Vikan


Vikan - 29.11.1990, Page 32

Vikan - 29.11.1990, Page 32
TEXTI: ÓMAR FRIÐLEIFSSON Veisla kvikmyndaáhugamanna Litla hafmeyjan sópaði dollurum í kassa framleiðendanna er hún var sýnd sem jólamynd í kvikmyndahúsum vestan hafs. aö veröur aldeilis veisla um jólin hjá kvikmynda- áhugamönnum. Til dæmis veröa fimm jólamyndir sýndar í Bíóborginni og Bíó- höllinni. Það eru myndirnar Little Mairmaid, Neverending Story 2, Prancers, Christmas Vacation og síðast en ekki síst Three Men and a Little Lady, beint framhald af myndinni Three Men and a Baby sem sló í gegn um allan heim áriö 1987. Hér er smáfróðleikur um þessar myndir sem allar eru fyrir alla fjölskylduna, sem sagt sannkallaðar jólamyndir. Við byrjum á teiknimyndinni Little Mairmaid sem fjallar um litla hafmeyju og ævintýri hennar. Þessi mynd var jóla- mynd í Bandaríkjunum í fyrra, rakaði saman dollurum og lög- in úr henni urðu geysivinsæl. Little Mairmaid er eflaust tekjuhæsta og vinsælasta teiknimynd sem sýnd hefur verið í Bandaríkjunum til þessa. Einnig hlaut hún óskarsverðlaun fyrir besta lag í bíómynd. Þetta er sem sagt toppmynd frá Walt Disney enda engir aukvisar í teikni- myndagerð þar á bæ. Neverending Story 2 er beint framhald af fyrri mynd með sama nafni sem var jóla- mynd í Bíóhöllinni árið 1984. Sú hefur gengið vel um allan heim og gefið rúmlega hundr- að og tíu milljónir dollara í kassann. Vel er spáö fyrir framhaldinu þrátt fyrir að ekki séu sömu leikarar og í fyrri myndinni. Meðal leikara í Ne- verending Story 2 má nefna Jonathan Brandis, þrettán ára efnilegan strák sem leikið hef- ur frá tveggja ára aldri, og Kenny Morrison frá Los Ange- les. Hann er fimmtán ára og leikur hér sitt fyrsta hlutverk. Leikstjóri er Ástralinn George Miller sem meðal annars hefur unnið það sér til frægðar að leikstýra i Man from Snowy River, einni bestu mynd sem gerð hefur verið í Ástralíu - að mati margra kvikmyndagagn- rýnenda. Sagan endalausa tekur sem sagt ekki enda í bráð og söguhetjan Sebastian heldur áfram að lenda í ævin- týrum með vinum sínum. Þess má geta að Neverending Story er jólamynd um alla Evrópu. Prancers er hugljúf fjöl- skyldumynd frá kvikmyndafyr- irtækinu Nelson Entertain- ment. Hún verður sýnd í Bíó- höllinni á þrjú- og fimmsýn- ingum. Þá eru gullmolarnir tveir eftir, Three Men and a Little Lady og National Lampoons Christmas Vacation. ( Christ- mas Vacation ætlar fjölskyld- an hans Chevy Chase bara að vera heima um jólin en þrátt fyrir það gengur lífið ekki há- vaðalaust fyrir sig fremur en vant er þar sem Chevy Chase er á ferðinni. Hann kannast margir við úr myndum eins og Fletch, Foul Play og hinum National Lampoons myndun- um. Leikarar í þessari mynd eru Beverly de Angelo og Randy Quid. Þetta var jóla- mynd í Bandaríkjunum í fyrra en er fyrst núna að berast til Evrópu. Chevy Chase var hætt kominn þegar hann fékk í sig rafstraum við tökur á þess- Three Men and a Little Lady gerist fimm árum seinna en fyrri myndin. Telpan er fimm ára og nú hyggst mamma hennar gifta sig og flytja til Englands meö dótturina. Þá byrjar nú ballið. Tom Sellec, Ted Danson og Steve Gutten- berg leika félagana þrjá sem fyrr en telpuna leikur Robin Wiesman. Leikstjórinn er nýr, Emilio Ardolino, og að sögn þeirra sem séð hafa hefur honum tekist vel uþp. Myndin var tekin upp á níu vikum í New York og London og sögur herma að bæði leikarar og leikstjóri hafi skemmt sér kon- unglega allan tímann. Hún er sögð koma álíka mikið á óvart og Three Men and a Baby sem sló met í aðsókn hér á landi eins og kunnugt er. Three Men and a Little Lady er frá kvikmyndafyrirtækin Touch- stone eins og fyrri myndin og verður aðeins sýnd í þremur löndum fyrir jól, í Bandaríkjun- um, Svíþjóð og á íslandi þar sem hún verður tekin til sýn- ingar um miðjan desember bæði í Bíóhöllinni og Bíóborg- inni. Ur öðrum hluta sögunnar endalausu. Fyrri myndin hefur gefið af sér jafnvirði sex mllljarða íslenskra króna. ari mynd og það atriði er í myndinni þótt ótrúlegt megi virðast. Ef marka má dóma í bandarískum tímaritum er þetta ósvikin grínmynd. Leik- stjóri Christmas Vacation er Jeremia Ceccik og þetta mun vera fyrsta myndin hans. Myndin er frá Warner Brothers kvikmyndafyrirtækinu og eins og Neverending Story er hún jólamynd um aila Evrópu. í öðrum kvikmyndahúsum i Reykjavík verður að venju mikið um góðar bíómyndir um jólin. Nefna má mynd Davids Lynch, Wild at Heart, Teenage Ninja Turtles, Problem Child, Flatliners, Rust og The Jetsins. Svo sem sjá má af þessu verður gott úrval af fjöl- skyldumyndum í kvikmynda- húsum borgarinnar um hátíð- irnar eins og vera ber.

x

Vikan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.