Vikan


Vikan - 23.02.1939, Blaðsíða 14

Vikan - 23.02.1939, Blaðsíða 14
14 VIKAN Nr. 8, 1939 Freknumeðal. Afhýðið stóra gúrku og .pressið úr henni safann, blandið saman við hann matskeið af menguðum spíritus eða brimtoverilte og geymið þetta næturlangt. Að morgni bæt- ið þér í það matskeið af viðsmjöri, 10 dropum af benzotinktúru og matskeið af rósavatni, menguðu með 1 grammi af salt- súru quinin. Rjóðið þessu þrisvar á dag yfir frekn- umar eða þar, sem þær ásækja yður. Þetta eyðir þeim áreiðanlega eða varnar því, að þær myndist, ef þær eru ókomnar. Quininið er vörn gegn þeim, með því að það ver útbláu geislunum aðgang að lita- kirtlum húðarinnar. Svona — ekki svona. Ef þér hafið lágt enni, — sem sagt er, að beri vott um litla skynsemi, — þá skuluð þér um fram allt ekki gera það lægra með því að greiða hárið niður á ennið. Heldur skuluð þér greiða hárið upp frá enninu. Þetta er mjög auðvelt nú sem stendur, þar sem í tízku er að greiða hárið í smálokka uppi á höfðinu. * Ef þér hafið lítið höfuð, megið þér alls ekki ganga með stóra hatta með miklum börðum, heldur litla hatta, sem sitja hátt uppi á höfðinu. En varið yður á því að gera andlitið ekki of langt. Þér vitið, að það er ekki fallegt að vera mjög lang- leitur. Hér sjáið þið kápu með frakkasniði úr gráu ullarefni. Hún er ákaflega einföld, en ljómandi lagleg. Kragin, löfin, boðung- urinn, vasarnir og uppslögin eru stungin. Að aftan er hún alveg slétt. # Vöðvaolía til að verjast hrukkum. 35 grömm Ricinusolía. 15 — möndluolía, 10 — pernolía. Þessum þrem efnum er blandað saman, blandan hrist vel og þá samstundis tilbúin til notkunar. Þér rjóðið því síðan vel á yður á kvöldin neðan við og kringum aug- un, þar sem hrukkur ásækja yður venju- lega mest, og látið það liggja á húðinni yfir nóttina. Afbragðs handáburður. 2 grömm rósaolía (tilbúin), 50 — glycerín, 40 — gúrkusafi, 10 — hveitilínsterkja. Hveitilínsterkjan er vandlega steytt í gúrkusafanum og glyceríninu. Þetta er síðan hitað í heitu vatni (eins og trélím) og stöðugt hrært í á meðan, þangað til blandan er orðin að gagnsæjum, fljótandi graut, sem látinn er kólna hægt og hrært í þangað til allt er orðið vel samlagað og þykkt, þá er rósaolían sett saman við. Varist að geyma of stóran skammt af þessu í sömu krukkunni, sem þér eyðið úr daglega. Svarthærðar konur. Mógult andlitsduft eða brúnleitt (við hvítt hörund hvítt púður). Vara- og augnalitur: hindberjarauður eða fagur- rauður. Brúna- og hvarmalitur: svartur. Augnskuggi: dökkblár. Dökkhærðar konur og mjög hörundsdökkar. Mógult eða sítrónugult andlitsduft. Vara- og vangalitur: purpurarauður eða fagurrauður. Brúna- og hvarmalitur: svartur. Augnaskuggi: dökkblágrár eða rauðbrúnn. Ljóshærðar konur. Gulleitt eða ljósbleikt andlitsduft. Vara- og vangalitur: rauðgulur (því ljósari, sem húðin er hvítari). Brúna- og hvarmalitur: dökkbrúnn eða brúnn. Augnaskuggi: blý- grár. Rauðhærðar konur. Mógult andlitsduft, blandað hvítu. Vangalitur: enginn, eða mjög Ijósrauður. Varalitur sem minnstur, annars fagur- rauður eða rauðgulur. Brúna- og hvarma- litur: brúnn. Augnaskuggi: grænleitur. * Nýlega voru gefin saman í hjónaband ungfrú Guðrún Jónsdóttir og Sigurður Eiríksson, for- stjóri. Heimili hjónanna er á Óðinsgötu 11. (Sig. Guðmundsson tók myndina).

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.