Vikan


Vikan - 23.02.1939, Blaðsíða 20

Vikan - 23.02.1939, Blaðsíða 20
20 VIKAN Nr. 8, 1939 virtist vera róleg, en svipurinn í augum hennar kvaldi Baldur. Hershöfðinginn þekkti hann ekki. — Það kvaldi hann líka. Baldur talaði við lækninn í forstofunni. — Það er engin von um hann, sagði læknirinn og hristi höfuðið. — Hann lifir ekki yfir nóttina. — Veit frú Hildur það? spurði Baldur. — Ég hefi ekki sagt henni það, sagði læknirinn. — Það er ekki nauðsynlegt, — að hún viti það. Baldur bað um að mega vaka yfir litla drengnum. Frú Hildur kinkaði kolli til samþykkis. Þegar Baldur kom aftur inn í svefnherbergið, þekkti litli hershöfðinginn hann. — Góðan dag, kafteinn! sagði hann og brosti. — Gott kvöld, hershöfðingi! svaraði Baldur og skellti saman hælunum og heils- aði að hermannasið. — Er nokkur skipun í dag? — Vertu góður við konurnar, svaraði drengurinn veikri röddu og síðan bætti hann við hvíslandi: — Mamma mín er kona! Frú Hildur gaf frá sér hljóð, en hún náði sér fljótt og beygði sig yfir barnið. — Nú áttu að sofa, ástin mín! sagði hún ástúðlega. — Já, mamma mín, svaraði hann og teygði hendurnar á móti henni. — Góða nótt, elsku drengurinn minn, hvíslaði hún. — Góða nótt, elsku mamma mín! Varir hennar skulfu, og hendur hennar titruðu, þegar hún sneri sér undan, en hún grét ekki; geðstjórn hennar var dásamleg. — Ég — ég vil — Litli, granni snáðinn fékk ógurlegt hóstakast. Móðir hans fór strax til hans og lyfti honum upp. Stuttu síðar gat hann talað á ný. — Ég vil sjá kafteininn minn, sagði hann hásri röddu. Baldur kafteinn gekk að rúminu. Drengurinn reyndi að lyfta upp litla handleggnum. Baldur skildi hann, — hann skellti saman hælunum og stóð teinréttur. Hershöfðinginn reyndi í síðasta skipti að heilsa kafteininum sínum að hermannasið. — Góða nótt, hershöfðingi! sagði Bald- ur. — Nú átt þú að sofa. — Já, nú áttu að sofa, elsku litli dreng- urinn minn, sagði móðir hans lágt. Og litli drengurinn sofnaði í síðasta skiptið í fang- inu á móður sinni. Baldur kafteinn gerði allt, sem gera þurfti næstu daga. Frú Hildur bar harm sinn í hljóði. Hún gekk um eins og í leiðslu og lagfærði leikföng og f öt sonar síns. Tím- unum saman sat hún og blaðaði í barna- bókunum hans. Læknirinn hafði miklar í' yggjur út af henni og einnig Baldur kafteinn. Það fór hrollur um hann, þegar hún gekk inn í svefnherbergið til að sjá í síðasta sinn litla, föla drenginn, sem lá í hvítri kistu með bros á vörum, eins og ho.nn svæfi. Baldur fór inn til að vita, hvort allt væri ekki í lagi, áður en frú Hildur kæmi inn. Hann var með fjóluvönd, sem hann lagði á brjóstið á litla hershöfðingjanum. Við hliðina á auðu barnarúminu lá þrí- strendur hattur og lítið sverð. — Hann flýtti sér að fela það inni í skáp. Frú Hildur gat ekki stillt sig, þegar hún kom inn í svefnherbergið, — hún lagðist á hnén við hliðina á hvítu kistunni og grét og grét, eins og hjarta hennar væri að springa af harmi. Þetta var átakanlegasta sjón, sem Baldur hafði nokkurn tíma séð — hina örvingluðu móður á hnjánum við kistu dáins barns síns. Þegar hún var orð- in dálítið rólegri, reisti hann hana upp og síðan stóðu þau dálitla stund og horfðu á litla hershöfðingjann. — Það síðasta, sem hann sagði, var þetta: — Vertu góður við konumar, — mamma mín er kona, sagði Baldur hljóð- lega. Hún leit á hann með hinum fallegu, bláu augum sínum: — Þetta var það síðasta, sem faðir hans sagði við hann áður en hann fór í síðustu ferðina, hvíslaði hún. Það er ekkert dagheimili fyrir börn leng- ur í litla, rauða húsinu, en stundum eru börn niðri við garðshliðið — tvær litlar stúlkur. Baldur kafteinn og Hildur, kona hans, eru bæði ánægð yfir því, að það skuli vera stúlkur — minninguna um litla hers- höfðingjann munu þau geyma til hinztu stundar. Á leiksýningum. Beztu áhorfendur í leikhúsi eru þeir, sem fylgjast svo vel með í leiknum að þeir gleyma umhverfinu og „lifa“ með í leiknum. Hér hefir það komið fyrir, að slíkir áhorfendur hafa gefið til kynna hrifningu sína með öðru en lófaklappi. Einu sinni var verið að leika „Fjalla-Ey- vind“ og þegar kom að glímunni milli Kára og Björns í þriðja þætti og þeir höfðu svipzt til um stund, stóð upp gráskeggjað- ur öldungur á einum fremsta bekknum, sló saman hnefunum og mælti svo hátt, að allir máttu heyra þessi hvatningarorð til Kára: „O, skeltu á hann klofbragði, helvízkan." — Öðru sinni var sýndur barnasjónleikur um Litla Kláus og stóra Kláus. Þegar kom að því atriði í leiknum er bóndakonan hefir falið matinn, sem hún setti fram fyrir djáknann, inni í ofninum, og Litli Kláus er að spyrja hrosshána, hvar maturinn sé, stóð upp lítill áhorfandi, benti á ofninn og kallaði til Litla Kláusar: „Hann er í ofn- inum.“ Fyrir skömmu var Skugga Sveinn sýnd- ur hér við mikinn orðstír. I því atriði, er Skuggi ætlaði að æða gegn byggðarmönn- um og leggja til orustu við þá, vildi svo til, að leikandinn, sem var eitthvað illa fyrirkallaður, gleymdi atgeirnum. Stóð þá upp strákhnokki á fremsta bekk og kall- aði: „Þú gleymdir sverðinu þínu, manni.“ Unnustinn svíkur Jönu. Framh. af bls. 10. henni lá eitthvað á hjarta, sem hún vildi ekki segja. —- Það fór allt vel fram og virðulega, frú, en faðir hennar var ekki í svörtum frakka, og átti eins og ekki heima þarna. Hr. Piddingquirk — — Hver? — Hr. Piddingquirk — Vilhjálmur, sem einu sinni var, var með hvíta hanzka og í frakka eins og prestar eru í og með fallegt blóm. Hann var svo sætur. — Það var rautt teppi á gólfinu, alveg eins og þegar fyrirfólk giftir sig. Þeir sögðu, að hann hefði gefið þjóninum fjóra skildinga. Þau voru með reglulega fallegan vagn. — Þegar þau komu út úr kirkjunni, var hent í þau hrísgrjónum og tvær litlar systur hennar stráðu blómum á götuna. Einhver kastaði morgunskóm, og ég kastaði stíg- véli. — Já, frú, sagði Jana. — Ég ætlaði að kasta því í hana, en það fór þá í hann. Ég held, að hann hafi fengið glóðarauga. Ég kastaði bara einu stígvéli, ég hafði ekki brjóst í mér til að kasta fleirum. Allir strákarnir æptu upp yfir sig, þegar stíg- vélið hitti hann . . . Nú varð þögn. — Ég sé eftir því, að stígvélið skyldi hitta hann. Önnur þögn. Jana hamaðist á kartöfl- unum. — Hann var meiri maður en ég, eins og þið vitið, frú, og svo var hann afvega- leiddur. Kartöflurnar voru meir en tilbúnar. — Jana stóð snöggt upp, varpaði öndinni mæðilega og þreif fatið ofan af borðinu. — Mér er sama. Hann á einhverntíma eftir að iðrast. Hann á það skilið! Ég var hreykin af honum! Ég átti ekki að líta svona hátt. Það fór bezt sem fór. Konan mín var í eldhúsinu að líta eftir matnum. Líklega hefir hún verið dálítið ströng á svipinn, þegar Jana játaði á sig skókastið, en sjálfsagt hefir það ekki var- að lengi, og Jana séð, að Efemía mín var ekki lengur reið, því að hún sagði: — Ó, frú! Að hugsa sér, hvað ég hefði getað átt í vændum. Hve hamingjusöm ég hefði getað orðið! Ég hefði átt að sjá þetta fyrir fram, en ég gerði það nú ekki. Þér eruð svo góðar við mig, frú, að lofa mér að segja yður þetta. Þetta hefir verið mikil reynsla fyrir mig. Og Jana féll háskælandi um hálsinn á konu minni. Hún hefir, hamingjunni sé lof, aldrei verið með neinn stéttaríg. Eftir þetta virtist skapið í Jönu batna og hún vinna verk sín með meiri stillingu. Eitthvað fór að brydda á kunningsskap milli Jönu og slátraradrengsins nýlega, en það er önnur saga. Jana er ennþá ung og á vonandi margt eftir í lífinu. Við eigum öll okkar sorgir, og ég hefi enga trú á, að til séu sorgir, sem aldrei fyrnist yfir.

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.