega í
taugarnar á þér og þess vegna
er ekki nema von að þú sért
orðin yfirmáta reið og svekkt út
í maka þinn. Hvernig sem þú
reynir að vera sanngjörn
ásækja þig endalaus von-
brigði. Eins virðist ráðríki
maka þíns ná yfir eitt og ann-
að sem deila má um hvort ekki
verður að teljast mjög óeðlilegt
í sambúð þar sem báðir aðilar
eiga að sjálfsögðu að njóta
sömu réttinda, ef fyllsta rétt-
lætis er gætt.
SKRIFTIN ÁFRAM
SKOÐUÐ
Þú virðist, ef marka má tákn í
skriftinni þinni, vera sérlega
sjálfstæð, greind og jákvæð
að upplagi. Þannig persónu-
leiki getur ekki látið óþroskaðan
einstakling stjórna sér, jafnvel
þó um raunverulega ást væri
að ræða. Þú hlýtur að vera
með andlega innilokunar-
kennd sem afleiðingu af ofríki
þessa annars ágæta manns
og yfirgangs hans. Aftur á móti
eimir sennilega f þessari
sambúð eftir í sál þinni af allri
vonbrigðasúpunni sem safn-
aðist upp [ fyrra hjónabandi
sem var mjög erfitt sambýli
vegna ótæpilegrar drykkju
barnsföður þíns. Af þessum
ástæðum þolir þú sennilega
alls ekki stanslaust klapp á
kollinn og kannski endalausa
gagnrýni núverandi maka.
í skriftinni kemur líka fram
að þú ert einlæg, trúuð og til-
tölulega vfðsýn. Það þýðir að
eftir því sem þú eldist meira
verður hugsanlegur lífstil-
gangur þér hugleiknari. Vitan-
lega þýðir þetta að þú ert ná-
kvæmari í greiningu þinni á
því sem annars vegar hendir
þig og hins vegar verður fram-
koma annarra nokkuð sem þú
staldrar líka við og skoðar.
Þú virðist frekar smásmugu-
ieg hvað varðar litlu hlutina en
aftur á móti sterk í andstreymi.
Af þessum ástæðum eyðir þú
sennilega of mikilli hugsun á
svo kölluðu aukaatriði, til
dæmis í sambúð, en ert síðan
sá aðilinn sem raunverulega
leysir áreynslulaust flest sem
fer úrskeiðis.
Það kemur líka fram í skrift-
inni að þú ert mikill vinur vina
þinna og ólöt annars vegar við
að byggja þá upp og hins veg-
ar að rétta þeim óbeðin hjálp-
arhönd ef á þarf að halda. Þú
ert mjög viðkvæm, tilfinninga-
næm og ótrúlega viljasterk og
skapmikil. Af þessum ástæð-
um er hugsanlegt að eitt og
annað þvælist fyrir þér í sam-
búð með öðrum. Aftur á móti
verða þetta að teljast kostir
þegar tekið er tillit til þess
árangurs sem slíkur aðili ætti
auðveldlega að geta náð í líf-
inu almennt. Farðu einungis
eftir þvf sem þér finnst í sem
flestum tilvikum og láttu ekki
draga úr þér kjarkinn. Mundu
að það sem hendir okkur er til
þess að efla okkur andlega en
ekki brjóta niður. Eins er ágætt
að muna að til er fólk sem yrði
alsælt með vináttu þá sem þú
getur gefið. Auk þess er líka til
fólk sem þarf þá ást og um-
hyggju sem þér virðist eigin-
legt að gefa.
Eða eins og viðkvæma
daman sagði kvöld nokkur
yfir kaffibollanum við vini
sína. „Elskurnar mínar,
þetta er harður heimur sem
við lifum í. Þess vegna verð-
um við að byggja okkur upp
andlega sem líkamlega, til
þess að staðna ekki f þroska
í samskiptum okkar við þá
sem eru okkur erfiðir og
hafa tilhneigingu til að gera
lítið úr okkur og þvf sem
okkur er einhvers virði.“
Guð styrki þig og efli, þar
sem kostir þínir eru mestir,
þannig að lífið snúist þér í vil.
Meö vinsemd,
Jóna Rúna
Vinsamlega handskrifið bréf til Jónu Rúnu og látið fylgja fullt nafn,
og kennitölu, ásamt dulnefni. Svörin byggjast á innsæi Jónu
Rúnu og rithandarlestri og þvf miður er alls ekki hægt að fá þau
f einkabréfi.
Utanáskriftin er:
VIKAN - Jóna Rúna Kvaran - Háaleitisbraut 1, 105 Reykjavíx
19. TBL. 1990 VIKAN 45