Vikan


Vikan - 10.08.1939, Side 16

Vikan - 10.08.1939, Side 16
16 VIK A N Nr. 32, 1939. milli, og sjálfsmorð eru talin í öfugu hlut- falli við inneignarskírteini í banka. Þess vegna höfum vér, án þess þó nokkru sinni að fórna þægindunum, gert oss far um að færa dvalarkostnaðinn á Þanatos niður í það lægsta verð, sem hægt er. Þér þurfið aðeins að afhenda þrjú hundruð dollara, þegar þér komið. Þessi upphæð veitir yður rétt til alls, sem lýtur að dvöl yðar hér, — en hversu löng hún verður, hlýtur að vera leyndarmál fyrir yður; með henni greiðið þér kostnaðinn við aðgerðina, við útför- ina og ennfremur viðhald grafarinnar. Að sjálfsögðu er og þjónusta innifalin í verð- inu, og munuð þér ekki krafinn um neina drykkjupeninga. Vér viljum sérstaklega taka fram, að umhverfi Þanatos er viðbrugðið fyrir náttúrufegurð, og gistihúsinu tilheyra 4 tennisvellir, golfvöllur með átján holum og falleg sundlaug. Viðskiptavinimir eru af báðum kynjum, og flestir af fínna taginu. Þess vegna verður hið félagslega andrúms- loft dvalarstaðarins einkar ánægjulegt, og vegna hinna óvenjulega æsandi kringum- stæðna blátt áfram ósambærilegt. Ferðamenn em beðnir að stíga út úr á jámbrautarstöðinni í Deemning, en þangað kemur gistihússbílinn að sækja þá. Þeir eru ennfremur beðnir að tilkynna komu sína bréflega eða símleiðis a. m. k. með tveggja daga fyrirvara. Símnefni: Thanatos Coronado (New Mexico).“ * Ferðin var mjög löng. Tímunum saman rann lestin gegn um bómullarakra, þar sem svertingjarnir stóðu við vinnu sína upp úr hvítum breiðunum eins og dökkir dílar. Síðan komu tvær nætur og tveir dagar, sem fóm í lestur og svefn. Loks varð um- hverfið klettótt, hrikalegt og dularfullt. Járnbrautarvagnarnir mnnu niður í gjár á milli ótrúlega hárra hamraveggja. Ógur- lega breiðar rákir, fjólubláar, gular og rauðar lágu þvert yfir hæðimar. I miðjum hlíðunum voru langir skýjabakkar. Á litlu stöðvunum, þar sem lestin staðnæmdist, sást Mexíkönum bregða fyrir með barða- stóra flókahatta og klædda útsaumuðum leðurjökkum. — Næsta stöð Deemning, sagði negrinn í Pullman-vagninum við Jean Monnier. — Á að bursta skóna, massa? Frakkinn lét bækur sínar niður og lok- aði ferðatöskunni. Hann var hissa á því, hvað hið hinsta ferðalag hans var óbrotið. Fossniðurinn barst til eyrna hans. Það urgaði í hemlum lestarinnar. Hún nam staðar. — Þanatos, sir ? spurði indíánskur burð- arkarl, sem hljóp eftir stöðvarstéttinni meðfram vögnunum. Þessi náungi var þegar búinn að fá upp í handvagninn sinn farangur tveggja ljós- hærðra stúlkna, sem fylgdu honum eftir. — Er það mögulegt, hugsaði Jean Monnier, — að þessar yndislegu stúlkur séu komnar hingað til að deyja? Þær litu einnig til hans, mjög alvarleg- ar á svip og hvísluðust á. Gistihússbílinn frá Þanatos líktist alls ekki líkvagni, eins og búast hefði mátt við. Hann var málaður himinblár og klædd- ur innan með appelsínugulu, bláröndóttu áklæði. Það stirndi á hann í sólskininu inn- an um úr sér gengin farartæki og iðandi þvögu ragnandi Spánverja og Indíána, sem létu eins og þeir tækju þessa stöð fyrir markaðstorg. Klettarnir til beggja handa við járnbrautina voru vaxnir mosa og skófum, sem huldu grjótið eins og blá- grá ábreiða. Nokkru aftar glitti í litsterk- ar snasir hins málmauðuga bergs. Svalt og hreint f jallaloftið gerði það sem á vant- aði til að gefa umhverfinu ákveðinn glað- værðarsvip. Bílstjórinn var stór maður vexti, úteygður, í gráum einkennisbúningi. Jean Monnier settist við hlið hans, bæði af hlédrægni og eins til þess að valda ekki hinum tveim samferðastúlkum sínum neins ónæðis. Og þegar bíllinn tók að renna upp fjallshlíðina eftir bugðum vegarins, sem voru eins krappar og beygja á hárnælu, reyndi hann að fá sessunaut sinn til að tala. — Hafið þér verið lengi bílstjóri fyrir Þanatos ? — Þrjú ár, urraði bílstjórinn. — Það hlýtur að vera einkennilegur staður. — Einkennilegur? anzaði hinn. Því þá það? Ég ek mínum bíl. Hvað er svo sem einkennilegt við það? — En ferðamennina, sem þér komið með, þurfið þér vænti ég aldrei að flytja aftur til stöðvarinnar, er ekki svo? — Sjaldan skeður það, sagði náunginn dálítið hikandi-----. Sjaldan, að vísu. Þó kemur það fyrir. Ég, til dæmis--------. — Þér? Virkilega?--------Svo þér hafið komið hingað fyrst sem---------gestur? gestur? — Herra minn, sagði bílstjórinn, -— ég hefi tekið við þessu starfi til þess að þurfa ekki að tala framar um sjálfan mig, og auk þess eru þessar bugður hættulegar. Þér viljið þó ekki, að ég drepi yður og stúlkurnar þarna aftur í? — Auðvitað ekki, sagði Jean Monnier. Hann fór að hugsa um það, áð þetta svar var dálítið kynlegt, eins og sakir stóðu, og hann gat ekki varizt því að brosa. Tveim tímum síðar benti bílstjórinn hon- um, án þess að segja orð, niður á háslétt- una, þar sem Þanatos blasti við. * Gistihúsið hafði verið byggt í spænsk- amerískum stíl; það var mjög lágt, með þaksvölum og rauðum sementsveggjum, sem áttu að líta út eins og þeir væru byggðir úr leir. Gluggamir snem til suðurs, undir súlnagöngum, og var all- ur frágangur inni og úti eftir því sem tíðkast um beztu gistihús í stórborg- um. Dyravörðurinn tók stimamjúkur og brosandi á móti gestunum. — Hvar í þremlinum hefi ég séð yður áður? spurði Jean Monnier hann um leið og hann fékk honum ferðatösku sína. — I Ritz í Barcelona, herra minn. Nafn mitt er Sarvoni------. Ég flýði þaðan um það leyti sem borgarastyrjöldin hófst. — Frá Barcelona til Nýju Mexikó, en þau viðbrigði------! — Ekki svo mjög — —. Starf dyra- varðarins er það sama allsstaðar--------. Það eru bara skjölin, sem ég verð að biðja yður að fylla út, þau eru dálítið flóknari hér en annarsstaðar--------. Þér afsakið. Prentuðu eyðublöðin, sem nýju gestun- um voru afhent, voru sem sé með ótal dálkafyrirsögnum, spurningum og athuga- semdum. Menn voru áminntir um að taka mjög greinilega fram fæðingarstað sinn og ár, að nefna þá menn, sem gera skyldi aðvart, ef eitthvað kæmi fyrir („menn eru beðnir að tilgreina að minnsta kosti tvær mismunandi utanáskriftir“), og síðast en ekki sízt að afrita með eigin hendi á móð- urmáli sínu meðfylgjandi yfirlýsingu A), svo hljóðandi: „Ég undirritaður------heill heilsu á sál og líkama, votta, að það er af fúsum vilja, sem ég kveð þetta líf og leysi ég hér með forráðamenn og starfsfólk Þanatos Palace gistihússins undan sérhverri ábyrgð á því, sem kann að bera mér að höndum.“ Við næsta borð sátu ungu stúlkurnar hvor á. móti annarri og afrituðu vandlega yfirlýs- ingu A), og Jean Monnier veitti því eftir- tekt, að þær höfðu valið þýzka textann.. # Henry Boerstecher, forstjóri var stilli- legur maður með gullspangargleraugu. Hann var mjög hreykinn af fyrirtæki sínu. — Eigið þér gistihúsið? spurði Jean Monnier. — Ó nei, það er eign hlutafélags. En það var ég, sem átti hugmyndina að því, og ég er forstjóri þess æfilangt. — Og hvemig stendur á, að þér sleppið við alvarlega íhlutun yfirvaldanna hér? — íhlutun yfirvaldanna? endurtók hr. Boerstecher undrandi og dálítið hneiksl- aður. — Nú, við aðhöfumst ekkert hér, herra minn, er sé gagnstætt skyldum vor- um sem gistihúshöldurum. Við látum við- skiptavinum okkar í té það, sem þeir biðja um, allt, sem þeir æskja, ekkert þar fram yfir------. Auk þess skuluð þér vita, að hér um slóðir eru engin yfirvöld. Þetta landssvæði hérna er svo óglöggt afmarkað, að enginn getur sagt, hvort það tilheyrir heldur Bandaríkjunum eða Mexíkó. Lengi vel var álitið, að engum væri fært hingað upp á hásléttuna. Það gekk sú saga, að flokkur Indíána hefði safnazt þar saman fyrir nokkrum hundruðum ára til að deyja þar og á þann hátt að firra sig öllu sam- neyti við Evrópumenn, og almenningur hér í nágrenninu leit svo á, að svipir þessara dauðu Indíána sætu fyrir mönnum á leið- inni upp fjallið. Það var þess vegna, sem okkur tókst að festa kaup á þessari geysi- stóru landspildu fyrir mjög hóflegt verð, og það er líka þess vegna, sem við getum lifað hér tiltölulega mjög óháðir. — Og kemur aldrei fyrir, að fjölskyld- ur viðskiptavina yðar lögsæki yður?

x

Vikan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.