Vikan


Vikan - 29.11.1990, Page 57

Vikan - 29.11.1990, Page 57
Eins og meðfylgjandi myndir bera með sér er ótrúlegt hvað hægt er að gera þegar góð förðun, hárgreiðsla og Ijós- myndun fara saman. I þetta sinn fengum við til liðs við okk- ur 15 ára stúlku úr Borgarnesi, Hrönn Johannsen, og prýðir hún síðurnar að þessu sinni. Vart er hægt að sjá að það er sama stúlkan á ferð á mynd- inni fyrir förðun og síðan eftir að fagmennirnir hafa unnið verk sitt. Til gamans má geta þess að í næstu Viku birtum við myndir af systur Hrannar. Lína Rut lætur sér ekki nægja að sýna okkur förðun fyrir hversdaginn heldur bregður hún á leik og sýnir okkur nokkur tilbrigði, öll unnin með vörunum Make-Up For- ever. Hún klykkir síðan út með svokallaðri fantasíu-förðun. Við hvetjum stúlkur til að senda okkur andlitsmynd af sér, án farða, og mun Lína Rut velja stúlkur úr þeim hópi til að farða og birta myndir af hér á síðum Vikunnar. Hver veit nema það gæti orðið upphafið að glæstum fyrirsætuferli? Förðun: Lína Rut Hárgreiðsla: Gunnella, Hjá Brósa Ljósmyndari: Sigurður Jónsson Texfi: Helga Möller STAKKASKIPTI MEÐ MAKE-UP FOREVER 24. TBL. 1990 VIKAN 57

x

Vikan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.