Vikan - 23.02.1939, Side 6
6
VIKAN
Nr. 8, 1939
Dr. phil. GEORG RÖNBERG
segir í eftirfarandi grein frá
Giovanni Sforza Medici, syni
Caterina Sforza og eins djarf-
asta leiguliðsforingja viðreisn-
artímabilsins, er kallaður var
„hinn ósigrandi“ eða „stóri
djöfullinn“, og einnig „Italía“,
vegna þess að hann barðist
ávallt fyrir föðurland sitt.
Eo Magnifico var frægastur allra
cia, og með honum náði ættin há-
tindi sínum, er hún hafði ríkt
yfir Firenze í heila öld. Eftir það úrkynj-
aðist ættin hægt og hægt, þó að sumir
af henni verði páfar og hertogar. Lorenzo
dó árið 1492. Tveim árum síðar voru
Mediciamir reknir frá Firenze, og hinir
þrír synir Lorenzo, þar á meðal sá, sem
síðar varð Leo páfi X., urðu að flakka um
sem útlagar, og „stjórn munksins", hið
skammvinna en ömurlega stjómartímabil
Savonarola hefst.
Hin yngri grein Mediciættarinnar gekk
í alþýðuflokkinn og tók sér nafnið „Popo-
lano“. Tilkomumestur þeirra var Giovanni
Medici Popolano. Hann var ekki eingöngu
„laglegasti maður í Firenze", heldur einnig
duglegastur stjómvitringur. Hann var um
skeið í franskri þjónustu, en árið 1496
sendi lýðveldið Firenze hann til Forli sem
sendiherra.
Forli var, ásamt Imola og nágrenninu,
lítið ríki í hinu svokallaða Romagna við
Adríahafið. Þrátt fyrir smæð sína hafði
það mikla þýðingu fyrir Italíu og þó eink-
um fyrir Firenze, því að ef liðsveitir frá
hertogadæminu Milano eða frá lýðveldinu
Venezía komust þar í gegn, var Firenze
hætta búin, konungsríkinu Neapel, í stuttu
máli sagt: allri ítalíu. Þess vegna áttu
flest ítölsku ríkin sendiherra í Forli.
Yfirráðandi Forli var hin fræga Cater-
ína Sforza, sem þegar var þekkt í allri
Italíu fyrir sinn óbilandi kjark, grimmd
sína og fegurð.
Fjórtán ára gömul giftist hún einum
frænda Sixtusar páfa, og þótti henni aldrei
vænt um hann, en hún stóð við hlið hans
1 blíðu og stríðu og fæddi honum sex börn.
Fólkið hataði hann, og einn góðan veður-
dag gerði það uppreisn og drap hann.
Caterína komst inn í vígi nokkurt og varði
sig, þar til hún fékk hjálp frá Milano. Hún
Þetta er myndin af Giovanni Sforza Medici, sem hinn mikli Tizian málaði eftir helgrímu,. sem
Pietro Aretino lét taka, þegar hin unga hetja var dáin, aðeins 28 ára gömul.
hefndi sín grimmilega á uppreisnarmönn-
unum.
Suttu síðar giftist hún á laun ungum
liðsforingja sínum, sem hún var ákaflega
ástfanginn af. Hjónabandið varð aldrei
opinbert, þar eð Caterína hefði þá misst
yfirráðin yfir Forli. En hún fæddi einnig
þessum manni — Feo hét hann — son.
Feo steig til höfuðs valdið, sem hann hafði
yfir þessarri fögru konu. Hann kom-fram
sem einvaldi og fór skammarlega með
elzta son Caterínu, Ottaviano, sem átti að
hafa yfirráðin. Nokkrir borgarar í Forhs,
sem hötuðu Feo, gerðu samsæri gegn hon-
um vegna Ottavianos og drápu hann dag
einn, þegar hann var á heimleið frá veið-
um.
Caterína hefndi sín aftur á uppreisnar-
mönnunum, ættingjum þeirra, konum og
börnum, og lét loka elzta son sinn inni
fyrst um sinn. Drembilát og einmana hélt
hún kyrru fyrir í Forlis. Hún var 32 ára
að aldri, og þó að hún væri margra barna
móðir, var hún alltaf fögur og þrekmikil.
En utan um hjarta hennar var hörð skel.
Til þessarrar konu kom Giovanni Medici
árið eftir morð Feo, 1496, þá 30 ára gamall,
sem sendiherra frá Firenze.
Giovanni varð hrifinn af þessarri fögru,
drembilátu Caterínu, og hún, sem hitti
þarna í fyrsta skipti sinn líka, varð ást-
fangin af honum. Þessar fögru og þrosk-
uðu manneskjur elskuðust innilega. Nótt
eina voru þau gefin saman á laun.
Aðeins elzti sonur Caterínu, Ottaviano,
sem þá var 17 ára gamall og var mjög
hrifinn af þessum glæsilega Medicia, var
viðstaddur hjónavígsluna, ásamt einkarit-
ara þeirra. Um vorið, 6. apríl 1498, fæddi
Caterína manni sínum son.
Höfdingi svörtu fánanna