Vikan - 24.11.1938, Side 20
20
VIKAN
Nr. 2, 1938
Bónorð fyrir 400 árum.
Framh. af síðu 5.
Ekki ein einasta af kvikmyndastjörnum
Hollywood-borgar, — sem hvað nákvæm-
ast eru valdar úr, — mundu standast slíka
rannsókn með góðum árangri.
Hin samvizkusama lýsing
á prinsessunni.
Sendimönnunum hafði ekki verið falið
auðvelt erindi, en þeir lögðu sig alla fram
að reka það sem bezt, þannig að konung-
ur mætti sem bezt við una. Hinrik VII.
þekkti ekkert spaug og heimtaði gott starf
fyrir sína peninga. Á hans dögum voru
fangelsin yfirfull, en samt fannst alltaf
eitthvert skot í þeim fyrir óduglegan hirð-
mann, ef því var að skipta.
Eftir að sendimennirnir höfðu notið
gistivináttu Neapel-hirðarinnar í 4 vikur,
senda þeir eftirfarandi skýrslu til London:
„Eftir því sem vér getum treyst augum
okkar, sem eru þó aldrei óskeikul, virðist
oss unga prinsessan ósminkuð. Vaxtarlag
hennar og andlitsdrættir féllu oss vel í geð.
Yfirbragð hennar er hreinlegt og sléttleitt,
andlitið kringluleitt og feitlagið. Barmur
hennar er mjúklega hvelfdur og eftir því
sem séð verður, hvorki of lítill né of stór,
ein handfylh, — eins og hæfilegt er.
Handleggirnir eru hvorki stuttir né lang-
ir, þeir bera fagrar línur og eru hraustleg-
ir. Hálsinn er feitlaginn, hrukkulaus,
barkakýli heldur ekki áberandi. Herðarn-
ar eru mjúklega álútar, en hvort hnakka-
svipurinn er nautnalegur getum vér ekki
sagt, því að vér komumst ekki aftan að
prinsessunni.
Hún hefir brún augu, sem senda frá sér
varmt augnaráð, augnahárin eru svört,
augnabrúnirnar mjóar og yndislega boga-
dregnar. Ennið er all hátt og mjótt.
Hvað nefi prinsessunnar viðvíkur, verð-
ý ur því ekki neitað, að það er all langt og
skagar að vissu leyti fram úr andlitinu.
Nefbroddurinn teygir sig fram og niður
og virðist leitast við að ná sambandi við
efrivörina, alveg eins og hjá hinni tignu
móður, drottningunni. Nasirnar veita enga
innsýn, samt eru þær all víðar.
Berar hendur hennar höfum vér oft séð,
og kysst meira að segja. Vér lýsum því
yfir, að snerting handa hennar var þægi-
leg, þær eru sléttar og aðlaðandi mjúkar,
bein og hnúar eru lítið áberandi. Hend-
urnar eru ekki þvalar, enda er prinsessan
ekki haldin neinni svitalykt, þótt hún noti
engin ilmvötn.
Hvað andardrætti prinsessunnar viðvík-
ur, höfðum vér ekkert tækifæri á að kanna
hann, þar eð vér komumst ekki nægilega
nálægt munninum á henni. Er vér rædd-
um við hana, tókum vér heldur ekki eftir,
að hún notaði nokkurt munnvatn til þess
að gera andardráttinn vellyktandi.
Eftir rósroða varanna, liljuhvíti húðar-
innar og hreinleik munnsins að dæma, er
prinsessan skírlífið, heilsusemin og lífs-
gleðin sjálf. Hvað hæð hennar snertir, var
ómögulegt að komast að því, hvort hún
notar háa hæia eða ekki. Pilsin eru alltaf
síð, svo að vér gátum aðeins stundum séð
tærnar á skónum hennar, sem virtust mjög
fíngerðar. Kvöldskó af prinsessunni var
ómögulegt að útvega, því að tvær mey-
kerlingar halda strangan vörð um herbergi
hennar.
Prinsessan hefir sýnilega smekk fyrir
góðum mat, tekur tvisvar af aðalréttunum
og naslar í sælgæti og ávexti. Vanalega
drekkur hún kaffi, blandað all-miklu vatni,
sjaldnar kryddvín. Hún er alltaf geðgóð og
alls ekki kaldlynd né rellin. Það er létt
yfir henni, en með því eigum vér ekki við
léttúð heldur frjálsleik hreyfinga hennar.
Orðfæri prinsessunnar er ekki óhugsað
né flumósa, öll framkoma hennar er öllu
fremur sett og fyrirmynd kvennlegrar
blygðunar. Þó að hún væri oft dálítið orð-
hvöss, þá er það að voru áliti meir náveru
móður hennar að kenna, sem alltaf gefur
dóttur sinni auga, svo að hún leyfi sér
ekki aðlaðandi orð né fas. Yfir höfuð
hegðaði hún sér sem góðri meyju sæmir,
og skeytti lítið um okkur. Hún gerði frek-
ar að gamni sínu við hirðmeyjarnar.
Vér höfum ekki uppgötvað neitt um sér-
stök mök við Aragóníukonung, og senni-
lega er þar um illgjarnt slúður að ræða.“
Hingað ná þessi tvö sögulegu plögg og
ekki lengra. Hinrik VII. giftist ekki Charl-
ottu prinsessu.
íslenzk frímerki
ávalt keypt hœsta verði.
Duglegir umboðsmenn óskast.
Innkaupsverðlisti fyrir 1939, 12
síður með 26 myndum, kostar
50 aura.
Mikið úrval af útlendum frímerkjum
fyrirliggjandi.
Frímerkjabækur fyrir útlend og íslenzk
frímerki, frá kr. 0.75.
QlsÍl SígwiJ^öJmsso-yi
Austurstræti 12 (áður afgr. Vísis).
Sími 4292. Reykjavík.