Vikan - 29.11.1990, Blaðsíða 52
Viltu leika golf á
fallegasta golfvelli
Evrópu - eða halda
jól í Austurríki
í vetur?
iö ættuö að koma hing-
að í desember, sagði
Gabriela Fink hjá ferða-
málaráði Innsbruck við nokkra
blaðamenn sem höfðu stuttan
stans í Innsbruck nú í haust. -
En hvers vegna í desember?
spurðum við. - Jú, þá ríkir svo
mikil jólastemmning í borginni.
(gamla borgarhlutanum er úti-
markaður, fólk gengur á milli
búða og söluborða og syngur
jólasöngva og dreypir á heit-
um jóladrykk og svo er hér á
hverju ári sérstök sýning helg-
uð Jesúbarninu í jötunni.
göngutúr um elsta hluta borg-
arinnar þar sem ekki er leyfð
umferð ökutækja fyrr en seint
á kvöldin. Eitt af því sem fyrir
augu bar var hið fræga Gold-
enes Dachl eða litla gullþakið
sem Maximilian keisari lét
reisa. Þetta eru eiginlega yfir-
byggðar svalir og þarna sat
keistarinn við hátíðleg tæki-
færi með konum sínum þrem-
ur og fylgdist með því sem
fram fór á torginu fyrir neðan.
Þakið er lagt á þriðja þúsund
gullhúðuðum koparskífum.
Skammt þarna frá er veitinga-
Gamli bærinn í Innsbruck. Þaö er eins og húsin hallist en í raun hefur aðeins verið -
hlaðið utan á veggina neðan til svo þeir þoli betur jarðskjálfta.
Við þessi orð Gabrielu rifj-
aðist upp fyrir mér að Heims
um ból, bæði lag og Ijóð, er
einmitt upprunnið í litlu þorpi
einhvers staðar í þröngum dal
í Ölpunum, reyndar nær Salz-
burg en Innsbruck en það
breytir ekki öllu. Það var árið
1818 sem séra Mohr, prestur-
inn í litla þorpinu, orti Ijóðið og
síðan var þaö kennarinn
Franz Xaver Gruber sem
samdi lagið. Það hlýtur að
vera gaman að hlusta á Aust-
urríkisbúana ganga um göt-
urnar í Innsbruck syngjandi
þennan jólasöng og það ef til
vill í jólalegri ofankomu.
En það var ennþá sumar
þegar við vorum í Innsbruck
og við brugðum okkur í
Igls, eltt af ferðamannaþorpun-
um í nánd við Innsbruck. Hér
fara menn á skíði á veturna en
iðka golf og annars konar
útivist á sumrin.
52 VIKAN 24. TBL. 1990