Vikan - 24.11.1938, Side 6

Vikan - 24.11.1938, Side 6
6 VIKAN Nr. 2, 1938 Rándýr af ótrúlegri stœrd drottnuðu á jörðinni fyrir milljónum ára. Eftir dr. phil. Erik M. Poulsen. NÚTÍMA menn eru mjög frábrugðnir að skapnaði og öllu útliti þeim mönn- um, sem byggðu Evrópu á ísöldinni, fyrir hundruðum þúsunda ára. Á sama hátt er mikill munur á dýrum vorra tíma og á ísöldinni, og því lengra, sem við förum aft- ur í hina geypilega löngu þróunarsögu jarðarinnar, því meiri verður munurinn. Fyrir mörgum milljónum ára bar mest á skriðdýrum á jörðinni, en þá voru fyrstu spendýrin, lítil, óásjáleg, líkust rottum, að koma til sögunnar. Að þeim kvað síðan mikið á tertiertímabilinu. Smá og stór, og jafnvel risavaxin skriðdýr lifðu ekki ein- ungis á landi, heldur og í sjó og lofti. Þessi skriðdýr miðalda jarðarinnar voru raunveruleg skriðdýr, hvað snerti beinabyggingu, — skyld krókódílum og sandeðlum nútímans. Þau skriðu ekki, heldur gátu þau, ef svo bar undir, hlaupið, stokkið og gengið, eins og spendýr vorra tíma. Þess vegna köllum við þau eðlur. Við skulum byrja á því, að athuga rán- eðlurnar, sem voru eins skæðar og Ijón og tígirsdýr eru nú, en langtum stærri. ' Það, sem var mest óberandi og furðu- legast við eðlur þessa tímabils, var í fyrsta lagi hin geypilega stærð þeirra, og í öðru lagi, hve margbreytilegar þær voru að skapnaði. Sumar urðu landdýr, og svipaði hfnaðarháttum þeirra að mörgu leyti til lifnaðarhátta fíla og flóðhesta nú- tímans. Aðrar urðu að sjávardýrum og líktust hvölum vorra tíma. Enn aðrar fengu flughúð milli limanna og svifu um í loftinu, en sennilega hefir flugleikni þeirra ekki verið eins mikil og fugla nú- tímans. Einkum náðu landeðlurnar, og stundum líka flugeðlurnar, geypilegri stærð, urðu allt að 40 m. á lengd og sjö sinnum þyngri en fílar eru nú. Flugeðlurn- ar náðu að vísu ekki svona mikilli stærð, en fundizt hafa beinagrindur af þeim, þar sem vængjahafið hefir verið allt að 3—4 sinnum meira en stærstu fugla nú. Víða, bæði í Ameríku, Evrópu og Afríku, hafa fundizt beinagrindur af risaeðlum og ráneðlum. Með því að bera þessar beina- grindur saman, hafa menn kynnzt skapn- aði þessara útdauðu dýra. Einkennandi fyrir margar ráneðlur, er ósamræmið í stærð limanna. Framfæturnir geta verið mjög litlir, en afturfæturnir stórir og sterklegir. Þessar ráneðlur hafa augsýnilega hoppað á afturfótunum ein- um, og þegar þær hvíldu sig, hafa þær set- ið á hækjum sínum og stutt sig við óvenju- Hér sjáið þið tvö ljón, sem hafa ráðizt á mammút. Þetta risavaxna dýr hefir verið uppi þegar fyrstu mennimir komu til sögunnar. Þá voru líka hin stóm hellisljón á þeim svæðum Evrópu, er íslaus vom !x; « t * * M wí 'WJ M'W ■ -mJr ss míÆ' Wi

x

Vikan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.