Vikan - 23.02.1939, Page 7
Nr. 8, 1929
V I K A N
7
Pietro Aretino, hinn frægi blaðamaður, sem var bezti vinur
Giovanni Sforza Medici.
Caterína var hamingjusöm. Hún varð
allt önnur manneskja, góð og kvenleg. Hún
elskaði mann sinn og dreng þeirra. En
hamingja hennar átti sér ekki langan ald-
ur. Litli drengurinn hennar var tæplega
hálfs árs, þegar Giovanni dó úr blóðupp-
gangi. Hann hafði lagt of hart að sér eins
og allir Mediciar. Þeir dóu flestir ungir.
Caterína gat rétt séð hann, áður en hann
dó. Meðal hirðarinnar ríkti mikil sorg.
Nú fyrst opinberaði hún hjónaband sitt
eftir ósk Medicianna, sér og barni sínu til
upphefðar. Hún fékk borgararétt í Firenze
og kallaði sig Caterina Sforza Medici. En
Ludovico litla kallaði hún upp frá þessu
Giovanni eftir manninum, sem hún elsk-
aði svo heitt.
Caterína var —
35 ára gömul —
ekkja í þriðja skipti
og átti sjö börn. Elzt
var Bianea, dóttir
hennar, tvítug að
aldri, en Giovanni
yngstur. Nú lifði
hún fyrir börn sín
og litla ríkið. En
hún fékk ekki að
vera í friði.
Sonur Alexanders
páfa VI., hinn ill-
ræmdi Cæsar Borg-
ia, steig stórt skref,
sem vakti mikla at-
hygli. Hann lagði
niður kardínáía-
stöðu sína og
kvæntist prinsessu,
til að fá sjálfstætt,
veraldlegt ríki á
Italíu. Hann hafði
augastað á Romagna. Hann
kom með mikinn og öflugan
her inn í Imola 25. nóv. og inn
í Forli 19. des. árið 1499. Báðir
bæirnir gáfust upp skilyrðis-
laust.
En Caterína Sforza og hinir
dyggu hermenn hennar sett-
ust að í víginu í Forlis og buðu
hinum mikla her birginn í
heilan mánuð. ,,Hún hafði
kjark til að mæta her, sem
hvorki konungurinn í Neapel
né hertoginn í Milano þorðu
að mæta“, skrifar Machiavelli.
Að lokum, þegar þeir kveiktu
í víginu og púðurturnarnir
sprungu í loft upp, og jörðin
var þakin líkum, varð hin
hrausta kona, sem hafði bar-
izt eins og óbreyttur hermað-
ur, að gefast upp. Cæsar flutti
hana sigri hrósandi í hlekkj-
um til Róm.
Árangurslaust leitaði hann
að börnum hennar til að út-
rýma ættinni. En ’Caterína
hafði verið svo vitur að senda
þau öll í burtu. Meira að segja
sendi hún Giovanni, eftirlætið sitt, ásamt
elztu dóttur sinni, Biöncu, til bæjar föður
hans, Firenze. Sjálf varð Caterína að dúsa
í fangelsi í Róm í meira en ár.
Undir eins og hún varð laus úr fangels-
inu, fór hún til Firenze til að búa þar í
Villa Castello og helga sig uppeldi litla
Medici-höf ðing jans.
Móðurinni til mikillar ánægju virtist
hann vera ósvikinn Sforza, kjarkmikill,
óstýrilátur og drambsamur. Hann hafði
aðeins áhuga á hestum, vopnum og bar-
dögum. Hugrekki var sá eiginleiki, sem
Caterína mat mest, og hún fann, að fyrsta
mann sinn og börn hans vantaði hann með
öllu. Sjálf hafði hún sýnt, hversu mikinn
kjark hún hafði, og hún var þar að auki
eins og svo margar konur viðreisnartíma-
bilsins, hámenntuð, víðlesin og mátti heita
lærð kona.
Að þessu leyti var Giovanni ólíkur henni.
Hann hafði fyrirlitningu á öllum bókum
og lærdómi.
Caterínu dreymdi um, að sonur hennar
yrði hetja, og það varð hann, en hún lifði
ekki að sjá það. Eftir þetta tilbreytingar-
sama og erfiða líf, dó hún árið 1509, að-
eins 46 ára að aldri. Þá var Giovanni 11
ára gamall.
Eftir dauða móður sinnar var Giovanni
hjá Salviati, víxlara, sem var giftur Lucre-
ziu, dóttur Lorenzo Magnificos. Þessi víxl-
Frans I. í Frakklandi
að frá ósigri og smán,
og Clemens páfi, sem Giovanni barðist fyrir, og hefði ef til vui getað bjarg-
ef hann hefði ekki særzt á fæti, rétt áður en orustan stóð við Pavia.
Caterína Sforza, sem var yfirráðandi Forli og ól
„höfðingja svörtu fánanna" árið 1498.
ari átti fullt í fangi með þenna æringja,
sem setti Firenze á annan endann með lát-
um sínum. En þrátt fyrir þrjózku sína,
hafði drengurinn til
að bera blíðu og
mannúð. Nú var það
líka kona, sem mest
áhrif hafði á hann,
Madonna Lucrezia,
og Giovanni varð
mikill vinur dóttur
hennar, Maríu Sal-
vati, sem var hálfu
ári yngri en hann.
Árið 1512 fór hin
eldri grein Medici-
ættarinnar — synir
Lorenzo Magnifico,
bræður Lucreziu
Salviati — aftur til
Firenze og urðu á
ný yfirráðendur
fæðingarbæjar síns.
Elztur var Giovanni
kardínáli, er stuttu
síðar var kjörinn
páfi undir nafninu