Vikan - 29.11.1990, Blaðsíða 25
Áttir sem henta vel til sambúðar: N-ASA-VSV,
A-SSV-NNV, S-VNV-ANA og V-NNA-SSA. Á
hinn bóginn er ekki reiknað með að eftirtaldar
áttir eigi vel saman í sambúð: N-S, NNA-SSV,
ANA-VSV, A-V, ASA-VNV og SSA-NNV. At-
hugið að sá sem er fæddur fyrir 16. janúar til
19. febrúar tilheyrir næsta ári á undan og þar
með næsta merki á undan gefnu ári. Sjá töflu.
HESTURINN
(Átt: Suður (S), ár: 1906, 1918, 1930, 1942,
1954, 1966, 1978, 1990)
Ég er kviksjá hugans.
Ég leysi í sundur Ijós,
liti og eilífðarhreyfingu.
Ég hugsa, ég sé,
ég hreyfist með rafmögnuðum þokka.
Stöðugur aðeins í breytileika mínum
er ég ófjötraður af jarðneskum gildum.
Hömlulaus af kröftugum markmiðum.
Ég hleyp óhindraður um ótroðnar slóðir.
Andi minn er ósigraður -
sál mín frjáls að eilífu.
Ég er hesturinn.
GEITIN
(Átt: Suðsuðvestur (SSV), ár: 1907, 1919,
1931, 1943, 1955, 1967, 1979, 1991)
Ég er sérstakt barn náttúrunnar.
Ég treysti og fæ trausi að launum.
Gæfan brosir við ásýnd minni.
Allir hlutir blómstra
í blíðu kærleika míns.
Ég sækist eftir fegurð
í öllu sem ég sé.
Svipur minn er hreinn
og fullur þokka.
Ég er geitin.
APINN
(Átt: Vestsuðvestur (VSV), ár: 1908, 1920,
1932, 1944, 1956, 1968, 1980, 1992)
Ég er árstíðabundinn flakkari
völundarhússins,
snillingur röskleikans,
töframeistari hins ómögulega.
Andagift mín er óviðjafnanleg
í frumleika sínum.
Hjarta mitt er fullt af voldugum töfrum
og gæti framið hundruð galdra.
Svona er ég settur saman
vegna eigin ánægju.
Ég er apinn.
HANINN
(Átt: Vestur (V), ár: 1909, 1921, 1933, 1945,
1957, 1969, 1981, 1993)
Ég er til taks til að boða komu dagsins
og tilkynna brottför hans.
Ég þrífst á nákvæmni og stundvísi.
I endalausri leit minni að fullkomnun
verður öllu skilað aftur á sinn stað.
Ég er nákvæmur verkstjóri
og sískoðandi stjórnandi.
Ég leita fullkominnar reglu í veröld minni.
Ég er fulltrúi óbrigðullar hollustu.
Ég er haninn.
HUNDURINN
(Átt: Vestnorðvestur (VNV), ár: 1910, 1922,
1934, 1946, 1958, 1970, 1982, 1994)
Bardagaáreynslan hefur agað mig
til að heyra sorgir þínar
og stilla kvalir þínar.
Ég er verndari réttvísinnar;
jafnrétti er mér að skapi.
Innsæi mitt óskýrist aldrei vegna hugleysis.
Sál mín verður aldrei hlekkjuð.
Líf án sæmdar er líf til einskis.
Ég er hundurinn.
SVÍNIÐ
(Átt: Norðnorðvestur (NNV), ár: 1911, 1923,
1935, 1947, 1959, 1971, 1983, 1995)
Af öllum börnum Guðs
hef ég hreinast hjarta.
Með sakleysi og trygglyndi
geng ég í verndandi Ijósi kærleikans.
Með því að gefa rausnarlega af sjálfu mér
verð ég ríkari og tvisvar blessað.
Tengd öllu mannkyni með almennri vináttu
er velvild mín altæk
og þekkir engin takmörk.
Ég er svínið.
24. TBL 1990 VIKAN 25