Vikan - 29.11.1990, Qupperneq 49
JÓNA RÚNA
Frh. á bls. 45
sjálfsmatið farið úr böndunum. Þetta má auð-
veldlega laga með réttum sálfræðingi. Eins
myndi ég byrja markvissa sjálfshjálp með lestir
sjálfsstyrkjandi bóka eins og Elskaðu sjálfa þig
og Vertur þú sjálfur. Þetta eru meiri háttar góð-
ar bækur og fást hjá bókaforlagi f vesturbæ
Reykjavíkur og gettu nú. Þessar mögulegu
leiðir til bóta verða þér örugglega happadrjúg-
ar, hvora sem þú velur. Kannski henta jafnvel
báðar, elskan.
LÍFSLEIÐI
Ef við finnum fyrir því að það er enginn sýni-
legur tilgangur meö tilvist okkar erum við frem-
ur ósanngjörn og grunnhyggin. Það er marg-
sannað mál að ekkert líf er tilgangslaust og þar
á meðal er þitt líf. Þú ert ung og átt margt eftir
ógert sem betur fer.
Strákamálin myndi ég hvíla um sinn vegna
þess að þau íþyngja þér en auðvelda ekki á-
stand það sem gerir þig svo dapra. Hvað sem
hinn aðilinn kann að vera þægilegur og góður
eru alltaf einhverjar kvaðir og kröfur sem svo-
leiðis samböndum fylgja. Hann getur, eins og
þú bentir á, slegið dálítið á óöryggi þitt með
nærveru sinni og þar með virkað eins og for-
eldri sem gerir barn sitt afslappaðra með nær-
veru sinni.
Þetta er því ekki tilfinningasamband sem lík-
legt er til að gera þig hamingjusama. Um leið
gerir þú hann náttúrlega vansælan af því að þú
getur sennilega ekki leynt því til lengdar að þú
ert ekki fljúgandi áhugasöm. Til vara vil ég
segja þér að ég bendi á þetta af nauðsyn en
ekki til að læða inn hjá þér viðbótar sektar-
kennd. Nóg er af henni samt, sýnist mér.
METNAÐUR NAUÐSYNLEGUR
Við verðum öll að hafa einhvern æskilegan
metnað í lífinu og þar verður þú að íhuga þinn
gang. Þar sem mér sýnist Guð hafa beinlínis
stútfyllt þig af hæfileikum og greind er það fyrir
neðan virðingu þína að hafna gróflega öllu
saman og ganga um fullkomlega metnaðar-
laus.
Þú segist sjálf ekki óska eftir að vera óvirkur
þátttakandi ! lífinu. Það er mjög glögg og
áhugaverð niðurstaða, afleiðing af þessu tíma-
LAUSN SÍÐUSTU GÁTU
í + + + + + A + + + G B + + A + + S
+ + + + A Ð + V E R A + E Ð A + A
+ + + + + F L E I N A R + r A N E L
+ + + + + L 1 T T + S N A R L + r r
+ + + + + Ó Ð I N N + A N A L E r A
+ + + + + G A R I B A L D I + I i +
+ Ó R A G A N + + + D E I L A N + V
+ F E L L + D U G L E G A + S Æ V A
+ E r L A + A F L I N U + M A R E L
+ L A S T A + S 1 F + R A + H A R r
N 1 L + A F r I M A R + R Ó L + A A
L A D A + T E + A N 1 S S T A L + +
+ + + F ó A R N + D M + R 1 r + Þ Þ
B E R N S r A + I I + r I M A T A 0
+ R I 0 + A L Ö Ð + E L T A + Ö R r
+ + S T É + D R U S L A + B 0 G N A
+ E T + L A + I N N + S r Æ r L A R
S r I L + L V + N A T T 0 R A + + +
+ r L A P P I R + r Ó R + A N D E S
+ • i + X + 0 r A + u N I R + N E R Ó
+ + S A T T + r A R A Ð + M + I + T
Ó s r + Ö T V E G + + + H A M L E T
+ A R A L S i L F R I + R L E I F A
. + F Ö s r I Ð + A Ó L M A + S + I N
L I Ð r A Ð + H A M L E T + S I N N
Lausnarorð á síðustu krossgátu
ÓSKAMMFEILINN
bundna ástandi uppgjafar sem þú ert í. Hver
manneskja á sína dimmu dali af og til sem við-
komandi verður að ganga f gegnum og er
hreint ekkert við það að athuga nema þá
kannski að nenna ekki að klæða sig upp og
berjast dálítið við vinda þá sem í dalnum eru,
labba í rólegheitunum dalinn á enda og yfir í
birtuna sem bíður róleg við enda hans.
Enginn hefur ennþá efast um tilgang and-
streymis sem hefur orðið að vinna sig frá. Ein-
mitt í gegnum örðugleika lífsins verðum við
hæfari til að skilja hugsanlegan lífstilgang þó
vissulega hvarfli það ekki að okkur þegar okk-
ur líður sem verst og sjálfstraustið er langt frá
því sem raunhæft er, eins og það er hjá þér í
augnablikinu, kæra Gabriella.
MANNGERÐ SKOÐUÐ MEÐ
INNSÆI OG SKRIFT
Þegar kemur til greina að velja ævistarf verður
þér nokkur vandi á höndum vegna þess hve
fjölhæf þú ert. Öll störf sem krefjast andlegrar
dýptar ættu mjög vel við þig. Þú ert mjög næm
og hefur sennilega áhuga fyrir innri hlutum
mannssálarinnar.
Eins ertu greinilega músíkölsk og gætir auð-
veldlega reynt fyrir þér á þeim sviðum. Þú ert
mjög forvitin og leitandi manngerð en kannski
viltu fá rökrænar skýringar á sem flestu, líka
því sem erfitt getur verið að skýra svo vel fari.
Þetta gerir þig nokkuð jarðbundna og fráhverfa
öllu hugsanlegu tilgangsleysi.
Þú þarft nauðsynlega að eignast trúnaðar-
vin, sem þú getur verið svolítiö hallærisleg í
samræðum við því þú felur of mikið þá þætti
sem eru okkur öllum eðlilegir. Reynir að virka
fullkomnari en hollt er og það getur gert þig
fráhverfa fólki.
Ég held til að byrja með að þú gætir fengið
mikið út úr því aö fara i kór eða danstíma. Þar
myndast félagsleg tengsl sem eru í flestum til-
vikum jákvæð og upp úr því getur komið góð
vinátta þeirra sem henta þér. Gömlu dansarnir
eru sniðugir og þjóðdansar líka, þó vissulega
séu tískudansar meiri háttar. Aftur á móti sting
ég upp á steppi og vonandi færðu ekki tauga-
áfall yfir þessari frábæru hugmynd minni.
Kristileg samtök ýmiss konar eru líka mjög
góð leið fyrir okkur þegar við erum ekki viss um
lífstilganginn og þau eru nánast á hverju götu-
horni. Þar er elskulegt fólk að þroska sjálft sig
í gegnum trú sína á Jesúm Krist. Þú hefur mik-
inn húmor og hann liggur óvenju vel greindar-
lega, auk þess sem þú getur verið mjög frum-
leg og skapandi ef því er að skipta.
Þig virðist vanta dálítinn sjálfsaga, einbeit-
ingu og ögn af þolinmæði, ásamt því að vera
stundum dálítið eirðarlaus. Öll flatneskja hlýtur
að fara rosalega í taugarnar á þér og af þeim
ástæöum máttu ekki verða til þess að gefa
henni líf sjálf. Hugmyndarík ertu en nokkuð
smámunasöm. Sem sagt, elskuleg, þér er vor-
kunnarlaust að taka þig svolítið upp á eyrunum
og breyta þessu viðkvæma ástandi smátt og
smátt þér í hag. Þaö þarf ekkert að gerast í
hvelli sem betur fer.
Eins og sæta skólastelpan sagði eitt sinn
þegar flest virtist vaxa þessari elsku í augum:
„Hugsið ykkur, ég var búin að gefa allt frá
mér þegar ég datt niður á þá frábæru hug-
mynd að byrja mitt innra uppbyggingar-
starf. Nú, það var eins og við manninn
mælt. Það bara rann upp fyrir mér að ef ég
kæmi á móti lífinu með bros á vör og gleði
í huga kæmi það á móti mér á nákvæmlega
sama hátt. Síðan hefur flest breyst hjá mér
og það þakka ég þessum frábæra mögu-
leika enda er ég miklu bjartsýnni og reyndar
nýt þess að fá að lifa.“
Guð verði þér hjálplegur á leið þinni að sjálfri
þér, þar sem þú ert augljóslega hæfust og
hamingjumöguleikar þínir eru mestir, þó þú
þurfir að berjast dálítið til þess. Guð hjálpar
nefnilega þeim sem hjálpar sér sjálfur og því
megum við aldrei gleyma, elskuleg.
Með vinsemd,
Jóna Rúna
Vinsamlega handskrifið bréf til Jónu Rúnu og látið fylgja fullt nafn
og kennitölu, ásamt dulnefni. Svörin byggjast á innsæi Jónu
Rúnu og rithandarlestri og því miður er alls ekki hægt að fá þau
í einkabréfi.
Utanáskriftin er:
Jóna Rúna Kvaran, Kambsvegi 25, 104 Reykjavík.
Norsku Stil ullarnærfötin
Þeim
verður ekki
kalt allan
daginn.
//
Dæmi um verð:
* fóðruð með mjúku Dacron efni.
atkiLtiatBQaa
Grandagarði 2, Rvík., sími 28855
24. TBL 1990 VIKAN 49