Vikan - 10.08.1939, Blaðsíða 7
Nr. 32, 1939
VIKAN
7
þar sem eru furðuverk eins og:
# Tilbúnar eldingar.
# Hitateppi.
# Osýnílegt gler.
# Dauðageislar.
# Sótthitavélar.
Eftir ALEKO E. LILIUS
Það er ómögulegt að segja fyrir um það, hvaða
þýðingu þessi nýi glóðarlampi nær að hafa.
að er miðnætti. Lestin nemur staðar
á járnbrautarstöðinni í Schenectady,
en þangað er fjögra tíma akstur frá New
York. Þar er myrkur. Hvergi burðarkarl.
Jörðin er hulin snjó, óhreinum snjó, sem
er margra daga gamall. Loftið er þrungið
köldu regni.
Lestin þokast áfram, og ég stend einn á
stöðvarpallinum. Skyndilega kemur burð-
armaður með rauða húfu út úr myrkrinu
og tekur töskuna mína. Við göngum yfir
járnbrautarteinana. Menn furða sig á því,
að svo þekkt borg sem Schenectady er,
skuli hafa svo forneskjulega járnbrautar-
stöð.
Ég tek bíl og ek af stað. Það rignir og
rignir. Göturnar eru krókóttar og húsin,
svo langt sem augað eygir, ákaflega lítil.
Gömul hús — nokkur þeirra hljóta að vera
rúmlega hundrað ára gömul.
Bílstjórinn ekur að veitingahúsinu, sem
er úr rauðum múrsteini. Herbergið mitt er
hlýtt og með nýtízku húsgögnum.
Ég geng inn í barinn. Ljósið þar er gul-
leitt, og það fyrsta, sem mér dettur í hug
er, hvort hér sé gas, en ekki rafmagn. Það
getur varla verið, því að bærinn er að kalla
það sama og General Electric Company eða
,,G. E.“ eins og það er almennt kallað og
þýðir auðvitað, að bærinn standi framar-
lega á sviði rafmagnsins. Allir íbúar bæjar-
ins eiga einhvern veginn allt undir raf-
magninu.
Helmingur bæjarbúa vinnur við félagið,
en hinn helmingurinn — slátrarar, bakar-
ar, kaupmenn og aðrir verzlunarmenn —
lifa óbeint á félaginu. Auðvitað getur ekki
verið að ræða um gasljós.
— Gas? andvarpar gamli þjónninn. —
Nei, við notum rafmagn hér. Það er aðeins
gert fyrir fólkið að útbúa þetta þannig, því
að það er svo leitt á þessum rafmagnsút-
búnaði, að það þráir gasið.
Kannske veldur sama viðkvæmnin því,
að bærinn er eins forneskjulegur og hann
Töfrahúsið, General Electrics-verksmiðjurnar í Schenectady, en þaðan koma rafmagnsuppfinningarnar.
f . il:i| |> ■ >
■••** »l« l»l** ífi