Vikan


Vikan - 29.11.1990, Blaðsíða 34

Vikan - 29.11.1990, Blaðsíða 34
ÞORGERÐUR TRAUSTADÓTTIR SKRIFAR: RYKIÐ UNDIR SÓFANUM Þaö heföi einhvern tíma þótt tíðindum sæta í minni sveit ef menn hefðu veriö aö sötra í sig eitthvað sem hvorki getur talist vera í ætt við kaffi eöa koníak. Þarna á ég viö þennan vökva sem mikið er drukkinn hér á landi og kallaður bjór. Ég verö nú aö segja alveg eins og er að ég hef aldrei get- aö skilið hvað fólki finnst svona merkilegt viö þetta sull. Ekki er þaö nú svo gott að menn geti drukkið sig almenni- lega kennda af því, eins og þekkist í sveitinni heima. Þar fara menn í réttirnar með pela í vasanum og annan í hnakk- töskunni. Og það er ekkert skolp sem kallarnir reiða með sér í þessi skipti. Ónei. Þetta er eitthvað sem rífur í og tekur hrollinn úr þeim þegar þeir eru búnir að vera að stimpast við rollurnar frá því snemma morguns. Flestir hafa þeir búið þetta til sjálfir, blessaðir, og þykir framleiðslan beinlínis misheppnuð ef þeir þola meira en pelann yfir daginn, án þess að lognast út af. Öldin er önnur hér í Reykja- vík. Hér vilja allir belgja sig út af þessum bjór, sem auðvitað er kominn frá útlandinu eins og fleira sem heitir eitthvað en er ekki neitt. Og hvað hafa Eg var svona að gefa Asgeiri auga en hann hreyfði sig mest lítið. Einstaka sinnum tók hann þó kipp og fálmaði undir sófann... karlmennirnir svo upp úr bjór- drykkjunni? Kúluvömb og síð- an rass! Og svo rennur þetta í lítratali í gegnum þá án þess að skilja nokkur merkjanleg áhrif eftir. Nei, má ég þá biðja um réttalandann. Kallarnir verða þó einatt kátir af honum og sumir kannski eitthvað meira. Því er ég nú að færa þetta í tal að mér hefur fundist Ásgeir minn heldur hallur undir bjórinn. Ég sagði honum raun- ar strax um leið og við fluttum suður að ég vildi ekki hafa þetta hland í mínum húsum. - Nei, auðvitað ekki, góða mín, sagði hann daufur í dálkinn. Hann var þó ekki á því að gef- ast upp og færði nokkrum sinnum í tal að gott væri nú aö eiga svolítinn bjór í ísskápn- um. - Nei, Ásgeir, sagði ég þá. - Svoleiðis lagað getur beðið þar til við förum á þorrablótið fyrir norðan í vetur. Þá geturðu fengið þér almennilega í staupinu með hinum köllunum eins og þú varst vanur. Heyr- irðu það. Ég var svo ekkert að hugsa um þetta meira enda er maður vanur að ráða á sínu eigin heimili, hvort sem það er í dalnum okkar fyrir norðan eða í blokkinni hér í Breiðholtinu. Svo var það einn iaugardag- inn í haust að Ásgeir bara neit- aði að hreyfa sig úr stofusóf- anum. Hann uppástóð að það væri í sér eitthvert slen og að hann yrði að liggja fyrir. - Vertu þá uppi í rúmi, maður, sagði ég þá enda átti ég eftir að gera hreint eins og ég er vön að gera á laugardögum og ómögulegt að taka almenni- legatil í stofunni með einhvern flatmagandi í sófanum. En nei, Ásgeir sagðist þá þurfa að fylgjast með fótboltaleik, sem ætti að fara að sýna í sjón- varpinu, svo hann yrði að liggja í stofunni. Ég hélt að mér hefði misheyrst. Hann Ás- geir, þessi eljumaður sem aldrei féll verk úr hendi, ætlaði að fara að horfa á boltaleik f sjónvarpinu um miðjan dag! Hvar ætlaði þetta að enda? Það var svo sem ekki ger- andi að fara að reka veikan manninn út með ruslapokann svo ég ákvað að leyfa honum að liggja. Hann er annars van- ur að fara út með ruslið og gera eitt og annað smáræði, sem til fellur, á laugardögum. Og nú var bara aö taka til hendinni, skúra, ryksuga, þurrka af og skipta á rúmun- um. Ég byrjaði á svefnher- bergjunum, tók síðan baðið og eldhúsið. Að síðustu tók ég stofuna. Ég var svona að gefa Ásgeiri auga en hann hreyfði sig mest lítið. Einstaka sinnum tók hann þó kipp og fálmaði undir sófann. Hann er svo mik- iil hreinlætis- og reglumaöur hann Ásgeir minn og mér hlýn- aði um hjartaræturnar þegar ég hugsaði til þess hversu vænt honum þótti nú annars um heimilið sitt. Nú var hann vafalaust að tína upp kusk sem orðið hafði eftir undir sóf- anum þegar ég ryksugaði þar. Það var ekki að honum aö spyrja, blessuðum. Og ekki var hann með aðfinnslur eða nöldur þótt manni yfirsæist eitthvert smáræði við hrein- gerningarnar. Ég ákvað að vanda verkið og ryksuga betur undir sófan- um. Það er nefnilega ekki bara honum Ásgeiri sem finnst vænt um heimilið sitt. Ég þrammaði með ryksuguna inn og rak hana inn undir sófann þar sem Ásgeir hafði verið að tína upp kuskið. En hjálpi mér Guð, nú upphófust þessir líka voðalegu skruðningar og læti, eins og heimurinn væri að farast. Ég trúði hreinlega ekki mínum eigin augum því út um allt gólf ultu tómar dósir með miklum skarkala. Það var ekki um að villast - þetta voru tóm- ar bjórdósir. Ég ætlaði að senda Ásgeiri þann svip sem við á í tilvikum sem þessum en það var þá ekki hægt því hann hafði dregið teppið upp yfir höfuð... Það var ekki fyrr en klukku- tíma síðar sem ég hreinlega treysti mér til að hringja i hana Tótu vinkonu mína á Silfra- stöðum til að segja henni hvað komið hefði fyrir. Ég gat heldur ekki talað við hana í ró og næði fyrr en Ásgeir var farinn út með ruslið. □ 34 VIKAN 24. TBL. 1990
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.