Vikan - 01.12.1938, Síða 7

Vikan - 01.12.1938, Síða 7
Nr. 3, 1938 VIK A N 7 1 — Ég er 9 ára og geng í skóla. Kenn- arar mínir og félagar segja, að ég spili ágætlega á munnhörpu. — Ég er skósmiður og syng alltaf við vinnu mína. Foreldrar mínir voru þýzkir, og voru mjög söngelskir. Ég er 49 ára og ákaflega ljótur, en söng Siebels úr ,,Faust“ get ég sungið með afbrigðum vel. — Ég spila einn eins og heil hljómsveit með 20 nýtízku hljóðfærum. Leikmenn frá allri Ameriku bíða í biðstofu majór Bowes til þess að sýna, hvað þeir geta leikið í útvarpið bæði skemmtileg og átakanleg. Hér er út- dráttur úr nokkrum þeirra: — Ég er átta barna móðir, 120 kíló að þyngd, en það sjá áheyrendur ekki. Móðir mín var rússnesk, og hún kenndi mér rúss- neska þjóðsöngva, sem mig langar til að syngja í útvarpið. * bílafirma bauð honum 25,000 dollara á viku fyrir að auglýsa bíla sína. Nú hælir hann því bílum í staðinn fyrir kaffi. Majór Bowes og einkaritarar hans velja um 600 bréf úr þessum tíu þúsundum, sem þeim berast vikulega. — Leikmennirnir verða að búa í New York eða í ná- grenni borgarinnar. Þess- ir 600, karlar og konur, sem valin eru úr hópnum fá svo send umsóknar- eyðublöð, sem þau verða að fylla út, ásamt beiðni um að mæta í útvarps- salnum á tilteknum tíma. í umsókninni er nafn, heimilisfahg og aðrar upplýsingar um viðkom- anda. Bréf frá fólki, sem býr lengra í burtu, koma ekki til greina, því að majór Bowes vill ekki ábyrgjast ferðakostnaðinn, þar sem ferðin gæti orðið árang- urslaus. Hvaðanæfa kemur f jöldi fólks til New York, sem heldur sig hafa einhverja hæfileika. Sumir selja al- eigu sína til þess að geta komizt til milljónaborg- arinnar, skrifað majór Bowes og fengið tækifæri til að verða frægir. Ef þeim tekst vel í leik- mannatímanum, erumikl- ar líkur fyrir, að þeir verði ráðnir hjá leikhúsi, kvikmyndahúsi eða fjölleikahúsi — eða hjá sérstökum umferða-fjölleikaflokkum, sem majór Bowes hefir komið á fót í þessu sambandi. Bréfin, sem leikmennirnir senda, eru oft Fólkið, sem leitar til majórs Bowes er af öllum þjóðflokkum, hvítir menn og svartir, gulir og rauðir. — Flest er það hungrað, þegar það kemu'r, segir majór Bowes. — Mörgum verð ég að gefa góða máltíð, áður en þeir geta byrjað. En allir hafa þeir tröllatrú á því, að þeim muni tak- ast vel. Þó að nokkrir þeirra, sem reynast • ekki færir, hafi ekki ráð á því að fara heim aftur, en verði að leita sér atvinnu í New York, þá held ég, að mörgum þeirra hafi ekkert liðið betur þar sem þeir voru. Marg- ir eru alveg atvinnulausir. En þó að við getum aðeins gefið þeim tækifæri til þess að sýna hæfileika sína, finnst mér nokkru náð. Leikmannatíminn er á hverju þriðjudagskvöldi frá kl. 21—22 og þeir, sem fyrir vahnu verða, fá skipun um að mæta kl. 19, kvöldið, sem þeir eiga að koma fram. Einkaritari tekur á móti listafólkinu þetta sama kvöld, og borða þau öll saman miðdegisverð. Klukkan 20,30 eru þau komin inn í útvarpssal- inn, þar sem áheyrend- urnir — 1500 manns — eru að þyrpast að. Það er rifist um aðgöngumið- ana, og margir verða að hverfa frá. Áheyrendurnir eru jafn ólíkir og listamennirnir. Þarna eru kjólklæddir menn, skrautklæddar kon- ur, verzlunarfólk og fá- tækir verkamenn — all- ir komnir til þess að skemmta sér í klukku- tíma við að sjá og hlusta á leikmenn majórs Bowes. Leiksviðið er stórt og samkvæmt nýjustu tízku. Tíminn er kominn — fjórir gítarleikarar ásamt söngkonu spila og syngja í útvarpið og er hlustað á þá af 1500 áheyrendum, som við staddir eru, auk milljóna annara hlustenda, sem ákveóa örlög hinna fimm ungu leikmanna.

x

Vikan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.