Vikan - 10.08.1939, Qupperneq 14
14
VIK A N
Nr. 32, 1939
Listin að búa sig.
Litlar, þrekvaxnar stúlkur sýnast
hærri og grennri, en þeim má vera
sama, hvernig tízkan er, — ef þær
fylgja ákveðnum reglum:
1. Efni kjólanna verður að vera
í löngum, beinum línum.
2. Ermar mega alls ekki vera víð-
ar og ekki úr ljósara efni en kjóll-
inn er.
3. Ljós kjóll með dökkum erm-
um grennir.
4. Ermar mega heldur ekki vera
þröngar, ef handleggirnir eru feitir,
og ermar, sem ná fram yfir olnboga,
eru hryllilegar.
5. Ef hnappar eru notaðir til
skrauts, verða þeir að liggja í lóð-
réttri línu.
6. Þverröndótt efni gerir fólk
þrekvaxnara en það er. Langröndótt
grennra.
7. Ef kjólarnir eru felldir, verða
fellingarnar að vera lóðréttar, og
bilin á milli þeirra misstór.
8. Belti er bezt að nota sem
minnst. Þau mega alls ekki vera í
öðrum lit en kjóllinn.
9. Þrekvaxnar
stúlkur klæðir lang-
bezt að hafa kjólana
eins einfalda í háls-
inn og unnt er. Ef
þær eru hálsstuttar,
mega þær ekki nota
perlufestar né annað
hálsskraut.
10. Blóm mega
þær aldrei hafa á öxl-
inni. 1 kvöldkjóla er
bezt að hafa mjúkt
efni, sem liggur í löngum línum frá
öxlum og niður á fætur.
11. Ef þær eru þreknari. að ofan
en neðan, er ágætt að blússur eða
peysur séu í dekkri lit en pilsin. —
Einnig getur farið vel að hafa fell-
ingar á öxlunum.
Nú er aftur farið að skreyta kjólana með allskonar snúrum.
Hér er einn kjóll þannig skreyttur.
Ég skipti fólkinu í þrjá flokka: Þá fáu,
sem valda því, að eitthvað gerist, þá mörgu,
sem taka eftir því, að eitthvað gerist, og
hina afar mörgu, sem ekki hafa minnstu
hugmynd um, að nokkuð gerist.
Nicolas Murray Butler.'
Augað er vél,
sem ástin hreyfir.
Cesile.
FEGURÐ OG TÍZKA :
Göngudragt. Pilsið er úr stórköflóttu efni. Dragtin væri samt
sem áður fallegri úr einlitu eða smágerðara efni en þetta er.
Háar og grannar stúlkur verða
að forðast það að líta út eins og
þær séu magrar. — Það er ljótt.
Þær verða því að fylgja þeim regl-
um, sem lágar, þrekvaxnar stúlk-
ur verða að forðast.
1. Lóðréttar línur verða þær
að forðast eins og heitan eldinn.
Stórir kragar eru góðir.
2. Víðar ermar eru ágætar, og
blóm til skrauts, sérstaklega á öxl-
inni.
3. Belti, slaufur og annað
skraut er ágætt fyrir háar, grann-
ar stúlkur.
4. Ef þær hafa ljóta fætur,
hylja síðu kvöldkjólarnir þá. I
ferðalög eru felld pils ágæt.
5. Forðist mjög þröng pils,
hvort sem þér eruð grannar eða
þrekvaxnar.
Kjósendur í fegurðarsamkeppninni
skrifi nafn og heimilisfang stúlkunnar,
sem þeir kjósa á línumar á kjörseðlin-
um, — en geti sín hvergi sjálfir. —
Kjörseðlamir verða að vera komnir til
blaðsins fyrir 16. ágúst n. k.
Nýlega vom gefin saman í hjónaband ungfrú
Fjóla Isleifsdóttir og hr. Vilhjálmur Jóhanns-
son, stud. med. Heimili ungu hjónanna er á
Fjólugötu 25. (Sig. Guðmundss. ljósmyndaði).
Fegurðardrottning íslands 1939
rsedííí
Nafn .........,.......................
Heimilisfang .........................
— Vikublaðið VIKAN, Austurstræti 12, Keykjavík. —