Vikan - 29.11.1990, Side 26
KÍNVERSK STJÖRNUSPEKI
Frh. af bls. 23
Vanessa Redgrave, Marilyn Monroe, Fidel
Castro, Harry Belafonte, George C. Scott,
Frank Sinatra, Yehudi Menuhin, Saddam
Hussein, Edward Heath, Harold Wilson,
Anthony Quinn, Kirk Douglas, John F.
Kennedy, Indira Gandhi, Franz Schubert,
Ferdinand Marcos, Rembrandt, Leonid
Brezhnev, Sir Laurence Olivier, Liza Minelli og
Cher.
JÖRÐIN
(ártöl sem enda á 8 og 9 + fyrstu vikur ártala
sem enda á 0). Jaröarfólki er meira umhugað
um hagnýtt notagildi hlutanna en til dæmis
verðmæti þeirra. Þetta er orkumikið fólk með
góða skipulagshæfileika. Jarðarhugar eru út-
sjónarsamir, jafnt í fjármálum sem í öðru, og
eiga gott með að koma þaulhugsuöum áætlun-
um sínum í framkvæmd. Aðferðafræði þeirra
er þannig aö þeir gætu komist langt sem fram-
kvæmdastjórar og skipuleggjendur ef stjörnu-
merki þeirra býður upp á það. Flest ef ekki allt
sem þeir gera verður að hafa ákveðinn tilgang
en þeir eru líka flestum öðrum þolinmóðari.
Þeir geta verið nokkuð íhaldssamir og hafa
löngun til að sjá hlutina í réttu Ijósi. Sumir jarð-
arhugar gætu virst nokkuð einhliða eða ófrum-
legir og aðrir gætu ofverndað það sem þeir
eiga eða sína nánustu. Flestir eiga það þó
sameiginlegt að beita sjálfa sig aga og taka
ábyrgð á gerðum sínum.
Meðal frægra jaröarhuga eru Leo Tolstoj,
Jules Verne, Adolf Hitler, Charlie Chaplin, Isa-
dora Duncan, Rudolf Nureyev, Albert Einstein,
Josef Stalin, Viktoría Bretadrottning, Ché
Guevara, Abraham Lincoln, Edgar Allan Poe,
Grace furstafrú af Mónakó, Kurt Waldheim,
Leonard Bernstein, Anwar Sadat, Lyndon B.
Johnson, Bette Davis, Katherine Hepburn,
Golda Meir, Ernest Hemingway, Humphrey
Bogart, Alfred Hitchcock og Al Capone.
Samkvæmt kínversku stjörnuspekinni flétt-
ast frumkraftarnir líka inn í hvert merki, hvern
fæðingarstað og hverja fæðingarstund þannig
að alhæfingar eru varasamar í þessu kerfi eins
og öðrum stjörnuspekikerfum. Þannig er þetta
í kínverska kerfinu: íkorninn = vatn, nautið =
vatn, tígrisdýrið = tré, kötturinn = tré, drekinn
= tré, snákurinn = eldur, hesturinn = eldur,
geitin = eldur, apinn = málmur, haninn =
málmur, hundurinn = málmur, svínið = vatn.
Samkvæmt þessu fylgjast alltaf þrjú ár að und-
ir sama merkinu en jarðarmerkið er ekki eitt
þeirra. Kínverjar litu ekki á loftið sem frumkraft
til forna en notuðu málm i staðinn. Tréð er
skylt jörðinni með lifandi gróðri sínum en jörðin
er eins konar kjarni frumkraftanna. íkorninn er
sterkasta vatnsmerkið og kenndur við norður-
átt, kötturinn sterkasta trémerkið og kenndur
viö austrið, hesturinn sterkasta eldmerkið,
kenndur við suðrið, og haninn, sem er kenndur
við vestrið, er sterkasta málmmerkið. Árgang-
arnir sem hafa fæðst í eldmerki á ári hestsins
(1906 og 1966 á þessari öld) eru sagðir nokk-
uð áberandi og innan þeirra eiga að hafa kom-
ið upp einstaklingar sem voru fæddir til aö láta
mikið að sér kveða til góðs eða ills. Svo spila
staður og stund inn i þetta líka og ýmis önnur
smáatriði.
Svona speki verður því engan veginn numin
að miklu gagni í einni tímaritsgrein.
STIKLAD A STORU UM
ÞUNGLYNDI
Nú, þegar skammdegið
hellist yfir okkur íbúa
norðurhvels jarðar,
hellist einnig þunglyndi eða
slen yfir fjölda fólks. Þunglyndi
er ef til vill stórt orð en er samt
sem áður staðreynd í lífi afar
margra og getur þaö orðið sér-
staklega slæmt yfir dimmustu
mánuði ársins.
En hvað er þunglyndi?
Hugtakið þunglyndi getur haft
ýmsa merkingu og er oft notað
í daglegu tali yfir leiða eöa
fýlu, þegar fólk þjáist af depurð
vegna áfalla sem henda á lífs-
leiðinni. Oftast standa nú þess
háttar hlutir yfir tiltölulega
stuttan tíma og fólk nær Iffs-
gleði sinni á ný. Hver kannast
ekki við að upplifa daga þegar
allt sýnist ómögulegt, leiðin-
legt og glatað, hreint ekki Ijós-
an punkt að finna? En vikuna
eftir eða jafnvel daginn eftir er
öll fýla á bak og burt og lífið
heldur áfram sinn gang.
[ aldanna rás hafa menn
reynt að flokka skapgerðar-
einkenni mannsins. Grískur
heimspekingur að nafni
Platon, sem var uppi árin 427-
347 fyrir Krist, greindi per-
sónuleika manna í djúpa og
grunna persónuleika. Frá
Grikkjum er einnig komin
flokkun manna eftir skaplyndi
þeirra. Hippokrates (460-370
f.Kr.) og síðar Galenos (129-
199 e.Kr.) munu hafa skipt
mönnum í fjórar sálgerðir eftir
skaplyndi; þá léttlyndu, bráð-
lyndu, rólyndu og þunglyndu.
Geðsveiflur léttlyndra og bráð-
lyndra manna eru tíðar og
skammar en geðsveiflur ró-
lyndra og þunglyndra manna
eru hægar og langar.
Þunglyndi getur orðið mjög
alvarlegt mál og er þá skil-
greint sem sjúkdómur. Al-
mennt má segja að mann-
eskja, sem eróvenju niöurdreg-
in og bregst við umhverfinu á
hátt sem er greinilega frá-
brugðinn vanabundnu atferli,
sé þunglynd. Sú eða sá sem
þjáist af þunglyndi er venju-
lega afar bölsýnn og sorgbit-
inn, er haldinn sjálfsásökunum
og hegðar sér iðulega eins og
allar heimsins áhyggjur séu á
hans herðum. Sá sem er
þunglyndur ber það jafnan
með sér, er fámáll, lágróma og
svipbrigðalítill. Sterkur kvfði
og svefntruflanir eru algengir
fylgifiskar þunglyndis. Þrá-
hyggja er einnig algeng í
þunglyndi, viðkomandi hugsar
stöðugt um það sama sem oft
eru áhyggjur og sjálfsásakan-
ir. Lítill áhugi fyrir umhverfinu,
erfiðleikar við einbeitingu í leik
og starfi eru líka algeng ein-
kenni. Viðkomandi verður oft
mjög næmur á orð og gjörðir
annarra í kringum hann og
getur því túlkað orð á versta
veg og brugðist harkalega við.
Sá þunglyndi er oft fangi
eigin hugsana og því ófær um
að sjá þau áhrif sem hegðan
hans hefur á umhverfið. Sjálfs-
morðshugleiðingar fylgja oft í
kjölfar þessa sálarástands og
hafa læknar og sálfræðingar
oft bent á að þær beri alltaf að
taka alvarlega því þær hugs-
anir geta orðið að þráhyggju
eins og annað það hugsana-
ferli sem fylgir þunglyndi. Þeg-
ar þetta ástand er orðið slæmt
og manneskjan, sem haldin er
þunglyndinu, getur engan veg-
inn komið sér upp úr því sjálf
telst það sjúkdómur.
Margir sem þjást af þung-
lyndi finna þá hjálp sem þeir
þurfa með því að leita til dæm-
is til sálfræðinga, geðlækna
eða annarra sem hafa með
slík mál að gera. Ekkert er
skammarlegt við að leita sér
hjálpar við vandamálum
sínum, frekar merki um sterk-
an persónuleika ef eitthvað er
og hjálpin getur verið bara
spurning um eitt símtal... □
Þunglyndi getur orðið mjög alvarlegt mál og er þá skilgreint sem
sjúkdómur.
26 VIKAN 24. TBL1990
TEXTI: GUÐRUN ERLA OLAFSDOTTIR