Vikan


Vikan - 29.11.1990, Blaðsíða 66

Vikan - 29.11.1990, Blaðsíða 66
Skilaboð ffrá Ijósverum - sem vilja leiðbeina okkur móttekin af miðlum Asíöustu árum hefur mikill fjöldi bóka um svokölluö nýaldar- málefni verið á markaönum hér á landi en aðallega á ensku. Þótt framboöið sé mik- ið eru alltaf ákveðnar bækur sem njóta meiri vinsælda en aðrar og má þar nefna bækur eins og Living with Joy sem er rituð af Sanaya Roman og Emmanuel’s Book rituð af Pat Rodegast og Judith Stanton. Báðar þessar bækur hafa nú verið þýddar á íslensku og eru væntanlegar á markaðinn á næstunni. Efni beggja bók- anna er móttekið af miðlum og hefur að geyma skilaboð frá Ijósverum sem vilja leiðbeina okkur á leið okkar í gegnum Iffið. á nauðsyn þess að öðl- ast jafnvœgi og öryggi í lífi okkar og leita að innsta kjarna okkar Lifðu í gleði Rituð af Sanaya Roman lnnbundin/185 bls. Sanaya Roman er miðill sem komst árið 1977 í samband við „Ijósveru" sem kallar sig Orin. í mörg ár unnu þau sam- an og Orin veitti henni persónulegar leiðbeiningar, svo og vinum hennar en þeim leiðbeiningum dreifði Sanaya til þeirra á segulbandsspólum. Árið 1983 sagði Orin henni frá því að hann vildi að hún skrif- aði bók meö sér. Hann sagðist vera að vinna að því að um- breyta ríkjandi hugsunarhætti í heiminum með því að hjálpa fólki til að skilja eigin hug og til- finningar og meö því að efla kærleikann i heiminum. Bókin er vel upp byggð og tekur Orin ákveðið málefni fyrir í hverjum kafla. Hann bendir á ríkjandi venjur og hvernig hægt sé að breyta þeim. Hann bendir okkur á að lifa í gleði, breyta neikvæði í jákvæði, biðja um hjálp því ekki sé hægt að veita eitthvað sem ekki sé beðið um, auðsýna þakklæti bæði fyrir það sem við höfum nú þegar, svo og það sem okkur áskotnast dag hvern. Orin leggur áherslu á hversu mikilvægt þakklætið sé í lífinu og einnig kærleikurinn, sem hann segir að sé fæða al- heimsins. Hann bendir á nauðsyn þess að við lærum að elska okkur sjálf, að við lærum að öðlast jafnvægi og öryggi í lífi okkar og að við lærum að leita að innsta kjarna okkar. í bókinni eru sérstök æfinga- blöð þannig að lesandinn get- ur jafnóðum og hann les bók- ina notaö hana sem vinnubók í tengslum við eigin þroska. Uppruni bókarinnar kann að virðast umdeildur í huga margra en Orin biður lesand- ann um að hefja sig upp yfir það og reyna að færa sér í nyt þær leiðbeiningar sem hún inniheldur, til að öðlast meiri lífsfyllingu og nánari tengingu viö sitt æðra sjálf. Þessi bók, svo og aðrar bækur eftir sama höfund, hefur verið mjög vinsæl og virðist sífellt geta bent lesandanum á nýjar og bjartari hliðar tilverunnar. í íslensku útgáfunni er bókin smekklega innbundin og kápumyndin sérhönnuð. Út- gefandi: Nýaldarbækur hf. Verð: 2.490 kr. • Emmanúel síenduitekur þau fyrirmœli sín til okkar að treysta eingöngu þeim boð- skap sem við finnum og skiljum djúpt í hjarta okkar að er réttur... Bók Emmanúels Rituð af Pat Rodegast og Judith Stanton lnnbundin/256 bls. Pat Rodegast er miðill sem komst í samband við Emman- úel í hugleiðslu upp úr 1970. f mörg ár veitti Emmanúel Pat og þeim sem til hennar leituðu leiðbeiningar. Pat komst fljót- lega að því að margir spurðu sömu spurninganna svo hún og aðstoðarkona hennar, Jud- ith Stanton, útbjuggu lista með algengustu spurningum fólks og svörum við þeim. Listinn var síðan afhentur öllum sem til þeirra leituðu. Seinna ræddu þær við Emmanúel um útgáfu bókar og eftir fimm ára samvinnu varð þessi bók til. Emmanúel kemur víða við í leiðbeiningum okkur til handa. Hann tekur á jákvæðan hátt á málum og útskýrir lífið og dauðann, óttann sem virðist fylgja manninum, myrkrið og hiö neikvæða, hið illa og synd- ina. Hann ræðir um lífsreynslu okkar og ábyrgð á því lífi sem við höfum valiö að lifa í þess- ari jarðvist. Hann hvetur okkur til að líta á mannlegt eðli okkar (langanir, vináttu o.s.frv.) sem visbendingu um sannleika Guðs og varar okkur við að leita æðri sannleika annars staðar en i lífinu sjálfu. Hann bendir á nauðsyn gleðinnar í lífinu og ræðir opinskátt um þróunarbraut þá sem líf okkar Láðaríjós tií auðugra íífs Bók Emmanuels Inngangur eftir fylgir. Hann margítrekar að myrkrið sé afurð vitsmunanna og að þeir verði að víkja fyrir hjartanu og innsæi okkar til að við getum öðlast hina leyndu vitneskju um æðri visku. Hann ræðir um jörðina og vistfræði hennar og þær breytingar sem hún er að fara í gegnum. Hann veitir líka svör við spurningum um önnur málefni eins og kynhvöt, fóstureyðingar, sam- bönd milli manna, sannleika, trúarbrögö og helgisiði, verur utan úr geimnum og fleira. Emmanúel bendir á að í raun sé ekkert af þessu nýtt heldur virðumst við hafa þörf fyrir að heyra það aftur og aft- ur og nú í samhengi við þann tíðaranda sem ríkir. Hann si- endurtekur þau fyrirmæli sín til okkar að treysta eingöngu þeim boðskap frá honum eða öðrum sem við finnum og skilj- um djúpt í hjarta okkar að er réttur. Bókin er Ijóðrænt uppsett í ensku útgáfunni og sú upp- setning hefur haldist í þýðing- unni. Emmanúel bendir á að oft sé gott bil í textanum svo fólk geti hugleitt í ró það sem þaö er að lesa áður en haldið er áfram. Bókin er Ijúf og kær- leiksrík eins og boðskapur hennar ber með sér. Handbók sem alltaf er hægt að fletta upp í. í íslensku útgáfunni er hún innbundin. Útgefandi: Nýaldarbækur. Verð kr. 2.490 66 VIKAN 24. TBL1990
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.