Vikan - 29.11.1990, Blaðsíða 78
Framhald af bls. 74
Stingið kerti í þá og dragið það í gegn - gatið helst í bakstrinum.
Flötu stjakarnir eru gerðir úr eins sentímetra þykku deigi sem
skorið er út meö smákökuformum. Þegar stjakarnir eru tilbúnir
eru þeir settir á bökunarplötu með bökunarpappír. Setjið stjak-
ana í 150 gráða heitan ofn og bakið þá í einn og hálfan tíma.
Látið þá kólna í ofninum og málið þá síðan með lakklitum.
MÁLAÐUR RAMMI
Efni: Trérammi i hentugri stærð, tómstundalakk, pensill.
Finnið gamlan ramma í geymslunni eða kaupið ódýran ramma
sem hentar utan um mynd af ykkur. Málið blómamynstur á
rammann með tómstundalakki. Það er auðvelt í meðförum og
þornar hratt. Pensilinn má hreinsa í vatni.
MÖNDLUR
Bæði saltmöndlur og brenndar möndlur tilheyra jólunum og það
er auðvelt að búa þær til.
Brenndar möndlur: Setjið 100 grömm af möndlum (takið ekki
utan af þeim) og 100 grömm af sykri í pott ásamt 2 msk. af vatni.
Hitiö og hrærið í á meðan. Fyrst verðursykurinn þurrog gráleitur
en svo verður hann brúnn og gljáandi. Þegar fer að braka í
massanum eru möndlurnar teknar upp úr og settar á bökunar-
pappír. Aðskiljið möndlurnar hratt með tveimur olíubornum
göfflum, áður en sykurinn harðnar!
Saltmöndlur: 100 grömm af möndlum, 2 tsk. af olíu, f ínt eða gróft
salt. Skolið möndlurnar, takið af þeim hýðið og þerrið þær. Setjið
þær í skál og hellið olíunni yfir. Hrærið í svo olían nái að þekja
allar möndlurnar. Stráið salti yfir og steikið þær Ijósgullnar á tefl-
onpönnu.
GULLHÚÐUN
Gullhúðun fæst í mörgum útgáfum en ekki falla fyrir þeirri freist-
ingu að kaupa þá ódýrustu. Hún hefur ekki rétta gljáann og þek-
ur ekki nógu vel. Biðjið afgreiðslufólkið að leiðbeina ykkur og
munið að í þessu samhengi er ekki ráðlegt að ætla að spara sér
hundraðkall!
JÓLAKERTASTJAKAR
Nú er hægt að fá pasta í öllum útgáfum, meðal annars pasta-
hreiður. Þau eru ágæt á bragðið en líka vel til þess fallin að
verða jólaskraut! Gullbronsið pasta-hreiðrin, setjið í þau ferskan
mosa og rauð jólakerti.
Jólaskrautið getur líka verið fljótgert. Hér er einfaldasta jóla-
skraut sem hægt er aö hugsa sér: Komið mosa fyrir í flatri
glerskál, setjið nokkur sprittkerti í og stráið gullpallíettum yfir.