Vikan


Vikan - 29.11.1990, Blaðsíða 41

Vikan - 29.11.1990, Blaðsíða 41
Boneyard er sú hljómsveit sem hefur komið hvað mest á óvart í sumar af nýjum sveitum. Nabblastrengir úr Hafnarfirði, sem sigruðu Músiktilraunir í ár. heim til hans einn daginn og heill- aði hann upp úr skónum með einu gítarsólói. Eftir það varð ekki aftur snúið. „Þá hófust æfingar af miklum krafti enda við með frumsamið efni eingöngu og leitin mikla að söngvara hófst. Milli fimmtán og tuttugu manns voru prófaðir áður en við fundum Villa. Hann kom í prufu eftir að hafa lesið auglýs- ingu í DV sem reyndar var mjög umdeild innan hljómsveitarinnar á sínum tíma. Fyrstu tónleikana héldum við svo á Akranesi 21. júlí síðastliðinn en þá hafði Villi tekið þrjár æfingar með bandinu." Síðan hefur hljómsveitin verið þónokkuð iðin við að halda tón- leika og hefur spilað á ýmsum stöðum með hinum ýmsu hljóm- sveitum. Næst er hin dæmigerða spurning um hverjir séu helstu áhrifavaldar þeirra í tónlist. „Við hlustum á alls konar tónlist og alls ekki bara á þungarokk heldur alla sem okkur finnst vera að gera góða hluti. Umfram allt sína eigin hluti. Það er einmitt það sem þetta band er að gera. Við erum ekki að reyna að stæla einhverja hljómsveit eða ein- hverja stefnu heldur kemur tón- listin beint frá hjartanu. Við semj- um mikið af lögum en við hendum líka miklu af þeim. Ef við ætlum að nota lag verður okkur öllum að finnast það gott og gaman að spila það aftur og aftur. Ef við höf- um ekki sjálfir gaman af lögunum getum við aldrei spilað þau þann- ig að karakterinn og grúvið í þeim komist til skila.“ ROKKKLUBBAR ÓSKAST Af einhverjum ástæðum upphefj- ast nú heitar umræður um hippa og hippamenningu. „Að ætla að fara að endur- skipuleggja núna einhverja hippatísku og þar með talda tón- list er alger tímaskekkja og hrein- lega nostalgía sem við íslending- ar höfum ekkert með að gera. Við eigum að hugsa fram í tímann og reyna að búa til nýja hluti en ekki að reyna að endurlífga það gamla aftur og aftur.“ Hvernig er þá íslensk rokktón- g list samanborið við það sem ger- q ist í Bretlandi og Bandaríkjunum? § Ég veit af eigin reynslu að á- % standið í Bretlandi hefur ekki ver- ^ ið upp á marga fiska síðustu eitt, tvö árin. Nú er þar heilmikil rokk- s vakning og klúbbarnir blómstra. -o Hér hefur vantað þessa rokk- klúbba þar sem nýjar hljómsveitir geta komið sér á framfæri og það nýjasta í tónlistinni er spilað. Út- varpsstöðvarnar hér hafa Ifka sýnt þessu lítinn - og flestar eng- an - áhuga utan Útvarp Rót. „fslendingar eru líka allt of seinir að taka við nýjungum í tónlist. Þeir vilja helst bara hlusta á það sem þeir eru vanir að heyra og þeir þekkja. Það er kannski ástæðan fyrir því að íslenskar hljómsveitir eru fæstar mjög bylt- ingarkenndar." Mestu hræringarnar síðustu árin hafa verið í Bandaríkjunum og ótölulegur fjöldi hljómsveita og margs konar rokkafbrigði hafa komið þaðan. En eins og Hallur benti á, þegar viðmiðunin við Bandaríkin kom til tals, þá er það bara rjóminn af rokkinu þar sem við fáum að heyra; það besta af öllum þesum fjölda. Það er það sem við miðum okkur við. Við erum ekki að keppa við meðal- bönd eða lakari því þau komast fæst út úr klúbbunum heldur setj- um við standardinn við þau bestu. En hver er þá standardinn á þeim hljómsveitum sem eru að stíga sín fyrstu skref í klúbbum í Bandaríkjunum? HVAR? Siggi: „Ég var í Los Angeles í fyrra og sá þá fjöldann allan af nýjum böndum. Mér fannst hrein- lega ekkert af þeim reglulega gott. Þau voru mörg allt í lagi en ekkert þeirra vakti neinn sérstak- an áhuga hjá mér.“ Eftir að hafa fengið nákvæmar útlistanir á hvílíkur mengunar- valdur bleiktur pappír er og hvað hægt er að koma mörgum tómum mjólkurfernum í sama ruslapok- ann, með réttum aðferðum, tókst mér að koma að lokaspurning- unni um framtíðarplön hljómsveit- arinnar Boneyard. „Við verðum að æfa ný lög og höldum síðan áfram að spila á tónleikum sem víðast. Síðan er á dagskránni að fara í stúdíó, að minnsta kosti til að taka upp demó og vonandi er ekki mjög langt í plötuna.“ Ég er núna á þeirri skoðun að útlitið í íslensku rokki hafi ekki verið bjartara síðan ég fór að fylgjast með því fyrir allmörgum árum. Það er örugglega fullt af hljómsveitum að æfa í bílskúrum um allt land og næsta skrefið er að koma sér í það að spila opin- berlega. I Reykjavík má nefna þrjá staði sem eru ágætir til slíks brúks en það eru Næturklúbbur- inn í Borgartúni, Kjallari keisar- ans og Duus hús. Það er um að gera að grípa tækifærin þegar þau bjóðast því það er allt að vinna en engu að tapa. Við íslendingar eigum líka að reyna að notfæra okkur þá athygli sem rokktónlist annars staðar af Norðurlöndum hefur fengið í Bandaríkjunum upp á síðkastið. Það er orðið tímabært að íslenskt þungarokk komist á markað er- lendis. Það eru líka þær íslensku hljómsveitir sem virðast setja markið hærra en á næsta sveita- ball eða næsta pöbb. Nú er bara að kýla á það. Hljómsveitin Pandóra kemur frá músíkbænum Keflavík. 24. TBL 1990 VIKAN 41
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.