Vikan


Vikan - 23.02.1939, Síða 17

Vikan - 23.02.1939, Síða 17
Nr. 8, 1939 V IK A N 17 Liðnir leikarar. Framh. af bls. 5. tekningu, að hún kæmi laglega fyrir á leiksviði og væri náttúrleg og eðlileg í leik sínum. Hinsvegar varð önnur leikkonan, Þuríð- ur Sigurðardóttir, mörgum árum langlíf- ari en Stefanía Guðmundsdóttir, en ekki að sama skapi fjölvirk, þegar litið er yfir leikaraferil þeirra beggja. Þuríði Sigurðar- dóttir þekktum vér Reykvíkingar síðari ár- in mikið frekar fyrir hennar mikla og góða starf í þágu umkomulausra barna, en fyrir leikarahæfileika hennar. Þó var það svo, að þegar þær störfuðu báðar samtímis, Þuríður og Stefanía, á leiksviðinu hér, rétt fyrir aldamót, var Þuríður tekin fram yfir Stefaníu til að leika hin vandmeðfærilegri hlutverk — og meira eða minna með réttu. Þuríður Sigurðardóttir bjó yfir ákaflega næmum skilningi á skapgerð og kímni, sem hæfir leiksviðinu. Meðferð hennar á fyrstu hlutverkunum, sem hún lék, sýndi þetta ljóslega. Af þeim má nefna Madömu Sommer í Æfintýri í Rósenborgargerði, Matthildi Ström í Skríl, leikritinu, sem afi hennar Jón Guðmundsson ritstjóri sýndi 1854 og nefndi þá ,,Pakk“, og svo má einnig nefna frú Heinecke í Heimkomunni eftir Sudermann. En Þuríður Sigurðardótt- ir hafði einnig næmt auga fyrir leikgáf- um samleikara sinna og hún vék því til hliðar fyrir hinni ótvíræðu skapgerðarleik- konu, sem smámsaman óx upp úr og þvert í gegnum meðferð Stefaníu Guðmundsdótt- ur á öllum gáskafullu ungmeyjahlutverk- unum. En því má bæta við, að Þuríður Sigurðardóttir bar einlægan vinarhug til Stefaníu Guðmundsdóttur og var mikill að- dáandi listar hennar, sem mér er ekki hvað síst minnisstætt fyrir kveldstund í erlendu leikhúsi er við sáum fræga leikkonu fara með eitt af þeim hlutverkum, sem Stefan- ía hafði leikið hér. í þeim leik sá Þuríður aðeins Stefaníu og það voru greinagóðar og skynsamlegar athuganir, sem hún gerði til samanburðar — en ekki ávallt til inn- tektar fyrir hina frægu erlendu leikkonu. Það var eðlilegt, að leikkonu eins og Þuríði Sigurðardóttur, yrði falið að leiða fram fyrir fótljósin, íslenzku kvenhlut- verkin jafnóðum og þau komu fram í leikjum eftir aldamót, og þá einkanlega hlutverk roskinna kvenna, sem gáfu tilefni til skapgerðarlýsingar, eins og t. d. Jór- unni í Bóndanum á Hrauni. Af slíkum hlutverkum lék hún eitt allt fram á gamals aldur, Margréti húsfreyju í Nýjársnótt- inni. Mátti heita, að hún og Stefán Run- ólfsson, sem lék Guðmund bónda, væru samgróin Nýjársnóttinni, og léku þau þessi hlutverk með ágætum, blátt áfram og eðli- lega, svo það verða vandfundnir leikarar í þessi hlutverk í þeirra stað. Það fer fjarri því, að leikkonan Stefanía Guðmundsdóttir hafi unnið algeran list- rænan sigur í fyrsta skipti sem hún kom fram á leiksviðinu 30. jan. 1893 sem Hortenze í smáleiknum ,,Betzy“, þar sem Þóra Sigurðardóttir lék aðalhlutverkið. Og það var síður en svo að leikkonan gengi sigrihrósandi frá hlutverki til hlutverks á næstu árum svo öllum væri ljóst, að þar væri mikil leikkona á ferð. Það var Aþenu unnt að stökkva alvopnuð fram úr höfði Seifs, en leikkonan varð að heyja alllanga og oft býsna harða baráttu áður en hún var fullsköpuð. Jafnvel vopnin, sem leik- konunni voru í hendur seld, voru henni síður en svo hentug til að vinna skjótan og endanlegan sigur. Henni var falið að leika ungar ærsladrósir, en hún var feim- in að eðlisfari og hún hafði ekki til að bera töfrandi andlitsfegurð. Henni var falið að syngja, en röddin var lítil og óskóluð með öllu. — Samt sem áður vann Stefanía Guðmundsdóttir sigur, að vísu eftir baráttu, en glæsilegan og endanleg- an, sem skipaði henni óumþráttað í önd- vegi íslenzkra leikkvenna. Það er langt bil á milli ungu óreyndu leikkonunnar ,,sem kom fyrst fram á leik- sviðið í telpugervi, ríðandi á kollupriki, með flaxandi hár, iðandi og spriklandi af æsku- fjöri, eða hún klifraði upp um stóla og borð, snúandi öllu á annan endann“ og hinnar reyndu leikkonu, sem lék Steinunni í Galdra-Lofti, svo að orð og svipbrigði hinnar ógæfusömu konu brenndu sig inn í huga hvers áhorfanda. Og þó frú Stefan- ía, eins og hún var ávallt kölluð af kunn- ugum sem ókunnugum, hefði áður en hún lék Steinunni hlotið viðurkenningu sem fremsta leikkona bæjarins, þá var það leik- afrek eitt hennar mesta og í raun og veru lokahlekkurinn í þeirri hlutverkakeðju, er hefst með leik hennar í Mögdu í Heimil- inu eftir Sudermann. Þegar talað er um baráttu frú Stefaníu til endanlegs sigurs á leiksviðinu, verður að segjast strax og með áherzlu, að það var barátta listamannsins við efnið, sem áhorfendur gerðu torveldari með því að taka ástfóstri við hana í hlutverkum, sem gáfu henni ófullnægjandi vaxtarskilyrði. Mörgum leikara hefir orðið hált á slíku dálæti í ákveðnum hlutverkum og ein- skorðað leik sinni við þau, en frú Stefanía tefldi á tvær hættur og vann áhorfendur engu síður í hlutverkum eins og Magda, Kamelíufrúin, IJlrikka, eða frú X. Að hún átti þó ætíð hug og hjarta áhorfenda í hinum léttari hlutverkum sýnir m. a. sú staðreynd, að Toinette í ímyndunarveik- inni var eitt með beztu gamansömu hlut- verkum hennar og Jóhönnu lék hún í nær- fellt 20 ár í Æfintýrinu eða samtals 62 sinnum. Eitt af því, sem einkenndi frú Stefaníu sem leikkonu alla tíð, var það, að hún tók mikið tillit til þess, sem skinbærir menn sögðu um leik hennar. Margir leikarar freistast til þess að taka illa upp fyrir leikdómurum aðfinnslur, leggja þær út sem persónulegar árásir og móðgast út af smámunum einum. Það var á annan veg hjá frú Stefaníu. Segja má, að hún hafi verið svo heppin, að í kringum aldamót, er hún var til þess að gera ný á leiksvið- inu, voru hér leikdómarar mikilhæfir og gáfaðir menn, eins og Vilhjálmur Jónsson póstafgreiðslumaður (bróðir Klemenzar Jónssonar landritara og þeirra bræðra), Einar H. Kvaran rithöfundur og Bjarni Jónsson frá Vogi. Bómar þessara manna um leik frú Stefaníu eru alveg einkenn- andi fyrir skilninginn á hæfileikum henn- ar um aldamótin, og aðstaða hennar sem leikkonu gagnvart tveimur hinum síðustu sýnir hinn sífellt reiðubúna vilja hennar til að taka skynsamlegum leiðbeiningum og átti hún báðum mikið að þakka þá stefnu- breytingu, sem varð í list hennar eftir aldamót. Vilhjálmur Jónsson haliast í dómum sín- um að hinni almennu skoðun. „Allt henn- ar (Stefaníu) látæði samsvarar vel tali og tilfinningum Lísu litlu (Ferðaæfintýrið, 1897) og það er einmitt unga, saklausa, glaðlynda stúlkan, sem á bezt við hennar leikgáfu.“ Þá þegar telur V. J. frú Stefaníu „okkar fyrstu leikkonu" en hann aðvarar hana, hvað sönginn snertir. Síðar kemst V. J. að þeirri niðurstöðu um leik frú Stefaníu í hlutverki Láru í Æfintýrinu „að það er ekki síður unga, saklausa, alvarlega stúlk- an, sem á fullt eins vel við leikgáfu henn- ar, eða með öðrum orðum, að hún getur

x

Vikan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.